„Að hanna er eins og að anda með heilanum“

Guðrún Margrét Jóhanns­dóttir safnar nú fyrir nýrri hönnun á Karolina Fund.

Guðrún Margrét Jóhannsdóttir
Guðrún Margrét Jóhanns­dóttir Mynd: Aðsend mynd

„Að hanna er eins og að anda með heil­anum,“ segir Guðrún Margrét Jóhanns­dóttir hönn­uður. Hún segir að ferlið verði mjög til­finn­inga­lega tengt og nái hápunkti þegar hug­vit, útlit og virkni falla í ljúfa löð. Ferlið fái svo ákveðna mynd á sig og ver­ald­legan til­gang sem svo finni sinn far­veg. „Sá far­vegur gæti verið á mat­ar­borð­inu heima hjá þér, inní eld­hús­inu þínu, á öxl­inni þinni eða í allt öðru sam­hengi, jafn­vel án þess efn­is­læga.“

Hún ólst upp á opn­unum mynd­lista­sýn­inga hér­lendis sem erlendis. Hún man bara eftir að hafa farið á jóla­böll í sal Ásmundar Sveins­sonar mynd­höggv­ara sem barn og allar utan­lands­ferðir með for­eldrum hennar gengu út á að fara á lista­festi­völ og fleira í þeim dúr.

Guðrún Margrét safnar nú fyrir nýrri hönnun á Karolina Fund sem hún kallar hvít­lauks­skál­ina. Hún er í senn verk­færi og borð­bún­aður og auð­veld í þrifum. „Með skál­inni er lífið dans á rósum og ham­ingjan óend­an­leg! Þú nuddar hvít­lauknum við rifjárnið í botni hennar og hellir olíu yfir og útkoman er; hvít­lauks­olía!“ segir í kynn­ing­ar­text­anum.

„Hönnun í mínum huga þýðir ekki að eiga fullt heldur þvert á móti, að eiga fátt sem þjónar þér og þínu lífi og þú getur átt lengi. Ég nán­ast til­bið hand­verkið vegna þess að ég dýrka slátt­inn í hinum líf­ræna tím­anum, að verja honum og ekki eyða, þessi kombína­sjón er fyrir mér sama sem súr­efnið sem heldur í okkur lífi og elur af sér vilja í verki og þ.a.l. gefur okkur roða í kinn­arnar,“ segir Guðrún Margrét.

Hún seg­ist velja að setja sig ekki undir einn hat í hönnun, þar sem hönnun fyrir henni sé ekk­ert nema lífið sjálft með öllum sínum útur­dúrum í bland við kóríógraf­í­una sem endrum og eins gengur upp og slær í gegn.

„Ég hef fengið svo mörg og ólík verk­efni upp í hend­urnar og tel ég það kost og til­efni til þess að getað þroskast sem mann­eskja og hönn­uður.

Ég hef til dæmis yndi af hönnun sem þjónar fleiri en einum til­gangi, eins og Hvít­lauks­skálin sem í senn er verk­færið og borða­bún­að­ur­inn í eina og sama hlutnum,“ segir hún.

„Hæg hönnun er annar vín­k­ill sem ég gef allan minn gaum og er í miklu upp­á­haldi hjá mér, því ég tel hana eins þarfa nátt­úr­unni og öllu því sem bær­ist á jarð­kúl­unni eins og höf­uð­átt­irnar eru ferða­lang­anum úti í víð­átt­unni uppi á hálend­inu. Þar er merg­ur­inn máls­ins að sam­eina hugs­un­ina, til­finn­ing­una og gjörð­ina eða þörf­ina og heið­ar­leik­inn tekur öll völd því ferlið fær sitt sjálf­stæði í tím­anum sem það tekur og því ekki kom­ist hjá umhugsun og að velta vöngum í allar áttir og draga djúpt inn and­ann.“

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég var búsett í Barcelona þegar ég kynnt­ist pan con tomate aðferð­inni þeirra Kata­lóníu búa sem er ristað brauð smurt með tómati, svo er salti stráð yfir og síðan olífu olíu hellt yfir og önnur brauð­sneið notuð til að þjappa gums­inu öllu vel saman. En þar sem ég er mikil pizzugerða kona og hrein­lega elska hvít­lauk og alls hins góða sem hann hefur okkur upp á að bjóða, þá nudda ég alltaf fyrst afskornum hvít­lauk í sárið á brauð­sneið­inni og bæti svo öllu hinu við. Og svo hef ég alltaf átt í basli með hvít­lauks­press­una og hjálp­aði það basl til við að fá hug­mynd­ina að Hvít­lauks­skál­inni. Hún er dæmi um hönnun sem þjónar tvennum til­gangi en einnig fækkun hluta.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

„Að varpa ljósi á mik­il­vægi hönn­unar en í leið­inni að nær­gætni gagn­vart okkar nán­asta umhverfi er mikið þarfa­þing. Skálin er óður til jarð­ar­innar og eins konar minn­is­varði hennar og þess vegna fannst mér mik­il­vægt að bein snert­ing með fingr­unum utanum hvít­l­auk­inn ætti sér stað svo að til­finn­ingin, verkn­að­ur­inn og útkoman rynni í eitt. Er ekki allt komið af jörðu og af jörðu skal allt verða?

Hversu mik­il­vægt er að vera mann­eskja og vilja og kunna að fram­kalla hug­myndir sínar til þess að geta borið á borð góðan mál­stað. Og hvað baslið getur orðið eitt­hvað lýrískt og harm­ónískt ef maður kýs að horfa þanig á vand­ræði breyt­ast þau í verk­efni. Það er eins og það sé ástæða fyrir öllu og þegar maður fer að taka eftir því fer allt að meika sens. Sem skúlp­t­úristi, hönn­uður og lista­kenn­ari finnst mér dálítið mitt mis­sjón í líf­inu að leggja áherslu á mik­il­vægi þess að fá að vera í takt við ryðman sem á við okkur sem og jörð­ina. Allt á sinn sama upp­runna þó mynd­irnar séu eins og ólíkar og þær eru margar.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár