Runir

Í nýju spili nota spil­arar verk­færi (ten­inga­kastið) og ork­una sína (krist­alla) til að rista Fuþark rúna­teina. En orkan er tak­mörkuð svo það þarf að finna hag­kvæma leið til að nýta hana sem best.

Nú er nýtt verk­efni komið í hóp­fjár­mögnum á Karolina Fund, ten­inga­spilið Runir. Spilið er vænt­an­legt á markað í októ­ber. Runir er ten­inga­spil fyrir 2 til 4 leik­menn, 8 ára og eldri. Spila­tími er 10 mín­útur á hvern leik­mann.

Í spil­inu nota spil­arar verk­færi (ten­inga­kastið) og ork­una sína (krist­alla) til að rista Fuþark rúna­teina. En orkan er tak­mörkuð svo það þarf að finna hag­kvæma leið til að nýta hana sem best. Fljót­legt og skemmti­legt fjöl­skyldu­spil, byggt á íslenskum rúna­letri og rúnum. Höfundar eru Svavar Björg­vins­son og Monika Brzková.

[adspot]

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Runir er í raun sjálf­stætt fram­hald af borð­spil­inu Mythical Island sem ég og Monika unnum að á síð­asta ári, en í því spili var við­fangs­efnið íslenskir vættir og kynja­verur úr nor­rænum sögum og ævin­týrum. Það spil gékk mjög vel, en það seld­ist upp hjá okkur fyrir jólin. Okkur lang­aði að halda áfram að vinna að spili sem tengd­ist Íslandi á einn eða annan hátt.

Við vorum búin að vera að leika okkur með hug­mynd að ten­inga­spili og eins oft vill nú verða þá small þetta allt saman eitt kvöldið þegar við vorum að velta þessum málum fyrir okkur. Hvað með að vinna með rúnir? Og þannig fór þetta allt að rúlla í rétta átt. Ef allt gengur að óskum, þá höfuð við vilja til þess að koma með þriðja spilið á næsta ári, sem mun fjalla um veðrið. Allt er þegar þrennt er!

Hvert er þema verk­efn­is­ins?

Í Runum taka leik­menn hlut­verk rúnarist­ara, sem hefur það meg­in­mark­mið að verða rúna­meist­ari. Það að rista rúnir var sjálf­stætt iðn­fag á vik­inga­tím­anum og ekki á færi allra að takast á við. Rúnarist­ar­arnir starfa fyrir Jarlinn sem greiðir þeim pen­inga fyrir verkið; mis­mundi upp­hæðir allt eftir því hversu flókin rúna­letur þarf að rista. Þeir frá greitt bron­spen­ing ef þeir rista bronslit­aðan rúna­stein, þann auð­veldasta, silf­ur­pen­ing fyrir að rista silfur stein og loks gull­pen­ing fyrir að rista gull­stein, þann erf­ið­asta.

Leikmenn hafa tak­mark­aða orku til að vinna með (táknuð með kristöllum) svo þeir þurfa að nýta hana á sem hag­v­kvæm­astan hátt. Í hverri umferð leik­manns, þá fær hann verk­færi til að vinna með (ten­inga­kastið) sem hann svo þarf að finna sam­vörum fyrir á spila­borð­inu og nota ork­una sína til að rista stein­inn. Orkan er sett á þann stein á spila­borð­inu sem passar við rúna­sam­setn­ing­una á ten­inga­kast­inu. Ef ten­inga­kastið er ekki nógu gott (verk­færin ómögu­leg) má líka nýta ork­una til að fá ný verk­færi eða aðstoð frá aðstoð­ar­mönnum Jarlsins.

Fyrir vinn­una fá spil­arar greiðslu, pen­ing í sama lit og steinn­inn sem var ristur. Aftan á pein­ingnum eru svo virð­ing­ar­stig sem eru ekki skoðuð fyrr en í lokin. Það má að auki sækja meiri virð­ingu ef ákveðnum skil­yrðum er full­nægt. Spilið klár­ast svo þegar ein­hver einn leik­maður hefur klárað alla ork­una sína, þá er umferðin kláruð og loks stigin talin. Sá sem er með mestu virð­ing­una verður rúna­meist­ari.

Er það ein­hvað sér­stakt sem vakti áhuga ykkar þegar verið var að þróa verk­efnið?

Það er alltaf virki­lega gaman að vinna að nýjum verk­efnum. Þegar við vorum búin að finna út þemað sem við vorum sátt við, þá tók við gagna­öflum. Við sóttum okkur heil­mikið af bókum á bóka­safnið og lásum okkur til líka á net­inu. Það sem kom kannski á óvart var hvernig rúna­letur var notað á mjög mis­mun­andi hátt; allt frá ein­földum skila­boðum eins og „Sigriðr á“ til epískra sagna. Þeir sem voru hvað þekkt­astir að rista rúnir eru nafn­greindir í sögnum og voru sumir þeirra hálf­gerðar rokk­stjörnur vik­inga­tím­ans; þeir tóku háar upp­hæðir fyrir vinnu sína og sumir voru ein­ungis not­aðir af hástett­inni við að segja fræknar sögur.

Við not­umst við hið sér­ís­lenska rúna­letur, sem byggir reyndar á yngra Fuþark-letr­inu. Á pen­ing­unum erum við líka mér galdra­stafi, svo það má að sanni segja að þetta byggi allt á al-íslenskum grunni allt saman. Það er líka gaman að segja frá því að í reglu­bók­inni, sem er bæði á íslensku og ensku, er örstutt fræðsla um rún­irnar. Spila­kass­inn er nákvæm­lega sá sami og við not­uðum við Mythical Island spilið, svo þau sóma sér vel saman í hill­unni. Við tölum gjarnan um Runir sem litla bróðir Míu, en það er gælu­nafnið sem við notum fyrir Mythical Island spilið.

Fyrir áhuga­sama er kjörið að kynna sér verk­efnið nánar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár