Upphafið - Árstíðaljóð

Safnað fyrir fimmtu ljóð­ar­bók Gunn­hildar Þórð­ar­dóttur.

Upphafið - Árs­tíða­ljóð er fimmta ljóða­bók lista­manns­ins Gunn­hildar Þórð­ar­dóttur en hún kemur út um miðjan sept­em­ber ef söfnun á Karolina Fund gengur vel. Gunn­hildur lauk BA prófi í mynd­list og lista­sögu við Lista­há­skól­ann í Cambridge í Englandi árið 2003 og MA prófi í list­stjórnun frá sama háskóla árið 2006. Hún er nú í við­bót­ar­diplóma í lista­kennslu við Lista­há­skóla Íslands og mun klára í árs­lok 2019.

Hún hefur verið virkur mynd­list­ar­maður síðan hún útskrif­að­ist árið 2003 og unnið bæði sjálf­stætt og fyrir söfn, stofn­anir og félaga­sam­tök sem trún­að­ar­maður og stjórn­ar­maður. Hún hefur unnið í Hafn­ar­borg, hjá Lista­safni Reykja­nes­bæjar og hjá Sambandi Íslenskrar mynd­list­ar­manna (SÍM) bæði sem verk­efna­stjóri gesta­vinnu­stofu og Dags mynd­listar en einnig setið í stjórn SÍM. Gunn­hildur hefur haldið margar einka­sýn­ingar bæði á Íslandi og erlendis.

[adspot]Hún hefur m.a. sýnt í sal Íslenskrar graf­íkur, Lista­safni Reykja­nes­bæjar, Flóru og Mjólk­ur­búð­inni á Akureyri, Gallerí Boxi með systur sinni sem Lúka, 002 gall­erí, sýn­ing­ar­sal SÍM, Borg­ar­bóka­safn­inu, Slunk­a­ríki og Suðsuð­vestur. Hún hefur einnig tekið þátt í mörgum sam­sýn­ingu m.a. í Hafn­ar­borg, Lista­safni Reykja­nes­bæjar, Lista­safni Íslands, Artó­tek­inu, Minja­safni Aust­ur­lands, Þjóð­minja­safn­inu, Lista­há­tíð í Reykja­vík, Norræna hús­inu og tekið þátt í sýn­ingum erlendis í Tate Britain safn­inu, í Norrænu menn­ing­ar­mið­stöð­inni í Boston, graf­ík­sýn­ingum í Þýska­landi, Danmörku, Bret­landi, Svíþjóð og Banda­ríkj­unum. Hún stofn­aði hönn­unar - og lista­fyr­ir­tækið Lúka Art & Design með systur sinni Bryn­hildi Þórð­ar­dóttur og saman tóku þær þátt í mörgum hönn­unar - og list­tengdum við­burðum s.s. Hönn­un­ar­Mars, PopUp við­burðum, sýn­ingum í söfnum og tísku­sýn­ingum en nú rekur Bryn­hildur fyr­ir­tækið ein.

Á tíma­bili rak Gunn­hildur sinn eigin sýn­ing­ar­stað Gallerí Bíll sem tók þátt í ýmsum menn­ing­ar­verk­efnum s.s. menn­ing­ar­há­tíðum í Hafn­ar­firði, Reykja­vík, Keflavík og Degi Mynd­listar. Hún starfar sem tungu­mála-, list - og verk­greina­kenn­ari í Myllu­bakka­skóla í Keflavík og hún á fjóra stráka með enskum manni sínum en saman reka þau lista­verk­efnið RePlace sem býr til list­rænar vörur með sjálf­bærum hætti.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég fékk hug­mynd­ina um söfnun í vor þegar ég kláraði ljóða­bók­ina sem sjálf­stætt verk­efni við Lista­há­skóla Íslands og hélt kynn­ingu á henni í Gunn­ars­húsi í maí. Ég vildi prufa Karolina Fund þar sem ég hef ein­ungis heyrt góða hluti um það verk­efni. Ég hef alltaf gefið út mínar eigin ljóða­bækur og staðið undir öllum kostn­aði sjálf og oft­ast gefið út bækur í tengslum við sýn­ingar. Fyrir mér er mjög eðl­is­lægt að nota texta með verkum og sé ég ljóðin mín oft sem mynd­verk, þ.e. um leið ég er búin að semja ljóð þá teikna ég mynd eða skissa verk með eða öfugt því stundum er ég búin að gera skissu og þá kemur sjálf­krafa ljóð. Ég hef verið að skrifa frá blautu barns­beini ljóð, sögur og dag­bækur.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Þema ljóð­anna minna er oft­ast það sama þetta eru heim­speki­legar vanga­veltur um lífið, ást­ina og nátt­úr­una. Þetta eru róm­an­tískar lýs­ingar á lands­lagi, mann­eskj­unni, menn­ingu og hlutum. Ljóðin í Upphafið - Árs­tíða­ljóð eru hug­leið­ingar allt árið um kring um við­burði, per­sónur og nátt­úru. Þegar ég gaf út Blóð­steina fyrstu bók­ina mína var það svona safn ung­ljóða svo kom pönk­ljóða­bókin mín, DIY ljóð sem var eins konar svar við hrun­inu, Næt­ur­ljóð var mjög róm­an­tísk líkt og Götuljóð. Upphafið - Árs­tíða­ljóð fjallar um ein­hvers konar byrjun eða upp­gjör eins og tit­ill­inn gefur til kynna en líf mitt er mjög árs­tíða­bundið bæði sem kenn­ari og sem móðir. Ég þarf að skipu­leggja allt í kringum í börn sama hvort það er í skól­anum eða heima og ég eyði nán­ast öllum sumrum á fót­bolta­mótum. En það má segja að rauði þráð­ur­inn í ljóðum mínum og mynd­list minni er virð­ing og ábyrgð fyrir nátt­úr­unni sem við erum hluti af og þessi hreina sköpun sem er eðli manns­ins.

Ég mun halda útgáfu­kynn­ingu 5. sept­em­ber næst­kom­andi kl. 16 í Bóka­safni Reykja­nes­bæjar á menn­ing­ar­há­tíð­inni Ljósa­nótt en útgáfu­hóf verður haldið í Hann­es­ar­holti í Reykja­vík 19. sept­em­ber kl. 19.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár