NetApp kaupir Greenqloud

Banda­ríska Fortune 500 fyr­ir­tækið hefur keypt íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið GreenQloud.

NetApp Inc. hefur keypt Greenqloud ehf., en þetta eru fyrstu kaup Fortune 500 fyr­ir­tækis á íslensku hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki sem vitað er um. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Greenqloud en kaup­verðið er ekki gefið upp.

George Kurian, for­stjóri NetApp, fagnar kaup­unum í til­kynn­ingu, sem vitnað er til á tækni­vefnum www.crn.com, og segir að Greenqloud muni styrkja þjón­ustu og vöru­fram­boð NetApp.

Greenqloud ehf. verður hér eftir NetApp Iceland og verður starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins áfram á skrif­stofum þess í Reykja­vík og Seattle. Markmið NetApp með kaup­unum er að styrkja leið­andi stöðu sína á mark­aði hybrid skýja­þjón­ustu. Þetta eru afar góðar fréttir fyrir íslenskt við­skipta­líf, en kaup sem þessi eru mikil við­ur­kenn­ing á íslensku hug­viti sem og nýsköp­un­ar­starf­semi.

Greenqloud var stofnað árið 2010 af Eiríki Hrafns­syni og Tryggva Lárus­syni og var fyrsta fyr­ir­tæki í heimi til þess að bjóða upp á skýja­þjón­ustu sem ein­göngu var rekin á end­ur­nýj­an­legri orku. Er Jónsi Stef­áns­son, for­stjóri Greenqloud, var ráð­inn til fyr­ir­tæk­is­ins í mars 2014 tók við mikil breyt­ing á áherslum fyr­ir­tæk­is­ins þar sem meg­in­á­hersla var lögð á að þróa Qstack; sér­hann­aða hug­bún­að­ar­lausn sem getur á auð­veldan hátt stýrt skýja­lausnum og tölvu­þjónum fyr­ir­tækja.

Í dag eru starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins 42 tals­ins, af hinum ýmsu þjóð­ernum, en með nýjum áherslum NetApp Iceland og miklum vaxt­ar­tæki­færum sem þeim fylgja mun fyr­ir­tækið bæta við sig starfs­mönnum á næstu vikum og mán­uðum. Upp­bygg­ing starf­sem­innar mun að mestu leyti fara fram á skrif­stofu fyr­ir­tæk­is­ins í Reykja­vík, en einnig á skrif­stofu þess í Seattle, Banda­ríkj­unum. „Við erum virki­lega stolt af þessum árangri sem kemur til vegna ótrú­legrar þraut­seigju og dugn­aðar starfs­manna þar sem hver og einn þeirra spil­aði ákveðið lyk­il­hlut­verk. Ég gæti ekki verið stolt­ari af mínu fólki sem hefur lagt allt sitt fram til að gera þetta að veru­leika. Það er einkar ánægju­legt fyrir okkur og í raun allan tækni­geir­ann á Íslandi að NetApp hefur sett fram mjög metn­að­ar­fulla upp­bygg­ing­ar­á­ætlun fyrir starf­sem­ina á Íslandi. NetApp er virki­lega áhuga­vert fyr­ir­tæki og hefur ítrekað verið valið eitt besta fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna til að vinna fyrir, að sjálf­sögðu verður engin und­an­tekn­ing þar á í starf­semi þess hér á Íslandi,” segir Jónsi Stef­áns­son, for­stjóri Greenqloud, í til­kynn­ingu.

Aðal­eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins voru fyrir kaupin meðal ann­ars Kjölur fjár­fest­inga­fé­lag, Nýsköp­un­ar­sjóður Íslands og Novator ásamt smærri fjár­fest­u­m, ­stofn­endum og starfs­fólki.

NetApp, Inc. var stofnað árið 1992 en hefur verið skráð sem Fortune 500 fyr­ir­tæki frá árinu 2012, sem gerir það að einu stærsta fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna fimmta árið í röð. Höf­uð­stöðvar þess eru í Sunn­yvale, Kali­forníu, en fyr­ir­tækið sér­hæfir sig í geymslu­kerfum og utan­um­haldi gagna­vera ásamt því að vera leið­andi og í mik­illi sókn þegar kemur að hybrid skýja­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

frumkvöðlar

Fréttirfrumkvöðlar

Íslensk kona ein af svöl­ustu frum­kvöðl­unum undir þrí­tugu

Tatiana Birgsson, 26 ára, er ein þeirra þrjá­tíu sem við­skipta- og nýsköp­un­ar­vef­ur­inn Inc.com nefnir sem „svalan frum­kvöðul“ á lista yfir þrjá­tíu frum­kvöðla undir þrí­tugu (30 under 30). Tatiana er meðal stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins Mati Energy, sem fram­leiðir heilsu/orku drykk undir sam­nefndu nafni. Drykk­ur­inn hefur fengið afar góðar við­tökur, en rekja má stofnun fyr­ir­tæk­is­ins til þess þegar Tatiana var að búa til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár