Fræðast um sögu Íslands og samfélag, sagnaarf og menningu

Eliza Reid for­seta­frú stendur nú fyrir söfnun fyrir þátt­töku­styrk sem ætl­aður er þeim sem vilja sækja Iceland Writers Retreat-búð­irnar á Íslandi heim. Þetta er í fimmta sinn sem slík söfnun fer fram.

Styrkþegar IWR árið 2018
Styrk­þegar IWR árið 2018 Mynd: Roman Gerasymenko

Í rit­list­ar­búð­unum Iceland Writers Retreat nýtur fólk, sem vill bæta sig í hvers kyns skrifum, leið­sagnar víð­frægra rit­höf­unda í þeim efnum og sækir jafn­framt menn­ing­ar­tengdar ferðir þar sem fjallað er um bók­menntir Íslend­inga og menn­ing­ar­arf. Sér­stakur þátt­töku­styrkur er ætl­aður þeim sem vilja sækja IWR-búð­irnar en eiga erfitt eða ómögu­legt að standa straum af kostn­aði við það.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Allt frá byrjun hefur fólk hvaðanæva að úr heim­inum sótt IWR-búð­irnar. Okkur lang­aði aftur á móti til þess að gera snjöllum rit­höf­undum og öðrum, sem vildu gjarnan sækja þær en hafa ekki efni á því, kleift að láta þann draum ræt­ast. Verk­efnið kall­ast „Alumni Award“ á ensku því að fyrr­ver­andi þátt­tak­endur fjár­magna það að mestu, auk ann­arra vel­unn­ara IWR. Mér finnst það einmitt gefa vel til kynna að þeir, sem hafa sótt við­burð­inn, kunna að meta hann og vilja leyfa fleirum að njóta sömu reynslu.

[adspot]

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

Við erum núna að afla fjár fyrir þessa styrki í fimmta sinn. Frá árinu 2016 höfum við getað veitt tíu fulla þátt­töku­styrki og sex sem vega á móti hluta kostn­aðar (ekki flug­ferðir og gist­ingu). Þeir, sem hafa notið þess­ara styrkja, eru frá Banda­ríkj­unum, Bret­landi, Indlandi, Kenía, Nígeríu, Suður-Afríku og Súdan. Frá­sagnir þeirra af dvöl­inni í IWR-búð­unum má lesa hér.

Styrk­þegar verða að sýna og sanna að þeim sé ókleift að greiða þátt­töku­gjöld og annað kostnað úr eigin vasa. Þess er ekki kraf­ist að umsækj­endur sinni rit­störfum að atvinnu en til þess er að ætl­ast að þeir unni skrifum og vilji efl­ast á þeim vett­vangi.

Tvennt ræður mestu um það hverjir fá styrk. Annars vegar er litið til þess hvað í styrk­þeg­anum býr og hvaða kosti má þegar sjá á sviði skrifa og rit­listar. Hins vegar er horft til fjár­hags­stöðu.

Eitthvað sér­stakt sem þú vilt að komi fram um þitt verk­efni?

Okkur finnst mjög ánægju­legt að geta veitt þeim styrki sem þurfa greini­lega á þeim að halda. Öllum er heim­ilt að sækja um og margir eru um hit­una; eitt árið bár­ust okkur 750 umsóknir. Styrk­þeg­arnir þjálfast í skrifum og njóta góðs af kynnum við leið­bein­endur og aðra þátt­tak­endur. Þeir fræð­ast auk þess um sögu Íslands og sam­fé­lag, sagna­arf og menn­ingu, og segja gjarnan frá dvöl sinni hér (sjá t.d. þessa lof­gjörð um íslenskar bók­menntir í Hindu Business Online). Fátt þykir mér skemmti­legra við IWR en þetta, að geta stutt þá til þátt­töku sem eiga það svo sann­ar­lega skilið.

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár