Gerði garðinn frægan með Jet Black Joe en gefur nú út plötu frá hjartanu

Sigriður Guðna­dóttir/Sigga Guðna gefur út nýja plötu sem heitir „Don´t cry for me“ en hún safnar nú fyrir útgáfu hennar á Karolina Fund.

Sigríður Guðna­dóttir, eða Sigga Guðna, gerði garð­inn frægan með hljóm­sveit­inni Jet Black Joe og sínum tíma og er nú að gefa út sína aðra plötu.

Fyrsta smá­skífan er komin út á Spotify og Youtube og er það titil lagið „Don´t cry for me“. Það verður svo á breið­skífu sem kemur út 16.októ­ber 2020, og verða þá einnig útgáfu­tón­leikar í Bæjarbíó og er hægt að nálg­ast miða á þá á Tix.

Einnig er hún búin að stofna síðu á Karolina Fund og þar getur fólk styrkt verk­efnið og fengið fyrstu útgefnu geisla­disk­ana, miða á tón­leika og fleira góm­sætt.

[adspot]Platan er tekin upp í Stúdíó Paradís og upp­töku­stjóri er Jóhann Ásmunds­son. Jóhann sér um útsetn­ingar ásamt Sig­ur­geir Sig­munds­syni og Þóri Úlf­ars­syni. Ofan­greindir sjá einnig um að spila á plöt­unni á bassa, gítar og píanó/orgel. Auk þeirra eru á trommum Birgir Nielsen og Ásmundur Jóhanns­son. Íris Guð­munds­dóttir sér um útsetn­ingu radda og syngur raddir, en raddir syngur einnig Grétar Lárus Matth­í­as­son. Páll Rósinkranz syngur með Siggu á disknum í einu lagi og kemur fram á tón­leiknum ásamt fleiri góðum söngv­urum.

Sigga segir að hún hafi lengi haft löngun til að gera meira í tón­list. „Eftir að hafa haldið tón­leika með þessum hópi sem kemur að plöt­unni á síð­asta ári þá fóru pæl­ingar af stað um að gefa út nýtt efni. Ég er að taka lög eftir mig á þess­ari plötu og einnig eftir fleiri frá­bæra Íslenska höf­unda. Svo verða alla­vega tvær vel valdar ábreiður.“

Hún seg­ist hafa farið af stað í verk­efnið með það í huga að gera það með hjart­anu. „Ég get ekki alveg skil­greint þetta sem eitt­hvað þema enda er tón­listin fjöl­breytt á plöt­unni og held ég að fólk eigi eftir að líka við það sem það heyrir.

Ég er ótrú­lega þakk­lát að hafa tæki­færi á að vinna með frá­bæru tón­list­ar­fólki að gerð plöt­unnar, enda valin maður/kona í hverju hlut­verki.“

Sigga vonar að það skili sér til þeirra sem hlusta.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu hennar Siggu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár