Arion banki hafnar því að óeðlilega hafi verið staðið að sölu í Bakkavör

Arion banki segir að verð­mæti eign­ar­hlutar bank­ans í Bakkavör hafi fimm­fald­ast í verði á meðan að félagið BG12 hélt á honum. Bankinn hafnar vanga­veltum um að ekki hafi verið fag­lega staðið að söl­unni á félag­inu.

Arion banki hafnar því að óeðli­lega hafi verið staðið að ráð­stöfun á hlut bank­ans í BG12 í Bakkavör Group þegar hlut­ur­inn var seldur í byrjun árs 2016. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem bank­inn hefur sent frá sér vegna umfjöll­unar fjöl­miðla um söl­una.

[links]Sú umfjöllun byggir á minn­is­blaði sem Banka­sýslu rík­is­ins sendi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra 15. jan­úar síð­ast­lið­inn þar sem að fram kom að íslenska ríkið hefði farið á mis við 2,6 millj­arða króna með sölu á hlut Arion banka á hlutum sínum í Bakkavör, en ríkið átti á þeim tíma 13 pró­sent hlut í bank­anum. Þar var einnig greint frá því að full­trúi Banka­sýsl­unnar hafi kraf­ist þess í des­em­ber 2017 að inn­ri end­ur­skoð­anda Arion ­banka yrði falið að ­gera form­lega athug­un á sölu bank­ans á hlut sínum í Bakka­vör þar sem stærstu eig­endur eru Ágúst og Lýður Guð­munds­syn­ir.

Meiri­hluti stjórnar bank­ans hafn­aði hins vegar til­lögu Kirstín­ar Þ. Flygenring, þáver­andi full­trú­a ­Banka­sýsl­unnar í stjórn bank­ans, þess efnis.

[adspot]Gengið var frá sölu eign­ar­halds­fé­lags­ins BG12 á 45,9 pró­senta hlut í Bakka­vör í jan­úar árið 2016 en ­Arion banki fór með 62 pró­senta hlut í eign­ar­halds­fé­lag­inu. Aðr­ir ­eig­endur BG12 voru aðal­lega líf­eyr­is­sjóð­ir, eins og til dæmis Líf­eyr­is­sjóð­ur­ versl­un­ar­manna sem átti 14,3 pró­senta hlut og Gildi með­ 11,6 pró­senta hlut. Kaup­endur að hlutnum voru bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­syn­ir, stofn­end­ur Bakka­var­ar, en þeir áttu fyrir um 38 pró­sent í mat­væla­fram­leið­and­an­um, og banda­ríski vog­un­ar­sjóð­ur­inn Baupost. Var kaup­verð­ið ríf­lega 147 millj­ónir punda.

Í fyrra var Bakkavör svo skráð á markað í Bret­landi. Virði félags­ins þá var 1,14 millj­arðar punda, um 169 millj­arðar króna, eða fjórum sinnum meira en sú upp­hæð sem bræð­urnir höfðu greitt fyrir hann. Þeir hafa selt hluta af eign sinni og eiga nú 50,15 pró­sent hlut í dag. Baupost á síðan rétt undir 25 pró­sent hlut.

Eignir bræðr­anna Ágústar og Lýðs Guð­munds­sona, stærstu eig­enda Bakka­varar, voru metnar á 700 millj­ónir punda, rúm­lega 100 millj­arða króna, um síð­ustu ára­mót. Þeir voru á þeim tíma í 197. sæti yfir rík­ustu íbúa Bret­lands, sam­kvæmt lista The Sunday Times.

Eignir þeirra juk­ust um 550 millj­ónir punda, tæp­lega 80 millj­arða króna, á milli ára.

Hafna því að hafa gert nokkuð rangt

Í til­kynn­ingu frá Arion banka segir bank­inn að hann líti svo á að hann hafi í hví­vetna staðið með eðli­legum og fag­legum hætti að fram­kvæmd á sölu­ferli á eign­ar­hlut í BG12 í Bakkavör Group og hafnar bank­inn alfarið vanga­veltum um annað.

Þar segir að bank­inn hafi ein­ungis getað haldið á óbeinum hlut sínum í Bakkavör í tak­mark­aðan tíma sam­kvæmt lögum og því hafi honum borið skylda til að selja hlut­inn um leið og tæki­færi gafst. Hlutlaus og virtur ráð­gjafi, breski bank­inn Barclays, hafi verið ráð­inn til að halda utan um söl­una. Sá ráð­gjafi hafi ekki talið álit­legt að skrá Bakkavör á markað á þeim tíma. Þar þar hafi ráðið mestu „mikil skulda­staða félags­ins og óein­ing í eig­anda­hópnum“.

[adspot]Hlut­ur­inn hafi farið í form­legt sölu­ferli þar sem afmörk­uðum hópi fjár­festa í geir­anum var boðin þátt­taka. „Barclays kynnti Bakkavör Group fyrir rúm­lega 50 mögu­legum fjár­festum, m. a. helstu fag­fjár­festum í mat­væla­iðn­aði og fjár­fest­ing­ar­sjóðum. Í tengslum við sölu­ferlið vann Barclays verð­mat á félag­inu, auk þess sem virt alþjóð­leg ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki fram­kvæmdu ítar­legar og heild­stæðar áreið­an­leikakann­anir á rekstri Bakka­varar Group. Leiddu þær áreið­an­leikakann­anir ekk­ert óeðli­legt í ljós.“

Eftir ítar­legar við­ræður við aðra fjár­festa hafi verið ákveðið að selja Baupost og bræðr­unum hlut­inn þar sem um hæsta skuld­bind­andi til­boðið hafi verið um að ræða.

Svo segir í til­kynn­ingu Arion banka: „Sú hækkun á verði hluta í Bakkavör Group sem varð á þeim tæpu tveimur árum sem liðu á milli þess sem BG12 seldi hlut sinn í félag­inu og þangað til félagið var skráð á markað á árinu 2017, verður rakin til þriggja þátta. Í fyrsta lagi hafði afkoma félags­ins batnað umtals­vert vegna ófyr­ir­sjá­an­legrar þró­unar á mörk­uðum félags­ins. Í öðru lagi hafði félag­inu tek­ist að lækka skulda­stöðu sína. Í þriðja lagi hafði verð hluta­bréfa félaga í mat­væla­iðn­aði almennt hækkað á mark­aði og tók skrán­ing­ar­verð Bakka­varar Group vita­skuld mið af þeirri almennu hækkun.

Að mati Arion banka fólust í sölu­verði Bakka­varar Group mjög vel við­un­andi end­ur­heimtur þeirra aðila sem lögðu til stofn­unar BG12, en verð­mæti eign­ar­hlutar þeirra fimm­fald­að­ist meðan hlut­ur­inn var í eigu þess félags. Árleg ávöxtun þess­ara aðila nam u. þ. b. 40% á ári á eign­ar­halds­tím­anum.

Með vísan til fram­an­greinds er hafnað sjón­ar­miðum um að óeðli­lega hafi verið staðið að ráð­stöfun á eign­ar­hlut BG12 í Bakkavör Group.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár