Þjálfun í undirstöðuatriðum lesturs

Hlín Magn­ús­dóttir hefur skrifað bækur sem þjálfa und­ir­stöðu­at­riði lest­urs. Hug­mynda­fræðin á bak­við upp­setn­ingu bókanna er sú að börn læra að allir bók­stafir eiga sín hljóð. Hún safnar fyrir útgáfu þeirra á Karolina fund.

Hlín Magn­ús­dóttir er kenn­ari af lífi og sál. Síðustu fimm ár hefur hún starfað sem sér­kenn­ari í Norð­linga­skóla, þar sem hún hefur lagt mikla áherslu á fjöl­breytt og áhuga­hvetj­andi náms­efni.

Hún heldur úti náms­sam­fé­lag­inu Fjöl­breyttar kennslu­að­ferðir fyrir fjöruga krakka á Facebook en þar deilir hún bæði hug­myndum og náms­efni sem hún hannar sjálf, til ann­arra kenn­ara og for­eldra. Í haust tekur hún til starfa í Helga­fells­skóla sem deild­ar­stjóri stoð­þjón­ustu, bæði á leik- og grunn­skóla­stigi. Hægt er að fylgj­ast með Hlín í leik og starfi á sam­fé­lags­miðlum undir nafn­inu Fjöl­breytt kennsla.

„Ég læri að lesa“ er flokkur lestr­ar­hefta sem þjálfar und­ir­stöðu­at­riði lest­urs em Hlín hefur skrifað. Flokk­ur­inn inni­heldur fjögur mis­mun­andi hefti sem leggja áherslu á hljóð bók­staf­anna, að kenna börnum að tengja saman tvö hljóð, kenna þeim að lesa stutt orð og stuttar setn­ingar, ásamt því að vinna með orða­forða. 

Hún safnar nú fyrir útgáfu heft­ana á Karolina fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Í starf­inu mínu sem sér­kenn­ari þá er stór hluti starfs­ins að aðstoða börn með lestr­ar­vanda að ein­hverju tagi. Hug­myndin að þess­ari bók kvikn­aði þegar ég tók eftir því að oft á tíðum þegar nem­end­urnir lásu ákveðna hljóða­klasa þá tengdu þeir alltaf við orð sem þeir þekktu .. t.d. lí –lí – lí - alveg eins og lím . Ég greip þessa hugsun þeirra og bjó til hefti þar sem hljóða­klasarnir voru alltaf tengdir við eitt­hvað sem þeir þekktu og ég sá strax góðan árangur í lestr­ar­nám­inu. Þessi hefti hafa svo aðeins stækkað og eru núna orðin að fjórum lestr­ar­bókum.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Þema verk­efn­is­ins er áhuga­hvetj­andi, ein­falt og skemmti­legt lestr­ar­nám. Bækurnar eru settar upp á ein­faldan hátt, þær eru með fjöl­breytnum verk­efnum, skemmti­legum og lit­ríkum myndum og orðum sem börn þekkja.

[adspot]Hug­mynda­fræðin á bak­við upp­setn­ingu bókanna er sú að börn læra að allir bók­stafir eiga sín hljóð, og orð eru sett saman úr hljóðum bók­staf­anna. Nemendur tengja hljóðin bæði við orð og myndir af hlutum sem þau þekkja úr sínu eigin umhverfi. Röð bók­staf­anna í heft­unum er sú sama og oft er notuð þegar stafainn­lögn fer fram í grunn­skólum. Bók­stafirnir eru því ekki kynntir í staf­rófs­röð, heldur í röð sem auð­veldar orða­myndun. Orðin í text­anum eru ein­ungis sett saman af þeim bók­stöfum sem hafa verið form­lega kynntir í heft­inu, t.d. kemur orðið kál ekki fyrir í text­anum fyrr en búið er að kynna bók­staf­ina K – Á – L

Lagðir eru inn tveir til fjórir bók­stafir í einu, næst kemur verk­efna­blað með orða­súpu og eyðu­fyll­ingum, þar skrifa nem­endur orð og einnig eru stuttar æfingar sem þjálfa hljóð­kerf­is­vit­und.“

Hér er hægt að styrkja og skoða verk­efnið á vef Karolina fund.

Það er einnig að hægt nálg­ast upp­lýs­ingar um það á heima­síðu fjöl­breyttrar kennslu eða á Facebook og Instagram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár