Einar Óli – „Mind like a maze“

Hús­vík­ingur safnar fyrir sinni fyrstu plötu.

Einar Óli er laga og texta­smiður frá Húsavík sem er að vinna að sinni fyrstu plötu. Hann stundar nám við Tón­list­ar­skól­ann á Akureyri og þar er hann á braut sem kall­ast skap­andi tón­list. Einar hefur verið að skapa tón­list síð­ast­liðin fjögur ár og er kom­inn með góðan slatta af lögum í bunk­ann. Með honum í liði eru þeir Kristján Edel­stein sem sér um alls­konar und­ir­leik, upp­tökur og hljóð­blöndun, Haukur Pálmason sér um hljóð­jöfnun, Guðjón Jónsson píanisti og Bergur Einar Dag­bjarts­son trommu­leik­ari svo ein­hverjir séu nefndir. Söfnun fyrir útgáfu­kostn­aði er hafin inni á Karolina­fund.is og þar er hægt að leggja Einari lið. Kjarninn tók Einar að tali.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Hún vakn­aði bara eig­in­lega strax þegar ég byrj­aði að kenna sjálfum mér á gítar. Mér hefur alltaf fund­ist jafn gaman að skapa eitt­hvað nýtt og nota ímynd­un­ar­aflið, og um leið og ég byrj­aði að semja, þá var þetta strax eitt­hvað sem ég vildi gera af fullum krafti en hafði kannski ekki kjarkinn í það þá. En ég held að ég sé að gera þetta á hár­réttum tíma. Ég þurfti þennan tíma til að verða betri og læra á rödd­ina mína, en þessi hug­mynd hefur kallað á mig í þónokkur ár.

[adspot]

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

Þema plöt­unnar í stuttu máli er eitt stórt völ­und­ar­hús.
En á góðri íslensku, þá heitir platan „Hugur eins og völ­und­ar­hús“.
Það glíma allir við ein­hverjar þrautir og erf­ið­leika á lífs­leið­inni og stundum er eins og að þrautin sé ómögu­leg að leysa. Völ­und­ar­húsið er í raun­inni mynd­lík­ing sem ég nota í þessu sam­hengi og það sem ég er að reyna að segja, er að lífið er enda­laust af þrautum og völ­und­ar­húsum. En eins og frændi minn Bob Marley sagði einu sinni er það eins sem skiptir máli: „Don't worry about a thing, cause every little thing is gonna be alright.“

Hvenær kemur platan út?

Það er ekki komin stað­fest dag­setn­ing, en ef allt gengur eins og áætlað er þá kemur hún út í sept­em­ber. Við ætlum þó að gefa út eitt lag af plöt­unni aðeins fyrr, bara svona til að gefa smá smakk af þessu. Ég er orð­inn gríð­ar­lega spenntur að sleppa tak­inu og gefa þetta út.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár