Svíður óréttlætið sem mætir flestum þolendum alvarlegra atvika

Auðbjörg Reyn­is­dóttir safnar nú fyrir bók­inni Stærri en ban­væn mis­tök á Karolina­fund en hún gekk sjálf í gegnum erf­iða tíma í kjöl­far afleið­inga lækna­mistaka. Hún segir frá því í bók­inni hvernig henni tókst að vinna úr áfall­inu.

Auðbjörg Reyn­is­dóttir er hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem hefur aflað sér þekk­ingar á öryggi sjúk­linga víða um heim. Hún segir að alvar­leg atviki í heil­brigð­is­þjón­ust­unni á Íslandi hafi markað djúp spor í reynslu­banka hennar eins og hún fer yfir í bók­inni Stærri en ban­væn mis­tök, sem hún safnar nú fyrir á Karolina­fund.

„Í bók­inni fer ég yfir rann­sókn Embættis land­læknis á fjórum málum innan fjöl­skyld­unnar, þó sér­stak­lega and­lát sonar míns. Auk þess nefnir ég nokkur önnur mál sem hafa verið í opin­berri umræðu og farið í gegnum stjórn­sýsl­una eða dóm­stóla. Þetta er allt fólk sem ég þekki per­sónu­lega. Að vera hjúkr­un­ar­fræð­ingur í þess­ari stöðu gefur efn­inu ein­stakt næmni og sér­staka inn­sýn sem setur mark sitt á efn­is­tökin,“ segir hún.

Sonur Auð­bjargar lést eftir mis­tök og kærði hún málið til land­læknis sem stað­festi það, en við­brögðum spít­al­ans er einnig lýst í bók­inni.

„Mér svíður órétt­lætið sem mætir flestum þolendum alvar­legra atvika og er knúin áfram að þeirri hug­mynd að rétta hlut þeirra og vera hjálp­ar­hönd fyrir þá sem vilja það. Það er skylda mín sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur og þjóð­fé­lags­þegn.“

Hún lýsir því í bók­inni hvernig henni tókst að vinna sig út úr áfall­inu. Hún segir að sú leið hafi verið grýtt en lær­dóms­rík og hjálpi það ef til vill mörgum sem eru að ganga í gegnum óbæri­lega tíma. Á því ferða­lagi hafi hún leitað í stuðn­ing víða og lesið sig til um við­brögð og úrvinnslu alvar­legra atvika. Sú þekk­ing sem safn­ast hefur í sarp­inn fyllir bók­ina og vef­síð­una öðrum til hjálpar, að sögn Auð­bjargar. Með stuðn­ing við verk­efnið verður bókin gefin út sem raf­bók til að byrja með. Vefsíðan audbjorg.com mun halda áfram og byrjað er að und­ir­búa frekara fræðslu­efni til lengri tíma. Bókin nýt­ist enn fremur sem kennslu­bók í öryggis sjúk­linga í heil­brigð­is­vís­indum. Eldri sonur hennar, Sindri Gautur er vef­stjóri síð­unnar.

Hvar og hvenær kvikn­aði hug­myndin að bók­inni?

„Á tveggja mán­aða ferða­lagi til Afríku árið 2016, með stofn­endum ABC barna­skól­ans í Bobo Dioulasso í Burkina Faso, las ég bók um alvar­leg atvik í Banda­ríkj­unum. Það kveikti hug­mynd­ina að skrifa mín eigin sögu. Við skrift­irnar, lestur sjúkra­skrár, lestur bóka og að sækja ráð­stefnur um mál­efni bætt­ist fróð­leikur og viska sem stækk­aði verk­efnið meira en svo að það kom­ist allt fyrir í bók.

Titill bók­ar­innar „Stærri en ban­væn mis­tök“ vísar í skila­boðin og nið­ur­stöðu mínar eftir þessa veg­ferð. Þau fel­ast í við­horfi mínu í dag um að engin breyt­ing verður á öryggi sjúk­linga eða örygg­is­menn­ing­unni eins og það er oft kallað fyrr en sjúk­lingar og starfs­menn geta horfst í augu við þessi alvar­legu atvik, við­ur­kennt þau og verið sam­mála um að takast á við þau með auð­mýkt og sam­vinnu. Þetta eru oft það alvar­leg slys að þau rústa lífi fjöl­skyld­unnar en það er hægt að halda áfram, læra og koma í veg fyrir að þau end­ur­taki sig.“

Auðbjörg segir að eng­inn vilji lenda í þessu né verða valdur af því að slíkt ger­ist. Samvinna sé lyk­ill­inn að fram­förum. Söfnunin gefi því öllum tæki­færi á að vera með, styðja það að breyt­ingar verði öllum til góðs. „Ef les­andi býr yfir reynslu og heil­ræðum til ann­arra þá er vel­komið að hafa sam­band og finna flöt á að koma þeirri reynslu á fram­færi á vef­síð­unni.“

Markmið Auð­bjargar er að efla sjúk­linga og starfs­menn til að taka stöðu sína, bæta sam­skipti og þar með bylta örygg­is­menn­ing­unni. Gera þeim kleift að efla sig í eigin öryggi. „Það er ekki nóg að fag­fólk geri það ein­hliða. Sjúk­lingar þurfa að leggja sitt af mörkum. Fagfólk verður að hlusta og heyra það sem sjúk­lingar upp­lifa þegar alvar­leg atvik verða. Þau verða að sjá hvaða áhrif þetta hefur á lífið. Það er svo mik­il­vægt að rödd sjúk­linga heyr­ist en til þess þarf mik­inn kjark, bæði að tjá sig og að hlusta á erf­iðar sögur. Í Noregi fjalla fjöl­miðlar gjarnan um svona mál bæði út frá ger­anda og þol­anda, ég tek dæmi um slíkt enda er það besta leiðin til að almenn­ingur geti skilið hvað er þarna á ferð­inni,“ segir hún.

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár