Icelandair heldur áfram að lækka í verði

Mark­aðsvirði Icelandair hefur hríð­fallið að und­an­förnu. Það er erfitt rekstr­ar­um­hverfi flug­fé­laga þessi miss­erin.

Mark­aðsvirði Icelandair Group hélt áfram að falla í dag, en félagið lækk­aði um 2,24 pró­sent í við­skiptum dag­ins. Virði félags­ins er nú 33,6 millj­arðar króna. Það er til marks um hve mikla dýfu félags­ins hefur tekið á mark­aði, en gengi bréfa félags­ins er nú 6,9 en fyrir rúmum tveimur árum var það tæp­lega 40.

Eins og fjallað hefur verið ítar­lega um á vef Kjarnans á und­an­förnum vikum, þá hefur rekstr­ar­um­hverfi flug­fé­laga versnað nokkuð á und­an­förnum miss­erum. WOW Air vinnu enn að því að styrkja fjár­hag félags­ins, til að tryggja rekst­ur­inn til fram­tíðar, og afkoma Icelandair hefur farið versn­andi.

Olíuverð hefur farið hækk­andi en verð á hrá­ol­íu­t­unn­inni er nú komið upp undir 80 Banda­ríkja­dali, og hefur það hækkað um tíu pró­sent á tveimur vikum. Spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi hækk­unum, sam­kvæmt grein­ingum sem Wall Street Journal hefur að und­an­förnu vitnað til í umfjöllun sinni.

Afkomu­spá félags­ins gerir ráð fyrir því EBITDA rekstr­ar­hagn­aður Icelandair verði 80 til 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala á þessu ári, eða sem nemur 8,5 til 11 millj­örðum króna. Björgólfur Jóhanns­son sagði starfi sínu sem for­stjóri laus, 27. ágúst síð­ast­lið­inn, en í til­kynn­ingu sagði hann að félagið stæði fjár­hags­lega sterkt á þessum tíma­punkti, og til­búið að takast á við sveiflu­kennt umhverfi flug­iðn­að­ar­ins.

Verð­mið­inn á Icelandair er nú í lægsta punkti sé horft yfir síð­ustu 5 árin á mark­aði. Eigið fé félags­ins var um mitt þetta ár tæp­lega 59 millj­aðar. Eða sem nemur næstum tvö­földum verð­miða á mark­aði þessi miss­erin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár