Vonin sú að Góðar Fréttir nái jafn miklu vægi í samfélaginu og aðrir stórir fréttamiðlar

Hópur ungs fólks safnar nú á Karolina Fund fyrir nýjum frétta­miðli. Það stefnir á að byggja upp jákvæða umgjörð í kringum frétta­miðlun.

Bjarki Steinn Pétursson og Saga Yr Nazari
Bjarki Steinn Pét­urs­son og Saga Yr Nazari Mynd: Aðsend mynd

Góðar Fréttir er nýr frétta­mið­ill sem leggur áherslu á jákvæðan og hvetj­andi frétta­flutn­ing. Stofn­end­urnir eru parið Saga Yr Nazari og Bjarki Steinn Pét­urs­son en í dag sam­anstendur mið­ill­inn af 17 ungum frum­kvöðlum úr öllum kimum sam­fé­lags­ins. Teymið hefur sam­einað krafta sína og stefna nú á að byggja upp jákvæða umgjörð í kringum frétta­miðlun. Góðar Fréttir hafa sett upp Facebook og Instagram síðu þar sem almenn­ingur getur fylgst með en opin­ber vef­síða mið­ils­ins er einnig í bígerð. Safnað er fyrir verk­efn­inu á Karolina Fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Bjarki: „Við höfum bæði tak­markað okkur það veru­lega að horfa á fréttir og höfum gert það frekar lengi. Það er bara ein­hver þungi sem spilar svo stórt aðal­hlut­verk í frétta­flutn­ing sem við vildum forð­ast. Við vorum bara eitt­hvað að spjalla um þetta í heita pott­inum heima þegar Saga sagði hvað það væri snið­ugt ef það væri til frétta­mið­ill sem væri ein­ungis með jákvæðar fréttir. Við vorum bæði búin að vera hugsa þetta í hljóði í ein­hver ár en þarna kvikn­aði ljósa­peran: Afhverju græjum við þetta ekki bara?“

[adspot]

Saga: „Það er svo margt sem maður leyfir sér bara að hugsa um en fram­kvæmir ekki. Leynd­ar­málið á bak­við allar merkar upp­finn­ingar er fram­kvæmdin. Við höfum bæði unnið mikið í okkur síð­ast­liðin ár og verið í 12 spora sam­tökum sem ganga fyrst og fremst út á fram­kvæmd og að stíga inn í ótt­ann sinn. Það er dýr­mætasta vega­nesti sem ég hef fengið í líf­inu.“

Bjarki: „Það eru einmitt stoðin sem Góðar Fréttir eru byggðar á. Það skiptir öllu að hafa trú á sjálfan sig og vera með rétt stillt huga­far. Fréttir hafa ótrú­lega mikil áhrif á það hvernig við horfum á til­ver­una og hvers­konar huga­far við til­einkum okkur. Allt þarfn­ast jafn­vægis, ann­ars mynd­ast skekkja. Góðar Fréttir eru til þess knúnar að koma jafn­vægi á hlut­ina þannig að jafn mikið berst til fólks af “jákvæðum” tíð­indum og af „nei­kvæðum“ tíð­indum.“

Hvað er þema frétta­mið­ils­ins?

Saga: „Góðar Fréttir. Eins og Bjarki tal­aði um þá höfum við lengi hugsað um hvað það væri mikil snilld að hafa aðgang að íslenskum frétta­miðli sem væri bara jákvæður. Það er það sem við erum að gera. Við flytjum bara jákvæðar fréttir. Við ein­skorðum okkur samt ekki bara við léttar og húrr­andi kátar fréttir, heldur tökum við líka fréttir sem eru átak­an­legar en við leggjum áherslu á jákvæðu hlið­arnar t.d. það sem veitir inn­blástur, hvatn­ingu eða hug­hreyst­ingu.“

Hverju von­ist þið til að áorka með Góðum Fréttum?

Bjarki: „Okkar von er að Góðar Fréttir nái jafn miklu vægi í sam­fé­lag­inu og aðrir stórir frétta­miðlar. Öll sú tækni sem yngri kyn­slóðir og ókomnar kyn­slóðir alast upp við kallar á nauð­syn­lega breyt­ingu sem verður að eiga sér stað í upp­lýs­inga­miðlun. Það er sál­fræði­leg ástæða á bak­við „Click-Bait“ factor-inn og hvers vegna nei­kvæðar fréttir selj­ast svona vel. Ástæðan teng­ist frum­heil­anum okkar og hvernig við lifðum af sem stein­ald­ar­menn. Þeir sem voru með­vit­að­ari um hættur og var­ari um sig voru lík­legri til þess að lifa af. Það er tölu­vert minni þörf á þessu í dag en var í þá daga. Í raun er þörfin fyrir góðum skammti af jákvæðni og von orðin alvar­lega mikil. Heim­ur­inn okkar er stór­kost­legur staður og við lifum á sögu­legum tímum. Við viljum segja fólki frá því.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár