Blóðhófnir – Hverfist í kringum ljóðmælandann Gerði

Nú er safnað fyrir tón­verki Krist­ínar Þóru Har­alds­dóttur og mynd­verki Tinnu Krist­jáns­dóttur, Blóð­hófnir, sem skrifað er við sam­nefnt verð­launa­ljóð­verk Gerðar Kristnýjar.

Blóð­hófnir er tón­verk Krist­ínar Þóru Har­alds­dóttur og mynd­verk Tinnu Krist­jáns­dóttur, skrifað við sam­nefnt verð­launa­ljóð­verk Gerðar Kristnýjar. Tón­verkið er flutt af tón­list­ar­hópnum Umbra ásamt gestum, en allar spila þær á strengja­hljóð­færi og forn hljóð­færi og syngja. Til stendur að gefa verkið út á geisla­plötu á næstu miss­erum með stillum úr mynd­verkum Tinnu, sem prýða bæði hulstur og bók.

Blóð­hófnir byggir á fornri sögu úr Skírn­is­málum, sem Gerður Kristný snéri í nútíma sögu­ljóð og segir sögu Gerðar Gym­is­dóttur jöt­un­meyjar, sem tekin var gegn vilja sínum úr heima­högum sínum í Jöt­un­heimum til að gift­ast goð­inu Frey, beitt hót­unum og valdi. Magnað ljóð­verk sem á sterkt erind til sam­tím­ans.

Lilja Dögg Gunn­ars­dóttir söng­kona fer listi­lega með hlut­verk ljóð­mæl­anda, Gerðar Gym­is­dóttur, sem er burð­ar­hlut­verk verks­ins.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Lilja: Hug­myndin kvikn­aði í raun á bóka­kaffi­húsi. Ég var þar stödd að súpa kaffi og glöggva í bækur. Þá greip mig ljóða­bálkur Gerðar Kristnýjar – sem ég las upp til agna upp­numin. A þessum tíma­punkti var ég nýhætt að kenna mið­alda­bók­menntir MS og hafði snúið mér alfarið að tón­list – svo efni­viður ljóða­bálks­ins stóð mér ein­hvern veg­inn strax mjög nærri – enda eytt dágóðum tíma und­an­farin ár í að garfa í Eddu­kvæð­unum. Þarna var veg­ferð Umbru líka farin vel á stað og við lest­ur­inn fannst mér það skrifað í skýin að við, hljóm­sveit sem er með skýran fókus á forna tón­list, ættum að láta semja fyrir okkur verk upp úr ljóða­bálki Gerðar. Kristín Þóra kom strax upp í koll­inn – ein­hverra hluta vegna, en hana þekkti ég nú barasta ekk­ert en hafði heyrt hana flytja verk Þórunnar Grétu Sig­urð­ar­dóttur á Myrkum mús­ík­dögum og fannst það svo magnað! Ég vissi til þess að hún væri að semja sjálf. Við Umbrur kynntum okkur svo hana og höfðum sam­band í kjólfarið.

Kristín Þóra: Það var í raun­inni mikil gjöf þegar Umbrur höfðu sam­band við mig, því ekki svo löngu áður hafði ég skoðað ljóð­verkið og hugsað „VÁ, þetta!“ ... og vissi að ég myndi gjarnan vilja vinna með það ein­hvern tím­ann. Og hljóð­færa­sam­setn­ing Umbru fannst mér kjörin: Kvenn­raddir og girn­is­strengir, en það er týpan af strengjum sem var notuð í gamla daga, þeir eru ein­hvern veg­inn bæði með hlýtt og hrátt sánd á sama tíma, og með mik­illi jörð finnst mér. Það er nefni­lega svo mikil jörð í ljóð­inu hennar Gerðar Kristnýjar. Við vildum að verkið færi út fyrir hefð­bund­inn ramma tón­verks og fengum Tinnu, sem er leik­kona, til að vera með í sköpun verks­ins. Hún hafði mjög skýra sýn og inn­sæi í ljóð­verkið, sem gerði mikið fyrir heild­ar­verkið. Við settum verkið upp í sinni fyrstu mynd í tón­leik­hús upp­færslu árið 2016 og kjöl­farið lang­aði mig til að gera eitt­hvað meira með þetta, þ.á.m. að taka það upp, og Umbrur voru til í það. Ég óskaði líka eftir að Tinna myndi hanna umslag og bók geisla­disks­ins með myndefn­inu. Ég setti tón­list við þá hluta sem voru leik­lesnir 2016 og Blóð­hófnir fékk að eiga sitt annað heim­ili við upp­tökur og mix með Sturlu Míó Þór­is­syni í Masterkey Studio á Sel­tjarn­ar­nesi. Hann hefur farið fínum höndum um alla hljóð­vinnslu og mikið fyrir þessa útgáfu.

Segið okkur frá þema verk­efn­is­ins

Lilja: Þema verks­ins hverf­ist í mínum huga í kringum ljóð­mæl­and­ann Gerði – mér finnst við allar vera hún í flutn­ingnum, öll hljóð­færin og manns­röddin. Kristínu tekst svo vel að skila efni­við­inum á áhrifa­ríkan hátt, þján­ingin og örlög Gerðar birt­ast á afger­andi hátt í öllu tón­mál­inu.

Kristín Þóra: Já, það var hug­myndin, að hefja upp raust Gerðar og umvefja hana ást. Það skín í gegnum bæði tón­list og mynd­verk. Við vonum að við séum að skapa rými til að hlusta og hug­leiða svo­lítið þessa sögu sem end­ur­tekur sig allt of oft í raun­veru­leik­anum enn þann dag í dag. Ljóð­verkið hennar Gerðar Kristnýjar er ekki bara ný útgáfa af gam­alli sögu úr fornöld heldur sterk ádeila á feðra­veldið, sögð á virki­lega ljóð­rænan og áhrifa­ríkan hátt. Þarna er mikil nátt­úru­feg­urð, vilja­styrkur, kvenna­kraftur, ást og tryggð. Við fáum hrein­lega að lifa og anda með Gerði Gym­is­dóttur, jörð­inni hennar, land­inu hennar, hjart­anu hennar áður en henni er rænt úr heima­hög­unum og það lang­aði okkur til að koma til skila. Tinna hafði þessa sterku inn­sýn og nálgun, að vera sú Gerður Gym­is­dóttir í gegnum alla sög­una frekar en að setja ofbeldið, sem kemur utan frá, í for­grunn­inn, sem var mjög hjálp­legt fyrir mig, því ég veigraði mér við að setja tón­list við ofbeldi eða draga það meira fram sem er svo sterkt og beitt í text­anum. Mynd­verkið veitir þannig sterka nær­veru Gerðar Gym­is­dóttur og upp­lif­anir hennar, fín­lega ofið inn í texta og tón­list með mik­illi dýpt og nánd. Ég hélt mig líka við ver­öld Gerðar, sat lengi með ljóð­inu lifði mig inn í það án þess að skapa tón­list, en fór síðan smám saman að fikra mig að hljóð­færum og þá var ekki lengi að verða til heill heimur í kringum Gerði og röddin hennar marg­fald­að­ist í margra kvenna kór. Þannig viljum við heiðra ljóð­verkið, Gerði Gym­is­dóttur og allar þær konur sem hún talar fyrir. Þótt und­ir­liggj­andi þema sé völd, ógnir og ofbeldi, er heild­ar­verkið óður til kvenna.

Lilja: Ég ýmist syng eða leiktala allan ljóða­bálk­inn. Það er ótrú­legur kynn­gi­kraftur í þessum bálk . Það er auð­velt að hverfa inn í hann og magnað tón­mál Krist­inar - en ég finn líka að ég þarf að stíga alger­lega út úr sjálfri mér til að gera það. Að sumu leyti þarf ég að detta í smá trans til að ná í hug­rekki og miðla þessu verki og öllum þeim hrika­legu og ljúfsáru tillfinn­ingum sem fylgja því.

Kristín Þóra: Lilja Dögg er með mikið burð­ar­hlut­verk sem krefst mjög mik­ils og hún fer alveg stór­kost­lega með þetta. Hún er með æðis­lega rödd og túlkun, með mik­illi breidd og það var svo gaman að vinna með það í ferl­inu -að geta leyft mér eig­in­lega hvað sem er þegar ég var að semja fyrir hana. Allar þessar frá­bæru konur sem koma að verk­inu skila sínu svo ofsa­lega vel og maður finnur hvað ljóð­verkið hennar Gerðar Kristnýjar hefur sterk áhrif á alla sköpun í kringum það. Verkið þykir aðgengi­legt, tón­listin styður við text­ann og er undir beinum áhrifum af honum og end­ur­speglar svo­lítið bæði gamla og nýja tíma. Ég hugsa að þetta sé svona plata sem maður sest niður og hlustar á eins og maður sest niður að lesa bók. Hverju lagi fylgir stilla úr mynd­verki Tinnu og þannig færum við mynd­rænu vídd­ina og upp­lifun­ina til hlust­and­ans í þess­ari útgáfu. Það er líka gaman frá því að segja að upp­færslur okkar hafa fengið rosa­lega góðar mót­tökur. Verkið var valið á meðal 1100 umsókna til flutn­ings á MATA Festival í New York í fyrra og nýverið fluttum við verkið fyrir fullu húsi í Iðnó við frá­bærar mót­tökur.

Á Karolina Fund erum við að safna fyrir hluta af öllum þeim kostn­aði sem er á bak­við útgáf­una. Í umbun erum við með ýmsan varn­ing sem teng­ist verk­inu beint, en einnig eru hægt að fá laga­smíð, útsetn­ingu, tón­list­ar­kennslu og dag í Masterkey studio.

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár