Frumkvöðlastarfsemi eða rentusókn?

Banda­ríkin hafa alið af sér ranga teg­und frum­kvöðla á síð­ustu árum, sam­kvæmt nýrri grein í Harvard Business Review.

Rentusókn meðal frumkvöðla er vandamál, samkvæmt greinarhöfundum.
Rentu­sókn meðal frum­kvöðla er vanda­mál, sam­kvæmt grein­ar­höf­undum. Mynd: Pexels

Frum­kvöðlar í Banda­ríkj­unum hafa komið í veg fyrir frek­ari nýsköpun þar síð­ustu þrjá ára­tugi, sam­kvæmt grein sem birt­ist nýlega í Harvard Business Review. Samkvæmt höf­undum grein­ar­innar, Robert E. Litan og Ian Hathaway, felst vand­inn í rentu­sókn frum­kvöðl­anna.

Skapandi eyðilegging

Flestir líta svo á að frum­kvöðla­starf­semi hafi góð áhrif á sam­fé­lagið. Sprota­fyr­ir­tæki frum­kvöðl­anna hrista upp í mark­aðnum með betri vörum og þjón­ustu og bola í leið­inni út eldri fyr­ir­tækjum sem ekki er þörf á. Þetta ferli er nefnt „skap­andi eyði­legg­ing,“ og er hún talin hafa verið nauð­syn­leg fyrir þá fram­leiðni­aukn­ingu sem átt hefur sér stað í heim­inum á síð­ustu árhund­ruðum.

Hins vegar eru sumar teg­undir frum­kvöðla ekki af hinu góða. Hag­fræð­ing­ur­inn William Baumol kom með kenn­ing­una um „hinn ófram­leiðna frum­kvöðul,“ en það eru þeir sem nýta sér tengsl við rík­is­stjórn­ina til þess að skapa reglu­verk í þeirra hag eða til að tryggja rík­is­út­gjöld í sinn vasa. Með slíkum samn­ingum væru frum­kvöðla­fyr­ir­tæki að stunda rentu­sókn þar sem þau gætu heft sam­keppni og tryggt sér mark­aðs­ráð­andi stöðu með hjálp rík­is­ins.

Uggvænleg þróun í Bandaríkjunum

Samkæmt kenn­ingum Baumol er aukin rentu­sókn meðal frum­kvöðla mun senni­legri skýr­ing á stöðnun efna­hags­lífs heldur en minnkun á frum­kvöðla­starf­semi.

Litan og Hathaway hefur opnun nýrra fyr­ir­tækja fækkað hratt og örugg­lega á síð­ustu þrjá­tíu árum, sér­stak­lega eftir árið 2000. Dregið hefur úr nýliðun á nán­ast öllum þétt­býl­is­svæðum og í flestum atvinnu­greinum þar í landi, þar á meðal hjá hátækni­fyr­ir­tækjum. Minna virð­ist vera um þá „skap­andi eyði­legg­ingu“ sem drifið hefur hag­vöxt áfram.

Samhliða fækkun nýrra fyr­ir­tækja eru ýmsar vís­bend­ingar um aukna rentu­sókn í Banda­ríkj­unum. Til dæmis hefur arð­semi fyr­ir­tækja auk­ist á und­an­förnum árum, sér­stak­lega meðal stærstu fyr­ir­tækj­anna, en sam­kvæmt grein­inni hefur stór hluti hagn­að­ar­ins verið vegna „póli­tískra ástæðna.“

Google, Uber og AirBnB

Greinin nefnir sér­stak­lega að erfitt sé að finna afdrátt­ar­lausar sann­anir fyrir því hvort rentu­sókn hafi auk­ist meðal frum­kvöðla. Grun­semdir höf­unda ættu þó ekki að koma á óvart, margar af fræg­ustu tækninýj­ungum síð­ari ára hafa leitt til sam­þjöpp­unar á mark­aðnum.

Mark­aðs­hlut­deild leigu­bíla­fyr­ir­tæk­is­ins Uber mæld­ist 77% í maí síð­ast­liðnum og hlut­deild Alphabet (Google) á leit­ar­véla­mark­að­inum mæld­ist 76% í fyrra. Mark­aðs­ráð­andi stöðu fylgir gjarnan rentu­sókn, en fyr­ir­tækin hafa bæði eytt millj­ónum dala til banda­rískra lög­gjafa til þess að tryggja hags­muni sína. Svipaða sögu er að segja um gisti­m­iðl­ar­ann Airbnb, en fyr­ir­tækið hefur ráðið ýmsa aðila til að standa í hags­muna­gæslu fyrir sig í Washington.

Sjálfskaðandi rentusókn

Ekki er nýtt að frum­kvöðla­fyr­ir­tæki hafi mark­aðs­ráð­andi stöðu á fyrstu árum sínum. Mörg þeirra búa yfir nýrri tækni­þekk­ingu sem aðrir hafa ekki og geta því boðið betri vörur og þjón­ustu. Hins vegar er áhyggju­efni að margar upp­finn­ingar síð­ustu ára hafi leitt til upp­gangs risa­fyr­ir­tækja sem halda í stöðu sína með því að reyna að hafa áhrif á ákvarð­anir stjórn­valda. Alphabet, AirBnB og Uber voru öll frum­kvöðlar á sínu sviði, en eru nálægt því að vera ein­ok­un­ar­fyr­ir­tæki núna. Rentu­sókn fyr­ir­tækj­anna getur leitt til þess að erf­ið­ara sé að veita þeim sam­keppni, en þannig geta þau komið í veg fyrir frek­ari nýsköpun á mark­aðnum sem þau breyttu sjálf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

frumkvöðlar

Fréttirfrumkvöðlar

Íslensk kona ein af svöl­ustu frum­kvöðl­unum undir þrí­tugu

Tatiana Birgsson, 26 ára, er ein þeirra þrjá­tíu sem við­skipta- og nýsköp­un­ar­vef­ur­inn Inc.com nefnir sem „svalan frum­kvöðul“ á lista yfir þrjá­tíu frum­kvöðla undir þrí­tugu (30 under 30). Tatiana er meðal stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins Mati Energy, sem fram­leiðir heilsu/orku drykk undir sam­nefndu nafni. Drykk­ur­inn hefur fengið afar góðar við­tökur, en rekja má stofnun fyr­ir­tæk­is­ins til þess þegar Tatiana var að búa til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár