STARA - The Music of Halldór Smárason: verkefni sem samfélagið umvafði

Halldór Smárason safnar fyrir útgáfu á fyrstu plötu sinni á Karolina fund.

Í sumar kemur út fyrsta hljóm­plata Halldórs Smára­sonar, STARA, undir merkjum banda­ríska útgáfu­fyr­ir­tæk­is­ins Sono Luminus. Á disknum verður þver­skurður af verkum Halldórs síð­ustu ár, þar á meðal þrír strengja­kvar­tettar hans, tvö kamm­er­verk og ein­leiks­verk fyrir gítar og raf­hljóð. Í kjöl­far útgáfu plöt­unnar verða haldnir útgáfu­tón­leikar í Hömrum á Ísafirði og Kalda­lóni Hörpu í Reykja­vík.

Halldór Smárason hefur komið víða við í tón­list­ar­líf­inu sem hljóð­færa­leik­ari og tón­skáld. Hann hefur unnið með þekktum hópum hér­lendis og erlendis, svo sem Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands, Útvarps­hljóm­sveitum Parísar og Stutt­gart auk mörgum þekktum kamm­er­sveitum. Þá hefur Halldór getið sér gott orð sem píanó­leik­ari og útsetj­ari, leikið inn á hljóm­diska og komið margoft fram með ýmsum hópum, meðal ann­ars Sæta­brauðs­drengj­unum.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Síðan ég byrj­aði að semja tón­list hefur mig dreymt um að gefa út plötu með eigin verkum. Hug­myndin að STARA varð til þegar ég samdi verk fyrir plötu Sæunnar Þor­steins­dóttur selló­leik­ara, sem gefin var út hjá Sono Luminus. Í kjöl­farið hófust við­ræður um sam­starf við plötu­út­gáf­una og bolt­inn fór að rúlla. Að taka upp og gefa út plötu með Sono Luminus í bestu mögu­legu hljóm­gæðum og með fram­úr­skar­andi flytj­endum var ómet­an­legt.

[adspot]Upptökur á STARA fóru fram í Hömrum, sal Tón­list­ar­skóla Ísa­fjarðar, í júní 2019. Ég fann fljót­lega fyrir löngun að taka upp mína fyrstu plötu heima fyrir vestan. Þar liggja mínar rætur og hlaut ég tón­list­ar­legt upp­eldi innan veggja skól­ans. Stór hópur hljóð­færa­leik­ara og tækni­manna lagði leið sína vestur til að gera þennan draum minn að veru­leika, á þeim slóðum sem fyrstu hug­myndir mínar byrj­uðu að þró­ast.

Ég vissi að það yrði krefj­andi að koma öllu teym­inu vestur en þegar allt kom til alls reynd­ist það marg­borga sig. Sam­fé­lagið allt umvafði verk­efnið og fjöl­margir ein­stak­lingar lögðu hönd á plóg, til að mynda við að koma okkur fyrir í tón­list­ar­skól­anum, sam­ræma við úti­leik­tíma leik­skóla­deildar sem var í sama húsi, redda veit­ingum, skutla tækni­mönnum frá Kefla­vík­ur­flug­velli til Ísa­fjarðar, búa til myndefni á töku­stað, skutl­ast með skil­rúm og palla, færa flygil­inn og margt fleira. Aldrei kom upp neitt stór­mál sem ekki var hægt að redda; allir voru boðnir og búnir að rétta hjálp­ar­hönd. Á Ísafirði gafst einnig góður vinnu­friður og þar skap­að­ist ein­stakt and­rúms­loft innan hóps­ins sem gerði gerð plöt­unnar eft­ir­minni­lega og ánægju­lega.

Eftir að söfn­unin hófst á Karolina Fund hefur svo komið í ljós að mitt heima­fólk lætur ekki gest­risn­ina duga því margir hafa einnig styrkt verk­efnið fjár­hags­lega. Án þeirra stuðn­ings yrði platan aldrei að veru­leika. Fyrir þetta er ég ofboðs­lega þakk­látur.“

Segðu okkur frá tón­list­inni?

Verkin á plöt­unni eru inn­blásin af ýmsum per­sónu­legum upp­lif­unum og fólki í lífi Halldórs. Þannig má nefna strengja­kvar­tett­inn draw + play sem byggður er á harm­óníku (drag­spili, sbr. titl­inum) og til­eink­aður harm­óníku­unn­end­unum, heið­urs­hjón­unum og vin­unum Ásgeiri Sig­urðs­syni og Messíönu Marzellíusdóttur á Ísafirði. Þá er kamm­er­verkið _a_at_na byggt á per­sónu­legri upp­lifun Halldórs af kvíða og loks er Stara, verk sam­nefnt plöt­unni, til­einkað móður Halldórs sem missti sjón­ina og varð blind fyrir nokkrum árum.

Strokkvar­tett­inn Siggi ann­ast hljóð­færa­leik að miklum hluta. Kvar­tett­inn skipa þau Una Svein­bjarn­ar­dóttir og Helga Þóra Björg­vins­dóttir á fiðlur, Þórunn Ósk Mar­in­ós­dóttir á víólu og Sigurður Bjarki Gunn­ars­son á selló. Aðrir hljóð­færa­leik­arar eru Emilía Rós Sig­fús­dóttir, Geir­þrúður Ása Guð­jóns­dóttir, Gunn­laugur Björns­son, Helga Björg Arn­ar­dóttir og Tinna Þor­steins­dóttir.

Platan er frá­brugðin flestum öðrum með til­liti til upp­töku­tækni en auk þess að vera gefin út í hefð­bundnu víð­ómi (stereo) er hún einnig áheyr­an­leg í hringómi (fully immersive audio / surround), í allt að 9 rásum eða hátöl­urum. Með því móti er hægt að njóta tón­list­ar­innar til fulls eins og henni er ætlað að hljóma. Þetta skapar ein­staka dýpt og gerir hlust­and­anum kleift að sitja inn í miðju upp­töku­rým­inu með hljóð­færin allt í kringum sig.

Útgef­andi er banda­ríska útgáfu­fyr­ir­tækið Sono Luminus. Fyr­ir­tækið gefur út fjölda hljóm­platna á ári hverju og hafa margar þeirra hlotið til­nefn­ingu til Grammy-verð­launa. Útgáfan hefur á und­an­förnum árum unnið með nokkrum íslenskum tón­skáldum og tón­list­ar­mönnum, þar á meðal Sæunni Þor­steins­dóttur, Önnu Þor­valds­dóttur, Daníel Bjarna­syni, Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands og Nordic Affect. Hljóð­meist­ari (producer) plöt­unnar er Dan Merceruio og tón­meist­ari (audio engineer) er Daniel Shores.

Á Karolina Fund stendur fólki til boða að koma að verk­efn­inu með ýmsum hætti. Auk þess að tryggja sér geisla­diskinn í for­sölu býð ég fólki að koma á huggu­lega stofu­tón­leika heima hjá mér og fjöl­skyldu minni í Hvera­gerði, kaupa miða á útgáfu­tón­leika sem fram fara í Reykja­vík og á Ísafirði, eða fá mig til koma fram í veislu.

Þá er hægt að kaupa lista­verk eftir Bert Yarborough. Við Bert kynnt­umst í res­idens­í­unni Civitella Ranieri í Umbria á Ítalíu vorið 2018 og ákváðum fljót­lega að vinna saman. Því höfum við hafið sam­starf að nýju verki sem bygg­ist á nótum af tón­verkum á STARA. Bert notar radd­skrár verk­anna sem hrá­efni og býr til ný mynd­list­ar­verk sem ég mun aftur koma til með að nota sem efni­við fyrir nýtt tón­verk.

Til stuðn­ings útgáfu plöt­unnar hefur Bert ákveðið að bjóða tak­markað upp­lag af end­ur­prentun lista­verk­anna, byggt á tón­verk­inu stop bre­at­hing.

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár