Á þriðja tug sagt upp hjá Icelandair

Upp­sagn­irnar munu ná til starfs­fólks á ýmsum sviðum og deilum bæði í Reykja­vík og Keflavík og eru liður í hag­ræð­ing­ar­að­gerðum sem félagið hefur gripið til að und­an­förnu eftir mikla erf­ið­leika í kjöl­far hækk­andi olíu­verðs og sam­keppni.

Á þriðja tug starfs­manna hefur verið sagt upp hjá Icelandair. Vísir greinir frá og fékk stað­fest­ingu frá Guðjóni Arn­gríms­syni upp­lýs­inga­full­trúa félags­ins.

[links]Upp­sagn­irnar munu ná til starfs­fólks á ýmsum sviðum og deilum bæði í Reykja­vík og Keflavík og eru liður í hag­ræð­ing­ar­að­gerðum sem félagið hefur gripið til að und­an­förnu eftir mikla erf­ið­leika í kjöl­far hækk­andi olíu­verðs og sam­keppni.

Eins og fjallað hefur verið ítar­lega um á vef Kjarn­ans á und­an­förnum vikum, þá hefur rekstr­ar­um­hverfi flug­fé­laga versnað nokkuð á und­an­förnum miss­er­um. WOW Air vinnu enn að því að styrkja fjár­hag félags­ins, til að tryggja rekst­ur­inn til fram­tíð­ar, og afkoma Icelandair hefur farið versn­and­i.

Olíu­verð hefur farið hækk­andi en verð á hrá­ol­íu­t­unn­inni er nú komið upp undir 80 Banda­ríkja­dali, og hefur það hækkað um tíu pró­sent á tveimur vik­um. Spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi hækk­un­um, sam­kvæmt grein­ingum sem Wall Street Journal hefur að und­an­förnu vitnað til í umfjöllun sinn­i.

Afkomu­spá félags­ins gerir ráð fyrir því EBITDA rekstr­ar­hagn­aður Icelandair verði 80 til 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala á þessu ári, eða sem nemur 8,5 til 11 millj­örðum króna. Björgólfur Jóhanns­son sagði starfi sínu sem for­stjóri laus, 27. ágúst síð­ast­lið­inn, en í til­kynn­ingu sagði hann að félagið stæði fjár­hags­lega sterkt á þessum tíma­punkti, og til­búið að takast á við sveiflu­kennt umhverfi flug­iðn­að­ar­ins.

Auk þess­ara upp­sagna hefur flug­freyjum og flug­þjónum Icelandair í hlutastafi verið velja á milli þess að fara í fulla vinnu frá og með 1. jan­úar næst­kom­andi ellegar missa vinn­una. Tölu­verð reiði er meðal þess hóps sem þessi ákvörðun nær til hjá félag­inu.
Í tölvu­póst­i þar sem flug­liðum var til­kynnt um þessar breyt­ingar félags­ins sagði að breytt staða Icelandair kalli á breyt­ing­ar. „Nú er útlit fyrir að fyr­ir­tækið verði ekki rekið með hagn­aði árið 2018 og er það grafal­var­leg staða, enda byggja fyr­ir­tæki fram­tíð sína á að geta fjár­fest í upp­bygg­ingu og þróun til að vaxa og dafna,“ segir í tölvu­póst­in­um.

Í ágúst síð­ast­liðnum var einnig upp­lýst um að að Icelandair hygð­ist að færa hluta bak- og bók­halds­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins til eist­nesks dótt­ur­fé­lags.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár