Helgi á Prikinu

Magnea B. Valdi­mars­dóttir, leik­stjóri, er að safna styrkjum á Karolina Fund til að þess að klára heim­ild­ar­mynd um Helga Hafnar Gestsson, sér­lega ynd­is­legan, fasta­gest á Prikinu

Helgi á Prikinu
Helgi á Prikinu Mynd: Ómar Sverrisson

„Myndin hverf­ist um fasta­gest­inn Helga Hafnar Gestsson en mig langar til að blanda saman ljós­myndum úr for­tíð og nútíð sem segja mikið um mann­lífið á þessu svæði í miðbæ Reykja­víkur.“ 

Prikið kaffi­hús í miðbæ Reykja­víkur á sér langa og lit­ríka sögu. Í dag er rekið þar kaffi­hús á dag­inn en skemmti­staður á kvöldin og um helgar. Prikið er vagga íslenskrar hip hop menn­ingar og þar fá lista­menn að njóta sín hvort sem þeir fást við tón­list, mynd­list eða eitt­hvað annað. Prikið er með góðan fastakúnna­hóp en þó er einn mið­bæj­ar­k­arakter og fasta­gestur sem sker sig ávallt úr hópnum. Það er ljúf­mennið Helgi Hafnar sem mætir á Prikið dag­lega með bros á vör, allir kepp­ast um að faðma hann því hann hefur ein­stak­lega kær­leiks­ríka nær­veru. Hann virð­ist þríf­ast vel á rútínu, sest alltaf á sama stað (sem hann hefur gert ára­tugum saman), fær alltaf sama bolla og með bros á vör spjallar hann við unga sem aldna, ferða­menn, pönk­ara og heim­spek­inga. Mið­bær­inn og Prikið væru ekki eins skemmti­leg án Helga sem er krydd í til­ver­una og mik­ill visku­brunnur um sögu eins fyrsta kaffi­húss Reykja­víkur.

Áður hefur Magnea B. Valdi­mars­dóttir, leik­stjóri unnið heim­ilda­mynd­irnar Hverf­is­götu, Bónus­konur og Kanarí og er nú að safna styrkjum til þess að klára mynd­ina ,,Helgi á Prikinu".

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Ég hef verið að vinna myndir um mið­bæ­inn frá 2011. Það er greini­lega úr mörgu að velja og safa­ríkt efni fyrst ég held mig við hann. Kannski vegna þess að ég hef verið búsett hér svo lengi og tek eftir hlutum sem aðrir sjá ekki, líkt og að búa í litlu þorpi úti á landi en vera aðfluttur. Raun­veru­leik­inn er svo stór­kost­legt við­fangs­efni.

Hitt er bara froða. Nei, djók.

Við ætlum að reyna að fanga and­rúms­loftið í kringum Helga sem er alveg ein­stakt. Allir virð­ast róast og verða ögn betri og hlý­legri eftir stutta stund í návígi við hann. Það var kona sem þekkir Helga (eins og svo margir) sem sagði við mig að hann væri jafn­vel of góður fyrir þennan heim. Þess vegna er svo mik­il­vægt að kveikja von. Hraðinn og jafn­vel aukin með­vit­und um stöðu mála í heim­inum er að gera okkur öll örlítið geð­veik­ari og þá eru allir að hugsa um sig í stað þess að taka sér tíma til að horfast í augu, bjóða góðan dag­inn og spjalla örlítið. Mynda tengsl og sýna hvort öðru hlýju. Auk þess á Prikið sér merki­lega sögu sem Helgi þekkir vel og gaman að blanda því við list­sköpun ungs fólks í dag, t.d. er hip hop senan á Íslandi og ýmis gras­rót afar tengd Prikinu.

Þetta er í annað sinn sem Magnea stendur fyrir söfnun á Karolina­fund en hin söfn­unin vegna ,,Kanarí" sem hún gerði með Mörtu Sigríði Pét­urs­dóttur gekk vonum framar. ,,Það er bara ósk­andi að maður geti farið að gera þetta að lifi­brauði sínu og að maður þurfi ekki alltaf að reiða sig á gæsku almenn­ings. En er óskap­lega þakk­lát fyrir stuðn­ing­inn. Maður fer nú ekki út í heim­ilda­mynda­gerð til að græða neitt á því eins og vinur Helga á Prikinu spyr mig reglu­lega um."

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár