Búið að fjármagna útgáfu spilsins þar sem leikendur eru með þingmenn í vasanum

Þing­maður Pírata er þegar búinn að ná að safna nægi­legri upp­hæð á Karolina Fund til að gefa út Þingspilið. Söfnunin er þó enn í gangi, og ef það næst að safna meira, þá verður útgáfan veg­legri.

Jón Þór Ólafsson þing­maður Pírata hefur skapað spil, Þingspilið, sem byggir á reynslu hans við að starfa á Alþingi þar sem leik­menn geta spilað for­mann flokks á þingi sem kepp­ist við að koma sem flestum þing­mönnum í eigin vasa. Í spil­inu er til að mynda hægt að styðja við mál­efni, setja lög­bann á hneyksl­is­mál og stinga svo hina for­menn­ina í bakið. Jón Þór hefur safnað fyrir útgáfu spils­ins á Karolina Fund og þeirri söfnun lýkur um kom­andi helgi.

Þegar hefur safn­ast um 120 pró­sent af þeirri upp­hæð sem þarf til að spilið fari í fram­leiðslu, en til þess þurfti að safn­ast [adspot]yfir fimm þús­und evrur, 805 þús­und krónur. Alls hafa safn­ast yfir sex þús­und evrur, eða tæp­lega milljón krónur.

Náist að safna 150 pró­sent af umbeð­inni upp­hæð munu allir bunkar spila í Þingspil­inu koma í hágæða spila­kassa. Náist að safna yfir 200 pró­sent af því sem óskað var eftir, um 1,6 milljón króna, verða spilin sjálf upp­færð og prentuð á hágæða pappír.

Spilinu er lýst sem leik fyrir fólk sem þolir ekki spill­ingu, nema það fái að spila með.

Jón Þór segir að hann hafi lengi hugsað um leiðir til að leikja­væða stjórn­málin og eftir að Gísli Ein­ars­son, eig­andi spila­versl­un­ar­innar Nexus, benti honum á að vin­sæl­ustu spilin í búð­inni væru partý spil, sem væru fljót­lærð, fljót­spiluð og skemmti­leg, þá small hug­myndin saman.

Spilið er korta­spil sem passar í rassvas­ann og hægt að setja það upp og byrja að spila á innan við mín­útu. Það er gert fyrir 3-8 spil­ara 14 ára og eldri og tekur 15-30 mín­útur ef spil­aðar eru tvær umferðir. „Þingspilið varð til í hita­móki eina des­em­ber nótt fyrir rúmu ári. Fyrri hug­myndir höf­undar um stjórn­mála­spil röð­uð­ust svo inn í partý­spila ramman í hita­mókinu.“

Fyrsta hönn­unin var unnin í síð­asta jóla­fríi Jóns Þórs frá Alþing­is­störfum. Spilið skrif­aði sig svo eig­in­lega sjálft, að sögn Jóns Þórs, þegar farið var yfir stjórn­mála­sög­una í skop­myndum Halldórs Bald­urs­sonar, sem birt­ast í Frétta­blað­inu. „Halldóri fannst hug­myndin góð og gaf grænt ljós á að gera spilið. Formenn flokk­anna á þingi sáu svo sitt spil og var skemmt. Einn sagði höf­und ekki alslæman, annar vildi sjálfu af sér með höf­undi og enn annar bað um að sjá hin „For­manna­spilin“ og var sáttur við sam­an­burð­inn.Þema spils­ins er að spila stjórn­málin síð­ustu ára í gegnum skop­myndir Halldórs Bald­ur­sonar. Þetta er eins og að spila Ára­mótaskaupið.“

Hér er hægt að taka þátt í fram­leiðslu spils­ins og kaupa ein­tak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár