Vísindaskáldsagan um Bananagarðinn

Banana­garð­ur­inn eftir Eggert Gunn­ars­son er í hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund.

Þær gleði­fréttir bár­ust höf­undi vís­inda­skáld­sög­unnar The Banana Garden (Banana­garðs­ins) fyrir nokkrum vikum að Olympia Publ­is­hing í London vilji gefa hana út. Þetta er fyrsta skáld­saga höf­und­ar­ins, Eggerts Gunn­ars­sonar, sem hefur nú skrifað undir samn­ing­inn við útgef­end­urna og mun bókin verða gefin út sem kilja og e-bók á vor- eða sum­ar­mán­uðum 2020.

Hefðin í alþjóð­legri útgáfu þessa dag­ana er sú að þeir höf­undar sem eru að stíga sín fyrstu skref og eru ekki með umboðs­mann eru beðnir að leggja til hluta kostn­að­ar­ins við útgáf­una og þess vegna safnar Eggert fyrir útgáf­unni á Karolina Fund.

Eggert er kenn­ari/kvik­mynda­gerð­ar­maður við The Centre for Social and Creative Media sem er rann­sókn­ar­setur við háskól­ann í Goroka í Papúa Nýju-Gíneu. Þau laun sem hann þiggur fyrir það starf gefa honum ekki svig­rúm til að leggja sjálfur, óstuddur, til það sem til þarf og þess vegna fer hann þessa leið til að láta draum­inn ræt­ast.

[adspot]Eggert er vel þekktur sem upp­töku­stjóri, leik­stjóri og fram­leið­andi af allra handa sjón­varps­efni. Hann vann við Stundina okkar sam­fleytt í 13 ár. Þegar Björgvin Franz Gíslason var umsjón­ar­maður árið 2005 unnu þeir Edduna fyrir besta barna­efnið.

Frá 2006 rak hann sitt eigið fyr­ir­tæki, Imma ehf, sem fram­leiddi heim­ild­ar­myndir um lista­fólk sem vakti áhuga Eggerts, ódýr tón­list­ar­mynd­bönd og tón­list­ar­þætti. Árin 2014, 2015 og 2016 fram­leiddi hann og leik­stýrði þátta­röð­inni‚ Ævar vís­inda­maður sem Ævar Þór Bene­dikts­son skrif­aði og sá um. Allar átta þátt­arað­irnar unnu Edduna.

Árið 2016 söls­aði Eggert alger­lega um og flutti til Papúa Nýju-Gíneu þar sem hann tók við sjón­varps­stjóra­stöðu (Head of News, Sport and Production) við TVWAN sem er í eigu írska síma­fyr­ir­tækis Digicel. Þegar því starfi sleppti hóf hann störf við háskól­ann í Goroka og vinnur þar fyrir rann­sókn­ar­setur við gerð heim­ild­ar­mynda.

Stormar um það bil að skella á

Vís­inda­skáldsagan Banana­garð­ur­inn ger­ist ekki í fjar­lægri fram­tíð en þó það langt inn í fram­tíð­ina að áhrif hlýn­unar jarðar, slæm með­ferð auð­linda og lofts­lags­breyt­ingar almennt eru farin að hafa áhrif á dag­legt líf fólks. Þegar sagan hefst eru stormar um það bil að skella á um allan hnött­inn. Veðra­kerfin eru svo öflug að til­vist manns­ins er ógnað. Stjórn­kerfi fara úr skorðum bæði af völdum veð­urofs­ans og inn­grips óprútt­inna manna.

Þessa við­burði sjáum við með augum Adrian Charles sem var hug­mynda­smiður bresku rík­is­stjórn­ar­innar. Hann fer í felur með yfir­manni BBC sem sett hefur á fót sjó­ræn­ingja­stöð sem yfir­tekur útsend­ingar rík­is­reknu stöðv­ar­innar sem hefur verið rit­skoðuð um nokk­urt skeið.

Í sam­ein­ingu tekst þeim að senda út og segja áhorf­endum frá því sem í raun er að ger­ast. Áhöfnin á alþjóð­legu geim­stöð­inni Rama hefur sam­band við stöð­ina. Frá geim­stöð­inni hafa vís­inda­menn­irnir sem þar dvelja góða yfir­sýn yfir það sem á sér stað á jörðu niðri. Vís­inda­menn­irnir færa einnig fréttir af áður óþekktum verum sem nú hafa afskipti af því sem er að ger­ast.

Þegar kraftar fyrstu stormanna drag­ast saman hafa ver­urnar sam­band og upp­bygg­ing hefst. Það ríkir óvissu ástand og fyr­ir­ætl­anir ver­anna ekki ljósar.

Eggert segir Banana­garð­inn fjalla um mál­efni sem við stöndum frammi fyrir nú þegar. Í gegnum sög­una veltir hann fyrir sér hugs­an­legri nið­ur­stöðu vegna aðgerð­ar­leysis núver­andi ráða­manna og vefur þessum vanga­veltur inn í stíl vís­inda­skáld­sagna. Gest­irnir sem áður var minnst á höfðu fylgst með atburðum á jörð­inni um nokk­urt skeið og þó að það sé ekki strax ljóst hafa heim­sóknir þeirra í gegnum ald­irnar haft áhrif á þá jarð­ar­búa sem hafa séð þá þó að heim­sókn­irnar hafi aldrei verið lang­vinnar.

Efnahagskerfi sem gengur ekki upp

Eggert segir að það sé nokkuð erfitt að segja til um hvernig hug­myndin hafi kviknað. „Ég hef alltaf haft áhuga á skrifum og þegar ég hef haft tíma und­an­farin ár hef ég skrifað prósa um það sem mér dettur í hug. Er frá leið sá ég að það sem ég hafði verið að skrifa og hélt að væri textar um nokkuð óskylt efni voru í raun­inni textar sem flestir voru af svip­uðum meiði. Þegar ég tók eftir þessu fór ég að tengja hugs­un­ina sem var gegn­um­gang­andi og úr varð þessi vís­inda­skáld­saga. Saga tvinnar saman áhuga minn á umhverf­is­málum og þann draum að skrifa loks­ins skáld­sögu… og hér er hún.“

[adspot]Þema verks­ins er, að sögn Eggerts, það að hann á mjög erfitt með að skilja hvers vegna við, mann­kynið, séum enn árið 2020 að berj­ast við það að skilja að það efna­hags­kerfi sem við búum við gengur ekki upp. „Fram­leiðslan er gríð­ar­leg, svo og neyslan og gróði þeirra sem fram­leiða er mjög mik­ill. Á hinn bóg­inn er rusla­haug­ur­inn sem af þessu skap­ast að drekkja okkur og fátækt stórs hluta þeirra sem búa á þessum hnetti er að aukast og verða sár­ari með degi hverjum.

Varðandi umhverf­is­mál hefur mér oft dottið í hug að bera það saman að reka venju­legt fjöl­skyldu heim­ili þar sem við kaupum inn, við eldum, notum allra handa vörur og pakkn­ingar sem þarf að losna við en heim­ilið hefur enga leið til að losna við úrgang­inn. Hús okkar yrðu fljótt þannig að ekki væri hægt að búa í þeim. Á margan hátt er það sama að ger­ast í heim­inum. Við fram­leiðum og neytum en gefum því engan gaum að úrgang­ur­inn er mengun sem er að koma okkur í mik­inn bobba.“

Aðspurður um af hverju Banana­garð­ur­inn eigi erindi nú segir Eggert það vera vegna þess að við séum öll búsett á sömu plánet­unni og, að því aðvið best vitum, er ekki hægt að flytj­ast héðan að sinni. „Sú stað­reynd að rann­sóknir sem bentu til þess hvert stefndi voru gerðar kunnar rétt um og eftir 1970. Það eru því komin góð 50 ár síðan hægt var að fara að bregð­ast við en leið­togar okkar og við sem veljum þá hafa að stórum hluta ákveðið að grafa haus­inn í sand­inn hvað þetta varðar og láta reka á reið­anum.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina

FólkKarolina

Karolina Fund: Vilja létta fátækum konum í Keníu lífið

Tveir Íslend­ingar og þrír Ken­íu­búar vinna nú að hjálp­ar­starfi við inn­fædda í Keníu. Hópurinn hefur meðal ann­ars hafið hóp­fjár­mögnun fyrir verk­efnið á www.Karolinafund.com og til­gang­ur­inn er að létta blá­fá­tækum konum í sveitum Keníu lífið með því að sjá þeim fyrir vatns­tunnu­börum. Kjarninn ræddi við Pétur Ein­ars­son, fyrr­ver­andi flug­mála­stjóra og einn aðstand­enda verk­efn­is­ins, þar sem hann var staddur í Kenía við...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár