Svolítið sóðalegt hjarta

Fyrr­ver­andi ungskáld, sem er að uppi­stöðu kletta­skáld, safnar fyrir útgáfu sjöttu ljóða­bókar sinnar á Karolina fund.

Lubbi kletta­skáld er maður sem eitt sinn var kall­aður ungskáld en stendur nú á fer­tugu og því
túlk­un­ar­at­riði hvort hann sé enn ungskáld. Hann er frá Fellabæ, fyrir austan en hann hefur gefið
út 5 ljóða­bækur, þá fyrstu er hann var aðeins 18 ára. Nú stendur hann fyrir söfnun á Karolina
fund en stefnir hann á að gefa út sína sjöttu ljóða­bók en það er Lára Garð­ars­dóttir sem sér um
hönnun á kápu­mynd og teikn­ingum í bók­inni.

Lubbi segir að hann hafi samið ljóð frá því að hann var 11 ára og hafi oft með koll­inn fullan af hug­myndum af ljóðum en svo hafi komið mislöng tíma­bil þar sem ekk­ert kom upp í hug­ann, eins og ger­ist hjá öllum skáldum og öðru lista­fólki. „Árið 2015 hætti ég í sam­bandi með unn­ustu minni eftir 9 ára sam­band en ef það er eitt­hvað sem getur fengið rit­stíflu til að bresta hjá mér er það þegar
skugga bregður yfir hug­ann en jafn­vel sum af mínum fyndn­ustu ljóðum eru samin í and­legri
lægð. Stíflan brast þó ekki fyrr en 2018 og er afrakst­ur­inn að sjá í nýju bók­inni.“
Hann segir að það sé þema í bók­inni. „En fyrst þarf ég að útskýra af hverju þema er í bók­inni og hvernig nafnið kom til sem teng­ist auð­vitað þem­anu. Fyrir þremur árum var dóttir mín, þá 7 ára, að skrifa afmæliskort handa bróður mínum. Eftir að hafa skrifað kveðj­una teikn­aði hún hjarta á kortið. Dropi af vatni datt á hjartað og við það klesstist það svo­lítið. Í stað þess að henda kort­inu og gera nýtt, ákvað hún að skrifa afsök­un­ar­beiðni við hjartað.

[adspot]Ég sá afsök­un­ar­beiðn­ina og fannst hún svo frá­bær og ákvað þá að ég skyldi nota hana í eitt­hvað, var ekki viss í hvað en eitt­hvað skyldi það vera. Ári seinna hafði rit­stífla sem ég hafði glímt við í nokkur ár, brostið og ég samið sex ný ljóð. Eftir að hafa skoðað þau betur sá ég að þau fjöll­uðu öll um svipuð mál­efni, ást­ina, ást­ar­sorg og fleira í þeim dúr enda hafði ég glímt við eft­ir­köst sam­bands­slita við barns­móður mína síð­ustu árin.

Ég tók þá ákvörðun að gera heila ljóða­bók um þessa hluti en aldrei áður hafði ég gert þema­bók þó vissu­lega séu ákveðin and­rúms­loft að finna í bók­unum mínum. Eftir að hafa tekið þessa ákvörðun fór ég að spá í mögu­legt nafn á bók­ina og mundi þá eftir afsök­un­ar­beiðni dóttur minnar sem ég minnt­ist á hér fyrir ofan. Úr varð að bókin hlaut nafnið svo­lítið sóða­legt hjarta.

Bókin hefur í raun upp­haf, miðkafla og endi, fyrst er allt í blóma, ástin springur út og lífið er ljúft en svo kemur höfn­unin og allt myrkrið sem henni fylgir. Í lokin glittir svo í smá ljós­glætu og hjartað fer smá saman að slá nokkuð eðli­lega aftur.“

Á söfn­un­ar­síð­unni hjá Karolina fund segir Lubbi að bókin sé ljúfsár. Aðspurður hvað hann eigi við með því segir hann að þau sem þekki fyrri verk hans og stíl viti að það sé yfir­leitt stutt í spaugið og kald­hæðn­ina hjá sér. „Þessi bók er þó að ein­hverju leiti öðru­vísi en mín fyrri verk. Yfir henni liggur mis­þunn himna sem er frekar þung og sár, jafn­vel þó að sum ljóðin séu bros­leg en himnan gerir þau grát­bros­leg. Eða það finnst mér en auð­vitað mega les­endur túlka ljóðin algjör­lega eftir sínu höfði. Að mínu mati skipt­ast ljóðin á að vera ljúf og sár og stundum bæði í senn.“

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár