Aukinn áhugi smærri vaxtarfyrirtækja á því að skrá sig á íslenskan markað

For­stjóri Kaup­hallar Íslands segir að breyt­ingar hafi orðið á mark­aði eftir að höftum var lyft. Erlent fjár­magn hafi streymt inn um tíma og fyr­ir­tæki nota sér mark­að­inn til að afla tug millj­arða króna til að kaupa önnur.

Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, segir að stórar breyt­ingar hafi átt sér stað á íslenska mark­aðnum á und­an­förnum árum. Fyr­ir­tæki sem eru þar skráð séu meðal ann­ars farin að afla sér hárra fjár­muna á mark­aði til að kaupa önnur fyr­ir­tæki og mik­ill áhugi sé á meðal smærri vaxta­fyr­ir­tækja á skrán­ingu.

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar við Pál í þætt­inum 21 á Hring­braut í síð­ustu viku. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Staðan í íslensku Kaup­höll­inni er um margt óvenju­leg. Mörg fyr­ir­tækj­anna sem í henni eru hafa verið end­ur­skipu­lögð eftir að hafa lent í fjár­hags­erf­ið­leikum og Kaup­höllin síðan notuð til að koma þeim í nýtt eign­ar­hald. Þá eru flest fyr­ir­tækin sem skráð eru á markað þjón­ustu­fyr­ir­tæki en ekki hug­verks­fyr­ir­tæki sem þurfa aukið fjár­magn til að halda áfram að vaxa.

[adspot]Páll seg­ist hafa orðið var við mik­inn og auk­inn áhuga smærri vaxta­fyr­ir­tækja á því að skrá sig á markað. Kaup­höllin sé nú í fyrsta sinn í vetur með nám­skeið sem und­ir­býr fyr­ir­tæki fyrir skrán­ingu á First North mark­að­inn.

Út frá stærð mark­að­ar­ins höfðu þau verið sátt með 5-10 félög sem hefðu sótt um. „Nú er það svo að við erum með 17 félög sem taka þátt í þessu prógrammi í vetur. Þetta eru þekk­ing­ar­fyr­ir­tæki og vaxt­ar­fyr­ir­tæki eig­in­lega ein­göngu. Smærri fyr­ir­tæki sem þurfa að afla sér fjár­magns.[...]Þarna hefur orðið að mínu viti merki­leg breyt­ing.“

[links]Páll segir einnig að á síð­ustu 12-18 mán­uðum hafi orðið ákveðnar breyt­ingar á stöð­unni á aðal­mark­aði, sér­stak­lega eftir að gjald­eyr­is­höftum var aflétt. „Við sjáum inn­flæði erlends fjár­magns. Reyndar hefur það minnkað í ár. Og jafn­framt sjáum við að fyr­ir­tæki eru farin að nýta sér mark­að­inn með öðrum hætti en var. Á síð­ustu tólf mán­uðum höfum við séð fimm fyr­ir­tæki afla sér um 30 millj­arða á mark­aði til þess að kaupa önnur fyr­ir­tæki eða hlut í öðrum fyr­ir­tækjum. Þetta er gjör­breyt­ing frá því sem var fyrir nokkrum árum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár