Vertu sjálffræðingur

Áshildur Hlín Val­týs­dóttir og Sólveig Helga­dóttir gefa út ný íslensk styrk­leika­spil og safna fyrir útgáf­unni á Karolina Fund.

Áshildur Hlín Val­týs­dóttir og Sólveig Helga­dóttir eru ACC mark­þjálfar sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa mik­inn áhuga á sjálfs­vinnu með ungu fólki, sér í lagi með styrk­leika­skoðun. Þær hafa báðar umtals­verða reynslu af mark­þjálfun með þessum hóp og hafa nú gefið út ný styrk­leika­spil til að nýta í ein­stak­lings­mark­þjálfun, hópa­vinnu og í raun hvers kyns vinnu með styrk­leika. Þær stöllur hafa sett upp Facebook síðu utan um verk­efnið, en safnað er fyrir útgáfu­kostn­aði á Karolina Fund.

Kjarninn hitti Áshildi og Sólveigu og tók þær tali.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Fyrir nokkrum árum, þegar við vorum að byrja að mark­þjálfa, vorum við með styrk­leika­spil sem okkur fannst svo sniðug og góð til að nýta í sam­tölum en gall­inn var að þau voru á ensku. Spilin voru lit­rík, með flottum myndum og við not­uðum þau oft ásamt öðrum spjöldum sem voru bara með orðum, en engum myndum. Við tókum auð­vitað strax eftir því að mark­sækj­endur okkar vildu helst hafa spilin á íslensku og með myndum, þar sem myndir tala oft meira máli en orð. Við fórum að kasta á milli okkar hug­myndum, skoða fleiri stokka og bera saman, s.s. VIA styrk­leika úr jákvæðu sál­fræð­inni og fleira. Í milli­tíð­inni frá því við settum upp fyrsta Excel skjalið og byrj­uðum að ræða þessi mál hafa íslensk styrk­leika­spil verið gefin út.

[adspot]Við sáum samt enn tæki­færi fyrir okkar hug­mynd, þar sem við leggjum áherslu á mynd­ræna upp­lifun, ásamt ein­fald­leika í orðum og orð­skýr­ingum. Okkar mark­hópur er ungt fólk á grunn­skóla­stigi og uppúr, en við höfum unnið með mark­sækj­endur allt niður í 8 ára aldur. Það er þó ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að vinnu­staðir og sauma­klúbbar nýti þetta verk­færi til að opna á umræðu um styrk­leika. Markmið þessa verk­efnis er ekki síður að auka orða­forða og umræðu í tengslum við þá, öll búum við yfir styrk­leikum en þeir eru ekki alltaf eins sýni­legir og við höldum.”

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Þemað er ungt fólk og styrk­leikar. Við viljum sjá líf­lega og jákvæða umræðu um styrk­leika á meðal ungs fólks. Okkar draumur er að ungt fólk í dag vaxi úr grasi með sterka og með­vit­aða sjálfs­þekk­ingu og geti átt eðli­legt sam­tal um eigið ágæti án þess að virka sjálf­hverft í hugsun. Við viljum búa í sam­fé­lagi þar sem styrk­leikar eru ræddir og með­teknir. Vinna með spilin eykur sjálfs­vit­und, sem skilar sér í meira sjálfs­trausti og betri líðan þegar upp er staðið.

Allir styrk­leikar eru mik­il­vægir - og þetta má und­ir­strika og feit­letra! - og við teljum að eina leiðin
til að sam­fé­lög sann­ar­lega blóm­stri sé með því að fagna og ýta undir að við ræktum þessa
eig­in­leika sem eru hverju og einu okkar svo mik­il­vægir.“

„Okkur langar að koma á fram­færi ein­lægu þakk­læti til þeirra sem sýnt hafa þessu
verk­efni áhuga og stuðn­ing. Frekari upp­lýs­ingar má nálg­ast á Instagram undir #styrk­leika­spil og
á Facebook síðu verk­efn­is­ins: Vertu sjálf­fræð­ingur styrk­leika­spil, en þar munu á næstu vikum
safn­ast inn æfingar í hug­mynda­banka spil­anna.“

Hér er hægt að skoða verk­efnið nánar á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár