Sjónrænt og segulmagnað skipulag fyrir börn með einhverfu

Safnað fyrir umhverf­is­vænni og fal­lega lausn á sjón­rænu skipu­lagi fyrir ein­hverf börn þar sem búldu­leitar fígúrur eru hand­mál­aðar á 100% nátt­úru­lega við­ar­segla.

Sjónrænt skipu­lag hefur hjálpað börnum og full­orðnum um allan heim með því að brjóta dag­inn niður í smærri ein­ingar og sýna heild­ar­mynd­ina á skýr­ari hátt. Emoti­blots her­ferðin, sem nú er safnað fyrir á Karolina Fund, gengur út á að kynna nýja hug­mynd af sjón­rænu skipu­lagi til að auð­velda for­eldrum og aðstand­endum lífið. Um ræðir umhverf­is­væna og fal­lega lausn þar sem búldu­leitar fígúrur eru hand­mál­aðar á 100% nátt­úru­lega við­ar­segla.

Zita Major, sem stendur að verk­efn­inu ásamt Peter Garajszki, segir að hug­myndin að því hafi kviknað eftir að átta ára sonur þeirra, Aron, hafi greinst með ein­hverfu. „ Þá runnu á okkur tvær grímur. Fyrstu köstin hans þriggja ára, voru allt í einu ekki lengur vegna afbrýði­semi gagn­vart nýfæddri systur hans, Hönnu. Heldur vegna óör­ygg­is­ins sem því fylgdi eftir að áhersla heim­il­is­ins færð­ist frá honum og hans rútínu. Það eitt getur verið erfið lífs­reynsla fyrir ein­hverf börn. Þá hófst upp­haf Emoti­blots™ skipu­lags­spjald­anna sem ég gerði fyrir hann svo hann fyndi fyrir öryggi og gleði. [adspot]Með spjöld­unum varð dags­skipu­lagið ein­falt. Í dag eru yfir 80 mis­mun­andi spjöld (bæði fyrir til­finn­ingar og skipu­lag) sem hafa hjálpað fleiri en 1000 börnum og gert þeim kleyft að vera ham­ingju­sam­ari og stærri hluti af heild­ar­mynd­inni. Eftir nokkurn tíma reyndum við okkur áfram í end­inga­betri lausn og þá urðu segl­arnir til.“

Zita segir að segl­arnir séu vand­aðir, fal­lega hann­aðir og spari for­eldrum mik­inn tíma. „Segl­arnir eru mun end­ing­ar­betri en spjöldin og geta borist á milli kyn­slóða. For­eldrar barna með ein­hverfu eru ofur­hetjur en allar ofur­hetjur þurfa aðstoð á ein­hverjum tíma­punkti. Okkar mark­mið er að vera þessum meist­urum til aðstoðar í að búa til áreynslu­lausa dag­skrá fyrir börnin svo hægt sé að ein­beita sér að stund­unum sem veita ánægju.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina

FólkKarolina

Karolina Fund: Vilja létta fátækum konum í Keníu lífið

Tveir Íslend­ingar og þrír Ken­íu­búar vinna nú að hjálp­ar­starfi við inn­fædda í Keníu. Hópurinn hefur meðal ann­ars hafið hóp­fjár­mögnun fyrir verk­efnið á www.Karolinafund.com og til­gang­ur­inn er að létta blá­fá­tækum konum í sveitum Keníu lífið með því að sjá þeim fyrir vatns­tunnu­börum. Kjarninn ræddi við Pétur Ein­ars­son, fyrr­ver­andi flug­mála­stjóra og einn aðstand­enda verk­efn­is­ins, þar sem hann var staddur í Kenía við...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár