Deilieldhús fyrir matarfrumkvöðla og smáframleiðendur

Hægt er að „sponsa frum­kvöðlul“ í mat­ar­fram­leiðslu með því að styrkja verk­efnið Eld­stæðið á Karolina Fund.

Deili­eld­húsið Eld­stæðið, atvinnu­eld­hús fyrir mat­ar­frum­kvöðla og smá­fram­leið­endur er sprottið út
frá eigin reynslu og áskor­unum. Eva Michelsen, frum­kvöð­ull­inn bak­við hug­mynd­ina, hefur sjálf
verið að leita sér að hag­kvæmri og vott­aðri vinnu­að­stöðu sem hefur allt til alls án þess að þurfa
fara í meiri­háttar fjár­fest­ingar sem fylgja mat­væla­fram­leiðslu.

Eld­stæðið mun bjóða upp á fjórar vinnu­stöðvar, tvær til eld­unar og tvær fyrir und­ir­bún­ing (prep),
þurrla­ger, kæli- og frystila­ger ásamt deiliskrif­stofu og fundar/við­burð­ar­rými. Þar verður einnig
hægt að fá ráð­gjöf og leið­bein­ingar með fyrstu skrefin, frá mat­væla­hug­mynd að full­unn­inni vöru í
verslun.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?
„Hug­mynd­ina fékk ég þegar ég tók þátt í Banda­rísku frum­kvöðla­prógrammi sem nefn­ist YTILI.
Þar gafst mér tæki­færi á að heim­sækja Washington DC og hitta þar ótal mat­ar­frum­kvöðla og
hag­kvæmar lausnir fyrir þá.

[adspot]Ég hef því verið að velt­ast með þessa hug­mynd síðan haustið 2017
en hún er loks­ins að verða að veru­leika. Ég hef verið á hött­unum eftir hinu “full­komna” hús­næði,
stað­setn­ingu og svo fram­vegis. Við fengum 315 fm hús­næði á Nýbýla­vegi sem er frá­bær
stað­setn­ing upp á dreif­ing­ar­leiðir ofl.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Held það megi með sanni segja að þemað sé mat­ar­frum­kvöðlar, nýsköpun og að lækka kostnað
inn á markað fyrir ein­stak­linga og fyr­ir­tæki með skemmti­legar mat­væla­hug­myndir og nýj­ungar.
Matur er og verður alltaf til staðar og hefur átt sér stað ein­stak­lega góð og skemmti­leg þróun
með mat og mat­ar­hefðir Íslend­inga und­an­farin ár. Eld­stæðið er skemmti­leg við­bót við þessa
flóru og tel ég að það muni hjálpa mörgum við að stíga sín fyrstu skref og að Íslend­ingar nær og
fjær muni njóta góðs af.“

Nú eru í boði nokkur áheit sem veita aðgang að Eld­stæð­inu, eru þessi verð
sam­bæri­leg því sem má búast við að aðstaðan kosti?

„Já, þetta eru extra hag­stæð kjör og hugsuð fyrir þá sem vilja taka smá prufu­keyrslu. Það er eitt
áheit sem mér þykir sér­stak­lega spenn­andi og það er að „sponsa frum­kvöðul”. Ég er nokkuð
viss um að við þekkjum að lág­marki eina mann­eskju í okkar nærum­hverfi sem er að gera
alls­konar til­raunir með mat­væli og hefði gagn og gaman af því að kom­ast í atvinnu­eld­hús í
hálfan dag til að prófa sig áfram. Þetta gæti því verið til­valin gjöf fyrir mat­ar­unn­endur í þínu
nærum­hverfi.“

Facebook síða Eld­stæð­is­ins.

Hér er hægt að styrkja verk­efnið á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

frumkvöðlar

Fréttirfrumkvöðlar

Íslensk kona ein af svöl­ustu frum­kvöðl­unum undir þrí­tugu

Tatiana Birgsson, 26 ára, er ein þeirra þrjá­tíu sem við­skipta- og nýsköp­un­ar­vef­ur­inn Inc.com nefnir sem „svalan frum­kvöðul“ á lista yfir þrjá­tíu frum­kvöðla undir þrí­tugu (30 under 30). Tatiana er meðal stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins Mati Energy, sem fram­leiðir heilsu/orku drykk undir sam­nefndu nafni. Drykk­ur­inn hefur fengið afar góðar við­tökur, en rekja má stofnun fyr­ir­tæk­is­ins til þess þegar Tatiana var að búa til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár