Gulleggið verður haldið í haust í ár

Gul­leggið verður haldin í haust í ár, en keppnin hefur vana­lega verið haldin á vorin. Opnað hefur fyrir umsóknir til 21. sept­em­ber næst­kom­andi.

Frá síðustu keppni Gulleggsins í vor.
Frá síð­ustu keppni Gul­leggs­ins í vor. Mynd: Gulleggið

Opið er fyrir umsóknir í frum­kvöðla­keppn­ina Gul­leggið til 16:00 fimmtu­dag­inn 21. sept­em­ber næst­kom­andi. Keppnin sjálf fer fram í sept­em­ber og októ­ber, en hún hefur vana­lega verið haldin í febr­úar og mars. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Gul­leggs­ins.

Gul­leggið var síð­ast haldið í vor, en Kjarninn fjall­aði um tíu stiga­hæstu hug­myndir sem tóku þátt í loka­keppn­inni þann 15. Mars síð­ast­lið­inn. Hug­myndin SAFE Seat hlaut vinn­ing­inn þá, en hún sner­ist um fjaðr­andi báta­sæti sem vernda hryggsúl­una í erf­iðu sjó­lagi.

Keppnin fagn­aði einnig 10 ára afmæli sínu í vor, en mörg þeirra fyr­ir­tækja sem tekið hafa þátt eru orðin að stór­fyr­ir­tækjum í dag. Af fyrri þátt­tak­endum má nefna Meniga, Karolina Fund, Clara, eTactica, Nude Magazine, Róró – Lulla Doll, Pink Iceland og Cooori.

Gul­leggið leitar nú að þáttak­endum, en opið er fyrir umsóknir fram í sept­em­ber. Allir hafa þátt­töku­rétt og er kostn­að­ar­laust að senda inn hug­mynd og fá end­ur­gjöf á við­skipta­á­ætlun. Hægt er að skrá sig með eða án hug­myndar, en þeir sem skrá sig án hug­myndar eiga kost á því að kom­ast inn í teymi. 

Auk þátt­tak­enda leitar Gul­leggið að nýút­skrif­uðum vöru­hönn­uðum úr Lista­há­skóla Íslands til þess að hanna verð­launa­grip­inn í haust, gegn greiðslu. Þetta hefur verið gert síð­ustu ár, en sam­kvæmt til­kynn­ingu Gul­leggssins hefur hefðin sett skemmti­legan svip í gegnum árin og alltaf vakið mikla lukku. Áhuga­samir hönn­uðir eru hvattir til að hafa sam­band á gulleggid@icelandicstartups.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

frumkvöðlar

Fréttirfrumkvöðlar

Íslensk kona ein af svöl­ustu frum­kvöðl­unum undir þrí­tugu

Tatiana Birgsson, 26 ára, er ein þeirra þrjá­tíu sem við­skipta- og nýsköp­un­ar­vef­ur­inn Inc.com nefnir sem „svalan frum­kvöðul“ á lista yfir þrjá­tíu frum­kvöðla undir þrí­tugu (30 under 30). Tatiana er meðal stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins Mati Energy, sem fram­leiðir heilsu/orku drykk undir sam­nefndu nafni. Drykk­ur­inn hefur fengið afar góðar við­tökur, en rekja má stofnun fyr­ir­tæk­is­ins til þess þegar Tatiana var að búa til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár