Hjón um áttrætt gefa út „Ég á mér líf“

Hjón sem hafa í 30 ár meðal ann­ars spilað tón­list í afmæl­is­boðum, brúð­kaupum eða öðrum sam­kundum hafa tekið upp plötu og safna fyrir útgáfu hennar á Karolina fund.

Í þrjá­tíu ár hafa hjónin, Jóhanna Fjóla Ólafs­dóttir, kenn­ari og Þor­steinn Egg­erts­son söng­texta­höf­undur samið saman texta og tón­list sér til gam­ans eða fyrir aðra til að nota t.d. í afmæl­is­boðum, brúð­kaupum eða öðrum sam­kundum.

Fyrir ári síðan ákváðu þau að hljóð­rita eitt­hvað af verkum sínum í sam­vinnu við hinn frá­bæra tón­list­ar­mann, Vilhjálm Guð­jóns­son, sem tók að sér m.a. upp­tökur, hljóð­ritun, end­an­lega útsetn­ingu og spila á 24 hljóð­færi.

Vín­yl­platan/ geisla­disk­ur­inn inni­heldur tíu lög eftir Jóhönnu Fjólu og tvö eftir Þorstein sem á alla text­ana nema tvo. Halldór Kiljan Laxness á annan þeirra og Jakobína Sig­urð­ar­dóttir hinn. Jóhanna Fjóla og Þor­steinn syngja sjálf öll lögin, saman eða í sitt hvoru lagi.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­inu?

„Það var ekki fyrr en fyrir tveim árum að við vorum beðin um að koma fram í Hann­es­ar­holti og þáðum. Ætluðum fyrst að mæta þar með gítar og syngja ein­hver þekkt lög við söng­texta Þor­steins en ákváðum að lokum að stefna að gerð hljóm­plötu sem inni­héldi okkar sam­eig­in­legu verk. Í nóv­em­ber 2019 kynntum við svo nokkur lög plöt­unnar í Hann­es­ar­holti og sögðum frá til­urð þeirra og text­anna. Eftir það hélt vinnan áfram við gerð plöt­unnar. Útgáfan hefur dreg­ist á lang­inn m.a. vegna COVID-19 veirunnar og að geta stað­ist straum af kostn­að­inum.

[adspot]Fyrir ári síðan ákváðu þau að hljóð­rita aðal­lega þau lög sem flestir geta sungið með og gefa þau út á geisla­disk og Vínyl.“

Segið okkar frá þema verks­ins?

„Eig­in­lega er ekk­ert sér­stakt þema, nema ef til vill að við völdum að taka upp þau lög sem voru söng­bær fyrir sem flesta, ekki bara ein­söngv­ara. Þetta eru verk sem hafa verið samin á mis­mun­andi tíma og hafa ekki komið út áður. Innihald hljóm­plöt­unnar er allt frá gleði­söngvum til sorg­ar­ljóða og inn á milli má finna brúð­kaupslög og svo­lítið grín.

Við hjónin erum að nálg­ast átt­rætt og með þessum verkum okkar viljum við sýna fram á að á meðan heilsan leyfir er hægt að sinna sköp­un­ar­gleð­inni. Að semja saman er eitt af því skemmti­leg­asta sem við gerum.

Útgáfan plöt­unnar hefur dreg­ist á lang­inn m.a. vegna COVID-19 veirunnar og einnig að geta stað­ist straum af kostn­að­inum. Forsala hljóm­plöt­unnar er á Karolina Fund þar sem er safnað fyrir útgáfu­kostn­aði plöt­unnar á síðu verk­efnis okkar, „Ég á mér líf“.

Þar er hægt að sjá ýmis­legt sem við höfum upp á að bjóða þeim sem styrkja verk­efnið ef söfn­unin tekst.“

Hér er að finna slóð­ina á söfn­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár