Andaðu með nefinu – fyrir minnið

Rann­sóknir benda til þess að inn­öndun í gegnum nefið virkji hluta lykt­ar­klumbrunnar sem styrki minni.

Minnið er einn mest heill­andi, lítt kann­aði eig­in­leiki manns­lík­am­ans. Fjöl­margar rann­sóknir hafa verið gerðar með það að mark­miði að sýna fram á hvernig best er að bæta minnið eða við­halda virkri heila­starf­semi. Ekki síst með vax­andi fjölda ein­stak­linga með heila­bil­anir sem og hækk­andi ald­urs vest­rænna þjóða.

Karol­inska institu­tet, í Stokk­hólmi, hefur ekki látið sitt eftir liggja í rann­sóknum á minn­inu. Þar er rann­sókn­ar­hópur sem nýlega birti grein í Journal of Neuroscience, sem fjallar um það hvernig öndun okkar getur haft áhrif á minnið.

Í rann­sókn­inni voru þátt­tak­endur beðnir um að leggja 12 mis­mun­andi lyktir á minnið. Helmingi hóps­ins var svo fyr­ir­skipað að anda með munn­inum í klukku­tíma eftir lykt­ar­próf meðan hinum helm­ingnum var upp­álagt að anda með nef­inu. Að klukku­tíma liðnum voru þátt­tak­endur svo beðnir um að þefa aftur af 12 ilm­teg­undum, að hluta til þeim sömu og að hluta til nýjum. Síðan áttu þátt­tak­endur að bera kennsl á þær ilm­teg­undir sem þeir höfðu þefað af áður.

Þeir þátt­tak­endur sem voru beðnir um að anda með nef­inu voru mark­tækt betri í að muna hvaða ilmi þeir höfðu fundið áður, í sam­an­burði við þá sem voru beðnir um að anda með munn­inum. Þetta bendir til þess að við inn­öndun í gegnum nefið virkj­ast ein­hver hluti lykt­ar­klumbunnar (olfactory bulb). Þessi virkjun styrkir þá minn­ingu sem ein­stak­ling­arnir höfðu búið til í lykt­ar­próf­inu.

Þessar nið­ur­stöður einar og sér eru mjög áhuga­verðar, en það sem verður enn áhuga­verðar að sjá eru nið­ur­stöður áfram­hald­andi rann­sókna. Þar býst hóp­ur­inn við að geta kort­lagt hvaða svæði í heil­anum og lykt­ar­klumbunni eru að virkj­ast. Með því móti verður hægt að skil­greina hvaða ferlar fara í gang við það eitt að anda með nef­inu.

Fréttin birt­ist fyrst á vefnum Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár