Jóhanna Seljan gefur út Seljan

Lítið þekkt tón­list­ar­kona á fer­tug­asta og öðru ald­ursári safnar fyrir útgáfu fyrstu plötu sinnar með eigin efni á Karolina Fund.

Jóhanna Seljan Þór­odds­dóttir sat með kaffi­bolla við eld­hús­borðið á heim­ili sínu á Reyð­ar­firði að morg­un­lagi snemma árs í fyrra og spurði sjálfa sig nokk­urra hrein­skil­inna spurn­inga. Á lítið þekkt tón­list­ar­kona á fer­tug­asta og öðru ald­ursári að ráð­ast í að gefa út plötu með sínu eigin efni? Hefur téð kona eitt­hvað sér­stakt fram að færa? Þorir hún að taka þennan slag? Á meðan kaffið kóln­aði í boll­anum var spurn­ing­unum svarað ját­andi og ákvörð­unin tekin. Árið 2020 skyldi koma út plata og Jóhanna valdi að safna fé til útgáf­unnar á Karolina Fund.

Hvernig kviknaði hugmyndin að plötunni?

„Hug­myndin kvikn­aði fyrst árið 2007. Þá hafði ég verið að semja texta árum saman og var farin að semja lög líka. Full af eld­móði hljóð­rit­aði ég töku­lag með eigin texta í jan­úar 2008. Ég var stað­ráðin í að halda áfram að taka upp og gefa út plötu en líf mitt tók miklum stakka­skiptum þetta ár og næstu árin sem á eftir fylgdu.

[adspot]Ég var þó alltaf á kafi í tón­list, dug­leg að koma fram og hélt áfram að semja. Árið 2016 fór ég að finna fyrir gríð­ar­lega mik­illi þrá til að koma efn­inu mínu frá mér og sú til­finn­ing ágerð­ist þar til ég tók ákvörðun um að mín fyrsta sóló­plata, Seljan, kæmi út árið 2020.“

Segðu okkur frá þema plötunnar?

„Text­arnir á Seljan fjalla um mann­lega hegðun og til­finn­ingar á borð við ein­mana­leik­ann, ást­ina, eft­ir­sjá og þá stað­reynd að við erum öll bara mann­leg, með þeim kostum og göllum sem því fylgir. Lögin sjálf eru frekar fjöl­breytt og á plöt­unni er hægt að finna bræð­ing af blús, djass og rokki.“

Hvernig hefur undirbúningsferlið gengið?

„Það hefur verið bæði skemmti­legt og krefj­andi. Að semja texta og koma honum niður á blað er eitt­hvað sem er mér frekar eðl­is­lægt. En það sama á ekki við um lögin þar sem ég spila ekki á hljóð­færi og les illa nótur. Ég þarf því að hafa mikið fyrir að koma lög­unum úr koll­inum á mér og yfir á það form sem hljóð­færa­leik­arar geta lesið. Ég er afar lánsöm að þekkja dásam­legt fólk sem hefur gott tón­eyra og mikla þol­in­mæði sem kemur sér vel þegar ég reyni að útskýra hljómana sem mig langar til að nota án þess að geta sagt hvað þeir heita. Þessi tak­mörkun mín styrkir bara sjálfs­bjarg­ar­hvöt­ina og gerir mig ennþá ein­beitt­ari í að semja lög. Stærsta hindr­unin sem ég þurfti að takast á við var hræðsla mín við að vera ber­skjölduð. Það er eitt að standa uppi á sviði og syngja ann­ara manna lög, allt annar hand­leggur að syngja eigið efni þegar maður er alsendis óvanur því. En ég elska að syngja, koma fram og skapa og sú löngun og þrá er marg­falt sterk­ari en allur ótti. Ég hlakka ólýs­an­lega mikið til þegar platan kemur út í haust, þá má líka segja að rúm­lega 12 ára ferli sé lokið og stórum áfanga náð.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina

FólkKarolina

Karolina Fund: Vilja létta fátækum konum í Keníu lífið

Tveir Íslend­ingar og þrír Ken­íu­búar vinna nú að hjálp­ar­starfi við inn­fædda í Keníu. Hópurinn hefur meðal ann­ars hafið hóp­fjár­mögnun fyrir verk­efnið á www.Karolinafund.com og til­gang­ur­inn er að létta blá­fá­tækum konum í sveitum Keníu lífið með því að sjá þeim fyrir vatns­tunnu­börum. Kjarninn ræddi við Pétur Ein­ars­son, fyrr­ver­andi flug­mála­stjóra og einn aðstand­enda verk­efn­is­ins, þar sem hann var staddur í Kenía við...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár