Karolina Fund: Vilja létta fátækum konum í Keníu lífið

Tveir Íslend­ingar og þrír Ken­íu­búar vinna nú að hjálp­ar­starfi við inn­fædda í Keníu. Hópurinn hefur meðal ann­ars hafið hóp­fjár­mögnun fyrir verk­efnið á www.Karolinafund.com og til­gang­ur­inn er að létta blá­fá­tækum konum í sveitum Keníu lífið með því að sjá þeim fyrir vatns­tunnu­börum.

Kjarninn ræddi við Pétur Ein­ars­son, fyrr­ver­andi flug­mála­stjóra og einn aðstand­enda verk­efn­is­ins, þar sem hann var staddur í Kenía við hjálp­ar­störf.

Hvað eru þið þessir Íslend­ingar að gera í Kenía?

„Ég var hér fyrir 20 árum í nokkrum ráð­gjafa­verk­efnum í um fimm ár. Ég kynnt­ist þá vel Keníu, Úganda og Tansaníu. Mig hefur alltaf langað að koma aftur til Austur-Afríku. Síð­ast­liðið haust varð það að veru­leika því gam­all kunn­ingi minn Guð­mundur Þór Þor­móðs­son bauð mér til sín. Hann hefur verið að vinna að ýmsum verk­efnum í Keníu und­an­farin fjögur ár. Meðal ann­ars hefur hann verið þáttak­andi í jarð­hita­verk­efnum. Þegar ég kom til Keníu kynnt­ist ég Jóni Búa Guð­laugs­syni jarð­hita­verk­fræð­ingi sem hefur verið í Austur-Afríku við störf að jarð­hita­málum síð­ustu fjögur árin.

Íslend­ingar hafa verið umfangs­miklir í jarð­hita­málum í Austur-Afríku og liggja þar stór­kost­legir mögu­leikar og hags­munir fyrir Íslend­inga. Þá er ljóst að beislun jarð­hita er for­gangs­mál í að bæta lofts­lag jarð­ar­innar því jarð­hit­inn er sjálf­bær og mengar ekki og lík­lega er það besta þró­un­ar­að­stoðin sem við Íslend­ingar getum veitt.

Ég hef einnig verið að nýta tím­ann hér til þess að sér­hæfa mig sem lög­fræð­ingur í jarð­hita­málum. Það hef ég verið að gera bæði af áhuga og vegna þess að mér er ekki kunn­ugt um að Íslend­ingar eigi neinn slíkan sem einnig hefur góða þekk­ingu á Austur-Afríku. Ég held að það sé brýn þörf á þannig þekk­ingu fyrir Íslend­inga ef vel á til að takast með þátt­töku okkar í því stór­kost­lega alþjóð­lega átaki sem framundan er á þessu svæði á næstu árum í beislun jarð­hita.

Við þrír, sem sagt, hitt­umst og úr kunn­ingja­spjalli kom fram að við allir höfðum hug á að láta gott af okkur leiða í Keníu. Fátækt er sorg­leg á mörgum svæðum, einkum þó í sveitum Keníu. Nú, til að gera langa sögu stutta þá ákváðum við að ná saman hóp með okkur inn­an­borðs til þess að hefja starf til þess að hjálpa fátækum konum, mæðrum, til þess að hjálpa sér sjálfar með því að lána þeim eða gefa verk­færi. Þeir félag­arnir þekktu ágætis fólk í Keníu sem var til­búið til þess að taka þátt í verk­efn­inu. Þau þrjú sem með okkur eru í hópnum frá Keníu eru öll áhrifa­mann­eskjur hér­lendis. Monicah er náin for­seta lands­ins, Benjamin er áhrifa­maður í sveit­ar­stjórn­ar­málum og Ruth er bráð­fl­ink í skipu­lagn­ingu og dreif­ingu.“

Af hverju völduð þið vatns­tunnu­börur?

„Jú, það var vegna þess að fram­an­greindir kunn­ingjar mínir þekkja til þess­arar fram­leiðslu og hafa verið að þróa og hanna end­ur­bætta útgáfu á vatns­tunnu­börum. Þær eru kall­aðar hér Rural Water Rollers og voru upp­runa­lega hann­aðar í Suður-Afríku. En end­ur­bætta útgáfan ber ekki aðeins vatn heldur margt annað.

Við komumst að þeirri nið­ur­stöðu að besta hjálpin væri að létta störf kvenna, mæðra, í sveitum Kenía en þeirra dag­lega starf ein­kenn­ist af linnu­lausum þræl­dómi frá morgni til kvölds. Vatns­burður er snar þáttur þar en við bæt­ist burður á eldi­við, upp­skeru, börnum og margs­konar aðdrætti til heim­ilis. Daglegur þvottur, mat­ar­gerð og ummönnun barna og fjöl­skyldu bæt­ist þar við – já og ekki má ég gleyma vinnu á ökrunum.“

Hvernig ætlið þið að fjár­magna hjálp­ar­starf ykkar?

„Hópurinn ákvað að byrja fjár­mögn­un­ar­fram­kvæmdir með hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund. Vegna þess vil ég hvetja alla góð­vilj­aða Íslend­inga til þess að leggja sitt af mörkum með því að taka þátt. Í stað­inn fyrir fram­lag sitt eign­ast styrkt­ar­að­ilar vatns­tunnu­börur með nafni sínu árit­uðu á, sem þeir lána fátækri konu, móður, í Keníu.

Þá höfum við haft sam­band við ýmis hjálp­ar­sam­tök í Keníu og Úganda sem hafa áhuga á að styrkja fram­tak okkur um að hjálpa mæðrum til sjálfs­bjargar og hafa und­ir­tektir verið mjög góðar svo hóp­ur­inn er von­góður um fram­tíð verk­efn­is­ins.

Í vinnslu er að þróa vatns­tunnu­bör­urnar í að vera þvotta­vél og einnig að gera þær þannig úr garði að þær geti hlaðið upp raf­magn. Þá er verið að vinna að þróun á meng­un­ar­lít­illi eld­un­ar­að­stöðu og stöðl­uðum sal­ernum, en ófull­nægj­andi sal­erni eru eitt af alvar­legu vanda­mál­unum.“

Það er margt framundan hjá ykkur?

„Já, það má segja, en hóp­ur­inn er sam­hentur og bjart­sýnn. Við vitum að allt tekur tíma og þraut­seigju en við trúum því að við séum að gera gott með því að létta störf með tækjum, já, og höfum séð með eigin augum gleði þeirra mæðra sem nú þegar hafa fengið vatns­tunnu­börur.

Manni hlýnar um hjarta­rætur við að heyra þiggj­and­ann segja: Það hefur aldrei nokkur maður gefið mér neitt, Guð blessi þig og þá sem að þessu standa – einss og Mary sagði þegar henni voru afhentar vatns­tunnu­börur."

Hægt er að skoða verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár