Fyrsta breiðskífa Toymachine

Hljóm­sveit sem stofnuð var fyrir 24 árum, og er með frægan leik­stjóra á tromm­unum, ætlar að gefa út sína fyrstu plötu. Safnað er fyrir henni á Karolina Fund.

Meðlimir hljóm­sveit­ar­innar Toymachine, sem stofnuð var síðla árs 1996, þá undir nafn­inu Gimp, hafa sett af stað söfnun inn á Karolina Fund til að safna fyrir gerð á sinni fyrstu breið­skífu.

Toymachine stefna á útgáfu um mán­aða­mótin nóv­em­ber/des­em­ber þessa árs og verður gefið út á vínyl sem og á öllum helstu streym­isveitum.

Um tveimur árum eftir stofnun Gimp breyttu með­limir bands­ins nafn­inu í Toymachine. Á sama tíma þyngd­ist tónn þeirra og einn með­limur bætt­ist í hóp­inn. Sveitin spil­aði víða næstu árin, meðal ann­ars í flug­skýli númer 4 á Reykja­vík­ur­flug­velli árið 1999 á fyrstu Iceland Airwaves hátíð­inni sem þar var haldin. Sveit­inni var þá boðið að spila í kjöl­farið á hinum goð­sagna­kennda tón­leika­stað CBGB´s á Man­hattan í New York sem þeir þáðu, enda var stefnan sett á heims­yf­ir­ráð.

[adspot]Sveitin var hvað virk­ust til árs­ins 2001 en það ár kom hún fram á sínum lokatón­leikum þar sem þeir spil­uðu ásamt Jet Black Joe. Aldrei náði bandið að koma út sinni eigin plötu en þó átti hún tvö lög á safn­plöt­unni MSK (1999) og lagið Be Like Me má finna í bíó­mynd­inni „Óskabörn þjóð­ar­innar” eftir Jóhann Sig­mars­son frá árinu 2000, en það sama ár var Toymachine einmitt til­nefnd til íslensku tón­list­ar­verð­laun­anna sem bjartasta vonin en laut í lægra haldi fyrir MÚM.

Nú hafa með­limir Toymachine sett af stað söfnun inn á Karolina Fund eins og áður segir en þeir ætla að freista þess að safna fyrir gerð plöt­unnar sem aldrei kom út.

Trommari Toymachine er hinn góð­kunni leik­stjóri Baldvin Z og söngv­ari er Jens Ólafsson sem hefur gert garð­inn frægan í hljóm­sveit­inni Brain Police síð­ustu 20 ár, eða allt frá því Toymachine hætti form­lega störfum. Aðrir með­limir eru þeir Kristján Elí Örn­ólfs­son gít­ar­leik­ari og Atli Her­geirs­son bassa­leik­ari. Þá starf­aði Árni Elliott í band­inu á árunum 1999-2001 sem með­söngv­ari og plötu­snúður.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?
„Það hefur alltaf setið fast í okkur að hafa ekki komið út okkar eigin plötu á sínum tíma. Við eigum gríð­ar­lega mikið efni til sem okkur finnst hafa elst sér­stak­lega vel en við eigum aðeins til á fjöl­mörgum “demo” upp­tökum. Núna viljum við endi­lega deila þessu efni með öðrum enda þrusu gott stöff þó við segjum sjálfir frá.

Eftir að hafa komið saman til að spila nokkrum sinnum opin­ber­lega síð­ustu 5 árin ákváðum við að athuga hvort að við gætum farið þessa leið og safnað fyrir gerð plöt­unnar á þennan hátt. Við náum ennþá ótrú­lega vel saman og höfum ekki þurft nema eina til tvær æfingar til að slípa allt til fyrir tón­leika, þá fórum við að spyrja okkur hvers vegna í ósköp­unum platan okkar væri ekki til?“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?
„Rokk & ról að krafti og eins og það ger­ist best. Þetta verður um 10 til 11 laga plata sem geymir lög úr okkar smiðju aðal­lega frá árunum 1999-2001 hvar við vorum sem frjó­astir í laga­smíðum. Okkur finnst hálf ótrú­legt oft þegar við heyrum þessi gömlu lög hvað þau eru "current" í dag þó ýmsu þurfi oft að breyta örlítið. Sem dæmi verður ekki mikið um "DJ-skratz" o.þ.h eins og mörg okkar laga inni­héldu hér áður fyrr heldur verður því haldið í lág­marki og jafn­vel skipt út fyrir annað. En þroski okkar bæði sem mann­eskjur sem og tón­list­ar­menn og flytj­endur gefa þessum gömlu lögum ákveðna vikt og algjör­lega nýtt líf."

Er eitt­hvað sér­stakt sem þið viljið að komi fram um verk­efnið?

„Við biðlum til fólks af algjörri auð­mýkt enda er þetta alls ekki ókeypis að gera loks­ins plöt­una okkar og á þann hátt sem við kjósum. Margt smátt gerir eitt stórt, svo sann­ar­lega. Til þess að aðstoða okkur við gerð plöt­unnar höfum við fengið til liðs við okkur ein­vala lið, bæði hvað varðar sjálfar upp­tök­urnar sem og útsetn­ingar sem skiptir gríð­ar­legu máli. Við tökum okkur dágóðan tíma í verkið og viljum skila af okkur plötu sem við getum allir verið stoltir af um ókomna tíð. Við setjum miklar kröfur á okkur sjálfa við gerð þess­arar plötu og fólk verður mjög lík­lega ekki svikið af hvorki henni né svo útgáfu­tón­leik­unum okkar sem við munum halda sam­hliða útgáf­unni og verða allir hinir glæsi­leg­ustu.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í útgáf­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár