Fæðan fyrstu árin ræður örveruflórunni

Ný rann­sókn und­ir­strikar enn og aftur hversu mik­il­væg móð­ur­mjólkin er fyrir unga­börn.

Umræðan um örveruflór­una heldur áfram. Það að við­halda heil­brigðri örveruflóru er ekk­ert grín, og getur heil­brigði þar­manna haft heil­mikið að segja um heil­brigði okkar sem ein­stak­linga. Það er því skilj­an­legt að fólki sé mikið í mun að koma skikki á þessar millj­ónir líf­vera í lík­ama okkar.

Þegar við komum í þennan heim er lík­ami okkar svo gott sem bakt­eríu laus. Hvernig fæð­ingin á sér stað, þ.e. hvort við eru tekin með keis­ara­skurði eða fæð­umst í gegnum leggöngin hefur sýnt sig að hefur áhrif á örveruflóru okkar. Annar mjög stór þáttur í upp­bygg­ingu örveruflóru ungra barna er svo auð­vitað fæðu­val.

Móð­ur­mjólkin er sú fæða sem er ætluð unga­börnum og er hún ekki aðeins full­kom­lega sam­sett af nær­ing­ar­efnum fyrir nýbura heldur inni­heldur hún einnig efni sem stuðla að heil­brigðri örveruflóru. Í rann­sókn sem var birt í Nature í síð­asta mán­uði stað­festir vís­inda­hópur við Newcastle Uni­versity þetta í örveruflóru hátt í 800 unga­barna.

Til að skoða þróun örveruflór­unni voru gerðar rað­grein­ingar úr saur­sýnum barn­anna frá 3ja mán­aða aldri þeirra og allt þar til þau urðu 46 mán­aða. Í árum talið eru 46 mán­uðir svo gott sem 4 ár.

Í rann­sókn­inni kemur skýrt fram hvernig móð­ur­mjólkin við­heldur vexti Bifidobacterium bakt­ería en þær telj­ast almennt góðar fyrir heilsu okkar (probiotics). Um leið og börn fara að borða fasta fæðu verða heil­miklar breyt­ingar á örveruflór­unni, sem sér í lagi sést á aukn­ingu Firmicutes bakt­ería helst á kostnað Bifidobacterium.

Firmicutes eru mjög algengar í örveruflóru full­orð­inna ein­stak­linga, enda eru börn sem eru að byrja að borða fasta fæðu að mynda sína eigin örveruflóru sem mun fylgja þeim fram á full­orð­ins ár. Samkvæmt mæl­ingum rann­sókn­ar­hóps­ins er örveruflóran einmitt nokkurn veg­inn stöðug þegar börn hafa náð 30 mán­aða aldri (sem sam­svarar 2,5 ári).

Rúmlega fyrsta árið eru börn að þróa með sér örveruflóru. Hún stjórn­ast m.a. út frá því hvort þau eigi eldra systk­ini, búi nálægt dýrum eða eru nærð á móð­ur­mjólk. Frá 15 mán­aða til 30 mán­aða aldri verða svo miklar breyt­ingar í örveruflór­unni, vegna breyt­inga á fæðu­vali sem endar svo í stöðugri flóru eftir tveggja og hálfs árs aldur.

Þessi rann­sókn und­ir­strikar enn og aftur hversu mik­il­væg móð­ur­mjólkin er fyrir unga­börn. En á sama tíma hjálpar hún okkur að skilja hvaða þættir eru mik­il­vægir við þróun þurr­mjólkur. Sum börn eiga ein­fald­lega ekki kost á því að fá móð­ur­mjólk og því er mjög mik­il­vægt að við nýtum þá miklu vit­neskju og tækn­ina til að afla hennar til að búa þessum börnum til fæðu sem kemst eins nálægt því og mögu­legt er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár