Hljómsveit sem fæddist í millibilsástandi er orðin að líflegu jaðarpopp-verkefni

Fyrsta breið­skífa Super­sport! er á leið­inni. Safnað er fyrir útgáfu hennar á Karolina Fund.

Super­sport! fædd­ist í ein­hvers konar milli­bils­á­standi í lífum með­li­manna haustið 2019, en sner­ist hratt og örugg­lega upp í fágað en líf­legt jað­ar­popp-verk­efni. Fyrsta stutt­skífa sveit­ar­innar, Dog Run EP, sem kom út á vegum lista­sam­lags­ins post-dreif­ingar í júlí sl., hefur hlotið góðar við­tökur, jafnt hjá tón­list­arunn­endum og í fjöl­miðlum, og var nú síð­ast til­nefnd til Kraumsverð­laun­anna 2020. Meðlimir Super­sport! eru Bjarni Daníel Þor­valds­son, Þóra Birgit Bern­ód­us­dóttir, Hugi Kjart­ans­son og Dagur Reykdal Hall­dórs­son.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Okkur hefur lengi langað til að taka upp vand­aða plötu í fullri lengd. Við erum öll búin að vera í hljóm­sveitum hér og þar síð­ustu ár, og höfum auk þess verið virkir þátt­tak­endur í lista­sam­lag­inu Post-dreif­ingu (hljóm­sveitir sem við höfum tekið þátt í eru m.a. bagdad brothers, Skoffín, Tucker Carlson’s Jonestown Massacre o.fl.). Verandi sjálf­stætt starf­andi höfum við öll þurft að vera nægju­söm í upp­töku­verk­efnum for­tíð­ar­innar, vinna með vinum okkar í skiptum fyrir lág­marks­greiðslur eða greiða­skipti, og jafnan hefur ekki gef­ist svig­rúm til að taka upp og vinna mikið efni í einu. Þess vegna eigum við öll á bak­inu nokkuð magn af smá­skífum og stutt­skífum, en höfum í raun­inni aldrei fengið tæki­færi til að taka upp heið­ar­lega breið­skífu.

[adspot]Í sam­komu­bann­inu í haust kom upp á borðið hjá okkur mögu­leik­inn á sam­starfi við upp­töku­stjór­ann Árna Hjörvar, sem hafði áður unnið með Bjarna að plötu Skoffíns “...hentar íslenskum aðstæðum”. Við ákváðum að slá til, og höfum þegar hafið upp­tökur! Það er ýmis­legt í eft­ir­vinnslu- og útgáfu­ferl­inu hjá okkur sem mun koma til með að vera nokkuð kostn­að­ar­samt, svo við brugðum á það ráð að leita á náðir nær­sam­fé­lags okkar, í von um að með þeirri hjálp gætum við loks­ins fjár­magnað plöt­una sem okkur hefur langað að gera svo lengi. Það var þá sem við höfðum sam­band við Karolina Fund - teymið og fengum að setja upp söfn­un­ar­síðu hjá þeim.“

Segið okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Stærsta þemað á þess­ari plötu er sam­starf. Upp­haf­lega, þegar við fórum inn í þetta verk­efni var hug­myndin að á hverju ein­asta lagi plöt­unnar yrðum við í sam­starfi við nýtt tón­list­ar­fólk. Það gekk ekki alveg hnökra­laust fyrir sig, en eftir stendur veg­legur listi af frá­bæru tón­list­ar­fólki sem var til í að hoppa inn í verk­efnið og hjálpa okkur að gera hljóð­heim plöt­unnar miklu rík­ari en okkur hefði getað tek­ist að gera ein og óstudd.

Sömu­leiðis hafa upp­töku­stjór­inn okkar, Árni, og tækni­mað­ur­inn, Dagur Kristinn, haft heil­mikil áhrif á skap­andi ferlið. Þeirra fram­lag hefur verið alveg ómet­an­legt og við erum mjög þakk­lát fyrir að hafa fengið tæki­færi til að vinna með svona hæfi­leik­a­ríku fólki.

Það er líka kannski ágæt­lega í takti við þessar sam­vinnu­hug­myndir að platan sé hóp­fjár­mögnuð! Þannig eru það aðstand­endur okkar, vinir, ætt­ingjar og aðdá­endur sem hjálpa okkur að gera hana að veru­leika, og sú sann­fær­ing okkar að allt sé hægt í krafti fjöld­ans hefur bara styrkst fyrir vikið.“

Hver er hug­myndin á bak­við verð­launin sem þið bjóðið styrkt­ar­mönnum ykkar upp á í skiptum fyrir áheiti á verk­efnið?

„Okkur lang­aði að bjóða upp fjöl­breytt úrval af verð­launum og hvetja fólk þannig til að styrkja eins mikið eða lítið og það ræður við. Með því að velja lægsta þrepið færðu frítt nið­ur­hal af plöt­unni, en með því að velja það hæsta, bjóðum við þér í mat­ar­boð, og þú færð að auki einkatón­leika og ýmsan varn­ing. Þess á milli er allur fjöld­inn af mis­mun­andi verð­launum í boði.

Við vildum leggja áherslu á verð­laun sem er ekki bein­línis hægt að meta til fjár - til dæmis einkatón­leik­ana og geisla­diska í heima­gerðum umslögum. Við teljum að þannig getum við gefið styrkt­ar­fólki plöt­unnar eitt­hvað ein­stakt sem skilur eftir sig fal­legar minn­ingar.“

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár