Lady Brewery hreyfingin býður fólki í leyniklúbb

Far­ands­brugg­húsið Lady Brewery ætlar að koma upp til­rauna­eld­húsi þar sem íslensk nátt­úra í bjór­gerð verður rann­sökuð. Safnað er fyrir verk­efn­inu á Karolina fund.

Far­ands­brugg­húsið Lady Brewery ætlar að koma upp til­rauna­eld­húsi þar sem íslensk nátt­úra í bjór­gerð verður rann­sökuð. Safnað er fyrir verk­efn­inu á Karolina fund.

Far­and­brugg­húsið Lady Brewery hyggst opna dyrnar sínar með því að bjóða fólki í leyni­klúbb. Þetta er ann­ars­konar upp­skrift hjá Þóreyju Björk Hall­dórs­dóttur, eig­anda og stofn­anda Lady Brewery, og Sigríði Ásgeirs­dóttur, þar sem bjór og löng reynsla þeirra í við­burðum eru brædd saman í skemmti­lega og flotta útgáfu af...ein­hverju alveg glæ­nýju.
Komið verður upp til­rauna­eld­húsi þar sem þær hyggj­ast rann­saka íslenska nátt­úru í bjór­gerð og leyfa áhuga­sömum að taka þátt í því sam­tali og upp­lifa brugg­ferlið með reglu­legum við­burðum. Þær Þórey og Sigríður vilja líka sjóða saman fólki úr mis­mun­andi áttum sem eiga það sam­eig­in­legt að vera áhuga­fólk um bjór, þó tala þær sér­stak­lega um að það þurfi ekki að vera sér­fræð­ingur á þessu sviði til að taka þátt.
[adspot]Þórey segir að hún muni aldrei hvernig hug­myndir kvikna og þessi sé ekki und­an­skilin. „Það er nefni­lega of mikið til af þeim og þær fá að fæð­ast og streyma mjög org­anískt í þessu fal­lega litla fyr­ir­tæki okkar, en þetta verk­efni hefur staðið til lengi við bara vissum ekki fyrr en núna, í allri þess­ari COVID lokun, hvernig við vildum fram­kvæma það og í hvernig formi við vildum opna dyrnar okkar. Við viljum opna huga fólks og leyfa áhuga­sömum að koma til okkar, fá að upp­lifa bjór­inn með okkur og ferlið ásamt því að taka þátt í allskyns við­burðum sem við erum búnar að vera kukla upp sjálfar og með ýmsum aðilum.

Ég var eitt ár sem skiptinemi í Berlín 2000-og-snemma og þar kynnt­ist ég mikið af svona leyni­klúbbum, þar sem oftar en ekki, labb­aðir þú inn í eitt­hvað óvænt með allskyns þemu, stundum þurft­irðu leynikóða til að kom­ast inn, stundum lent­irðu í stof­unni heima hjá ein­hverjum en alltaf var það spenn­andi og gaman. Það var mikil gras­rótar stemn­ing þar sem atvinnu­leysi var hátt og lista­menn dróg­ust að borg­inni. Við erum að hugsa þetta á þessum línum bara miklu meira full­orð­ins.“

Þórey segir að henni hafi fund­ist vanta svona klúbb á þessum tíma­punkti á Íslandi. „Fyrir fólk að koma í bjór spjall, ævin­týra­legar upp­lif­anir, að eiga stað þar sem þú getur kynnst nýju fólki, komið og fyllt á growler áður en farið er í mat­ar­boð eða átt ótrú­lega skemmti­leg fimmtu­dags­kvöld með vina­hópnum. Þess vegna köllum við þetta Lady Brewery hreyf­ing­una, við viljum hreyfa við fólki og fá það með okkur!“

Hún segir að til­rauna­eld­húsið verði hjartað í verk­efn­inu. „Leyni­klúbb­ur­inn, við­burð­irnir, „ég er með skoðun“, smakk sessionin, growler stöðin okkar og „súper mark­að­ur­inn“. Eins og með allt sem við gerum þá viljum við finna nýjar leiðir til að gera eitt­hvað spenn­andi og skemmti­legt, setja bjór í annað sam­hengi og þú þarft alls ekki að vera sér­fræð­ingur til að koma að vera memm. Bjór er bara gaman! hann getur ekki verið neitt annað en Gaman! og það er það sem við ætlum að gera, búa til nýjar upp­skriftir að hlutum og hafa gaman!

Þórey segir það ofurein­falt að taka þátt. Það þurfi ein­fald­lega að skrá sig til leiks og í byrjun næsta árs verður aðildin virk. „Fyrir þá sem þekkja­vm­inna til okkar og eru í óvissu með þetta þá bjóðum við upp á 3 mán­aðar áskrift, en fyrir hina þá sem vita hver við erum og hvað við gerum, bjóðum við uppá eins árs áskriftir. Áskriftir koma svo í tveimur flokkum, vinir og fjöl­skylda, Lady vinur fær aðeins minna og fjöl­skyldu með­limur fær aðeins meira. Grunn­ur­inn er sá að í hverjum mán­uði gefum við með­limum 4-6 vörur/bjóra, með­limir fá að koma frítt á smakk session til okkar og fá að versla sér sér­stakt klippikort sem gildir sem allskyns inn­eign fyrir allskyns hluti. Þeir sem ger­ast fjöl­skyldu með­limir fá einnig að koma með gest með sér á smakk kvöldin, fá nýjan bjór sendan áður en hann kemur á markað og fá árlega veg­lega og óvænta leynigjöf sem getur birst með póst­send­ingu hvenær sem er. Við erum enn að forma allskyns og ef ég þekki okkur rétt þá eigum við eftir að bæta í þetta ein­hverjum skemmti­legum hug­myndum og vörum á leið­inni.“

Hér er hægt að taka þátt í Leyni­klúbb Lady og fjár­magna til­rauna­eld­húsið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár