Fékk nóg af því að stunda tónlist einn

Marteinn Sindri und­ir­býr nú útgáfu á vín­yl­plötu.

Marteinn Sindri
Marteinn Sindri Mynd: Blair Alexander

Atlas, fyrsta breið­skífa tón­list­ar­manns­ins Marteins Sindra kom út á staf­rænum miðlum þann 16. maí síð­ast­lið­inn. Hann und­ir­býr nú útgáfu á sam­nefndri vín­yl­plötu sem vænt­an­leg er 18. sept­em­ber næst­kom­andi sam­hliða útgáfu­tón­leikum í Iðnó. Marteinn nýtur aðstoðar Karolina Fund við að fjár­magna fram­leiðsl­una en hægt er að heita á verk­efnið með því að kaupa plöt­una, tón­leika­miða, mynd­verk eða tón­leika­hald.

Marteinn er píanó­leik­ari að upp­lagi en lagði sig eftir því að læra á gítar þegar hann fór að syngja eigin tón­list. Við gerð plöt­unnar rataði þó mikið af tón­list­inni, sem liggur ein­hvers­staðar á mörkum þjóð­laga-, fram­úr­stefnu- og popptón­listar, aftur á píanóið.

[adspot]

Hver var hug­myndin að verk­efn­inu?

Hug­myndin að plöt­unni kvikn­aði þegar ég lagði stund á nám í heim­speki út í Berlín fyrir nokkrum árum. Ég hafði lengi lært tón­list og dundað við hin og þessi tón­list­ar­verk­efni, meðal ann­ars samið umtals­vert af lögum en aldrei sungið neitt sjálfur nema í kór. Það gerð­ist eitt­hvað út í Berlín, ég fór að finna hvernig ég gæti og vildi notað rödd­ina og í fram­haldi fór fjöld­inn allur af nýjum lögum að fæð­ast.

Ég fékk góðan vin minn, Daníel Friðrik Böðv­ars­son í lið með mér og við unnum nokkuð stöðugt að plöt­unni í um fjögur ár ásamt góðum hópi af fólki. Upptökur á plöt­unni fóru fram síðla árs 2017 og snemma árs 2018 og voru hljóð­rit­anir í höndum Alberts Finn­boga­sonar sem tók virkan þátt í að móta hljóð­heim plöt­unnar ásamt okkur Daníel sem stjórn­aði upp­tökum auk allra þeirra sem lögðu eigin hljóð­færi eða rödd á vog­ar­skál­arnar. Svo þegar platan var til­búin vorið 2018 fædd­ist mér sonur svo að ég ákvað að fresta útgáfu plöt­unnar um eitt ár. Nú er hún komin út staf­rænt, flæddi út á helstu streym­isveitur 16. maí. Aftur á móti er í mínum huga engin plata komin út að fullu fyrr en með einum eða öðrum efn­is­legum hætti.

Ég gef plöt­una út sjálfur og hef brugðið á það ráð að fjár­magna fram­leiðslu vín­yl­plöt­unnar með aðstoð vina og vel­unn­arra sem hafa áhuga á að eign­ast hlut­deild í verk­efn­inu og tón­list­ina á vín­yl­plötu eða ein­hverjar þeirra sjón­smíða sem Ólafur Þór og Katrín Helena systir mín hafa unnið að og vísa með sterkum hætti í hug­ar­heim plöt­unnar.

Hvert er þema plöt­unnar?

Í mörgum tungu­málum merkir Atlas safn af landa­kortum og það má segja að þema plöt­unnar eða hug­ar­heimur hennar sé að ein­hverju leyti tengd því að gera sér mynd af heim­inum, að kort­leggja það sem maður þekkir og það sem maður þekkir ekki, að vera á nýjum slóðum, týn­ast og finn­ast, leita og finna. Í text­unum á plöt­unni yrki ég gjarnan um und­ar­lega staði – ímynd­aða eða raun­veru­lega – og þá sér­stæðu reynslu að vaxa úr grasi og þurfa að standa á eigin fótum, að vera að leita sér að stað í heim­inum.

Í ein­hverjum skiln­ingi er svona hljóm­plata mynd eða kort af heim­inum, unnin í sam­starfi við fjölda fólks með ólíkar raddir og ólíka skynjun svo útkoman verður eitt­hvað allt annað en ein­hver einn smíðar í ein­rúmi. Einveran er mjög mik­il­væg, en ég hafði ein­hvern veg­inn fengið nóg af því að stunda tón­list einn eftir að hafa lært lengi á píanó sem er oft mjög ein­mana­leg iðja. Og ég held að hug­myndin um Atlas komi líka þaðan, úr grísku goð­sög­unni um tít­an­inn Atlas sem var dæmdur til að bera heim­inn á herð­unum og er svo skelfi­lega einn, því þó hann haldi á heim­inum þá er hann um leið utan við hann. Það er ekk­ert voða­lega öfunds­vert hlut­skipti og ég hugsa um plöt­una sem algjöra and­stæðu þess, þvert á móti er henni haldið á lofti af fjölda fólks og því fyrst og fremst umgjörð utan um ein­hvers­konar sam­veru og sam­sköpun.

Ég hugsa lögin mín svo­lítið eins og landa­kort, þau eru ekki heimar út af fyrir sig heldur frekar mögu­leikar sem verða að veru­leika í hvert skipti sem þau eru flutt."

Þess ber helst að geta að útgáfu­tón­leikar plöt­unnar verða haldnir 18. sept­em­ber í sam­starfi við Iðnó. Hægt er að kaupa miða á karolina­fund þar til söfn­un­inni lýkur.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár