Hasar, spenna og harka

Elí Freysson safnar nú fyrir fantasíu­sögu sem byggð er á vík­inga­tím­anum og segir frá upp­komnum systk­inum sem þurfa í sam­ein­ingu að flýja undan bæði mennskum óvinum og yfir­nátt­úru­legum öflum.

Feigð­ar­flótti er fantasíu­saga byggð á vík­inga­tím­anum, og segir frá upp­komnum systk­inum sem þurfa í sam­ein­ingu að flýja undan bæði mennskum óvinum og yfir­nátt­úru­legum öflum. Hasar, spenna og harka.

Elí Freysson er 36 ára gam­all Akur­eyr­ingur, sem hefur kosið sér það í líf­inu að vera rit­höf­undur. Á árunum 2011 til 2015 gaf hann út fimm fantasíur/furðu­sögur hér á landi: Meistari Hinna Blindu, Ógn­ar­máni, Kallið, Kistan og Eldmáni. Eftir þetta fór hann yfir í að skrifa á ensku, en vill nú reyna að gefa út nýtt verk í heima­land­inu.

Elí er á ein­hverfu­róf­inu og hefur síð­ustu ár flutt fyr­ir­lestra um rösk­un­ina, og gefið út rit ætlað for­eldrum og kenn­urum.

[adspot]

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Núna í vor opn­aði Akur­eyr­ar­bær fyrir umsóknir um lista­manna­styrk. Mér datt í hug að skrifa stutt verk sem ég gæti gefið skól­unum í bænum til að ýta undir lestur ung­menna. Vildi ég þá hafa það þjóð­legt, en líka spenn­andi til að vekja áhuga og halda athygli. Þannig setti ég saman hug­mynd að furðu­sögu um vík­inga: Heim sem svipar mjög til þess sem við könn­umst við úr íslend­inga­sög­unum, nema hvað tröll, galdrar, draugar, huldu­fólk og allt þetta er raun­veru­legt. Styrk­ur­inn gat samt bara farið til eins aðila, og varð ég ekki fyrir val­inu. Eins og vill ger­ast sat hug­myndin þó eftir og tældi mig, og ég fór að leita ann­arra leiða til að gera hana að veru­leika.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

Sagan ger­ist í landi er minnir mjög á Noreg á vík­inga­öld. Sögu­hetj­urnar eru systk­ini: Kappinn Bárður og seið­konan Magn­hildur. Þau eiga rétt að lands­svæði sem setur hefur í eyði um nokk­urt skeið, en þegar þau eru á far­alds­fæti verða þau fyrir árás óvina ætt­ar­innar, sem vilja losna við þau og eigna sér landið. Nú þurfa þau að flýja nokk­urra daga leið yfir óbyggðir, haf, fjöll og skóga til að kom­ast í öruggt skjól, ávallt með víga­menn á hæl­unum.

Og meira en víga­menn reyndar, því göldrum er beitt gegn þeim og ógur­leg for­ynja eltir þau einnig lát­laust. Munu þau þurfa að beita öllu sínu þreki, klókindum, vopn­fimi og dulúð­legri þekk­ingu til að hafa betur af. Sagan verður skrifuð í mínum dæmi­gerða stíl, með hröðum takti og miklum hasar. Ég er einnig búinn að taka af bóka­safn­inu heil­ann bunka af efni um vík­inga til að fá inn­blástur.

Ef af þessu verður ætla ég enn að sjá til þess að ein­tök af Feigð­ar­flótta kom­ist í skól­ana hérna á Akureyri.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár