Íslensk kona ein af svölustu frumkvöðlunum undir þrítugu

Tatiana Birgsson, 26 ára, er ein þeirra þrjá­tíu sem við­skipta- og nýsköp­un­ar­vef­ur­inn Inc.com nefnir sem „svalan frum­kvöðul“ á lista yfir þrjá­tíu frum­kvöðla undir þrí­tugu (30 under 30).

Tatiana er meðal stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins Mati Energy, sem fram­leiðir heilsu/orku drykk undir sam­nefndu nafni. Drykk­ur­inn hefur fengið afar góðar við­tökur, en rekja má stofnun fyr­ir­tæk­is­ins til þess þegar Tatiana var að búa til drykki, þegar hún var nem­andi við Duke háskóla.

Frá þeim tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar. Drykk­ur­inn fæst í Whole Foods versl­unum, sam­kvæmt sem fram kemur í umfjöllun Inc.com, en mun brátt einnig fást í Costco. Tatiana stýrir fyr­ir­tæk­inu sem fram­kvæmda­stjóri.

Fyr­ir­tækið er metið á 5,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 700 millj­ónir króna, og er gert ráð fyrir fyrir að tekjur þess fari í fyrsta skipti yfir eina milljón Banda­ríkja­dala á þessu ári, eða sem nemur um 123 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

frumkvöðlar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár