Karolina Fund: Þegar Hermann kom í heiminn

Karolina Fund-verk­efni vik­unnar er þýð­ing á barna­bók um bið eftir litlu systk­ini og það magn­aða ferli sem með­ganga og fæð­ing er.

Þegar Hermann kom í heiminn
Þegar Hermann kom í heim­inn Mynd: Karolina Fund

Dagný Erla Vil­bergs­dóttir hefur þýtt bráð­skemmti­lega og fræð­andi barna­bók um bið eftir litlu systk­ini og það magn­aða ferli sem með­ganga og fæð­ing er. Bókin heitir á frum­mál­inu Da Knud kom ud og er eftir danska höf­unda, ann­ars vegar faðir drengs­ins sem fæð­ist í bók­inni, Jesper Manniche, og hins vegar heima­fæð­ing­ar­ljós­móð­ur­ina sem tók á móti drengnum, Susanne Warming og ber hún vott af húmor og létt­leika Dana.

Bókin segir frá fjög­urra ára stóru systur sem bíður eftir fæð­ingu litla bróður en það er litli bróð­ir­inn sjálfur, Hermann, sem segir sög­una. Hún segir um leið frá und­ir­bún­ingi fjöl­skyld­unnar saman og er full af góðum umræðu­efnum og hug­myndum að við­fangs­efnum á með­göngu meðan beðið er eftir systk­in­inu. Bókin er fal­leg saga og ein­stakur und­ir­bún­ingur fyrir eðli­legt fæð­ing­ar­ferli bæði fyrir börnin og for­eld­rana sjálfa.

[adspot]

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Ég rakst á þessa bók fyrir ári síðan úti í Danmörku þegar ég var á nám­skeiði þar fyrir doulur varð­andi kennslu í fæð­ingarund­ir­bún­ingi og varð alveg heilluð af þess­ari dásam­legu bók, boð­skap hennar og hversu skemmti­lega hún er skrifuð.

Það sem heill­aði mig líka hvað mest var ekki bara hversu skemmti­leg og fræð­andi hún er fyrir verð­andi systk­ini heldur líka hversu frá­bærum upp­lýs­ingum hún kemur líka til skila til verð­andi for­eldra um fæð­ing­una og hvað það er sem skiptir máli í fæð­ing­unni sjálfri svo hún geti gengið sem eðli­leg­ast fyrir sig.

Það var í raun­inni það sem gerði það að verkum að mig lang­aði til að ráð­ast í að gera hana aðgengi­legri fyrir íslensk börn og for­eldra.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins.

Bókin er skrifuð um heima­fæð­ingu og hugsuð sem efni til að und­ir­búa börn sem fá að upp­lifa fæð­ingu og er því opin og ein­læg umræða í bók­inni og mik­ill fróð­leikur um lík­amann en fynd­inn leikur að orðum ein­kennir hana jafn­framt.

Bók sem þessi er eins­dæmi hér á landi varð­andi efni til að und­ir­búa systk­ini fyrir heima­fæð­ingu en þar sem fæð­ing­ar­ferlið er hið sama burt­séð frá fæð­ing­ar­stað er hún gott inn­legg í umræður hjá fjöl­skyldum sem eiga von á barni hver sem fyr­ir­hug­aður fæð­ing­ar­staður er. Bókin er gott inn­legg í það að börn alist upp við góðar og heil­brigðar fæð­ing­ar­sögur strax í barn­æsku sem verð­andi for­eldrar fram­tíð­ar­innar. Ekki veitir af mót­vægi gegn þeim skila­boðum sem borist hafa úr heimi bíó­mynd­anna und­an­farna ára­tugi sem hafa því miður oft­ast verið á þann veg að ýta undir hræðslu við fæð­ingar.

Bókina má lesa fyrir börn á öllum aldri og þau munu skilja hana hvert á sinn hátt út frá þeirra þroska. Þetta er í raun bók sem á erindi við alla og flest börn hafa gaman af að lesa um eða heyra sögu um hvernig þau komu í heim­inn. Bókin er sér­lega skemmti­lega mynd­skreytt og heillar unga les­endur sem aldna.

Hér má sjá og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár