Sagt vera útlit fyrir tap á árinu hjá Icelandair - Reiði hjá flugfreyjum

Flug­freyjum í hluta­starfi verður gert að velja á milli þess að vera í fullu starfi eða engu starfi.

Flug­freyjum og flug­þjónum í hluta­starfi hjá Icelandair hefur verið gert að velja á milli þess að fara í fulla vinnu frá og með 1. jan­úar næst­kom­andi ellegar missa vinn­una. Upp­lýs­ingar um þetta fengu flug­freyjur og flug­þjónar í gær í tölvu­pósti, en tölu­verð reiði er meðal þess hóps sem þessi ákvörðun nær til.

Í tölvu­póst­inum segir jafn­framt að breytt staða Icelandair kalli á breyt­ingar. „Nú er útlit fyrir að fyr­ir­tækið verði ekki rekið með hagn­aði árið 2018 og er það grafal­var­leg staða, enda byggja fyr­ir­tæki fram­tíð sína á að geta fjár­fest í upp­bygg­ingu og þróun til að vaxa og dafna,“ segir í tölvu­póst­inum, sem Kjarninn hefur afrit af.

Í við­tali við Vísi segir for­maður Flug­freyju­fé­lags­ins, Berglind Haf­steins­dóttir, að þessar aðgerðir séu gróft brot á kjara­samn­ingi flug­freyja og því mikið áfall.

Icelandair sendi síð­ast frá sér afkomu­við­vörun 27. ágúst síð­ast­lið­inn en sam­kvæmt upp­færðri afkomu­spá mun afkoma árs­ins verða lægri en gert var ráð fyrir. Félagið áætlar að EBITDA (rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir, fjár­magns­kostnað og skatta) árs­ins 2018 verði á bil­inu 80-100 millj­ónir USD, eða sem nemur um ríf­lega 8,5 til 11 millj­arða.

Ástæðan fyrir slak­ari afkomu er meðal ann­ars tölu­vert lægri tekjur en upp­haf­lega var áætlað, eða sem nemur 5 til 8 pró­sent lægri.

Í afkomutil­kynn­ingu félags­ins eru þrjár ástæður einkum nefndar, fyrir verri afkomu en upp­haf­legar áætl­anir gerðu ráð fyrir.

„Í fyrsta lagi gerðum við enn ráð fyrir því við gerð sein­ustu afkomu­spár að með­al­far­gjöld á sein­ustu mán­uðum árs­ins myndu hækka, meðal ann­ars í takt við kostn­að­ar­hækk­anir flug­fé­laga. Við teljum nú að þessar hækk­anir muni skila sér síðar, þ.e. ekki fyrr en á árinu 2019.

Í öðru lagi hefur inn­leið­ing breyt­inga sem gerðar voru í byrjun sum­ars 2017 á sölu- og mark­aðs­starfi félags­ins ekki gengið nægi­lega vel fyrir sig auk þess sem gerðar voru breyt­ingar á leið­ar­kerfi félags­ins í byrjun þessa árs sem hafa valdið misvægi á milli fram­boðs fluga til Evrópu ann­ars vegar og Norður-Ameríku hins vegar. Vegna þessa hafa spálíkön, sem meðal ann­ars byggja á sögu­legri þróun, ekki virkað sem skyldi og er upp­færð tekju­spá lægri en fyrri spá gerði ráð fyrir.

Það er mat okkar að lækkun far­þega­tekna Icelandair sem rekja megi til fyrr­greindra breyt­inga sé á bil­inu 5-8% (50-80 millj­ónir USD) á árs­grund­velli. Eins og kom fram í upp­lýs­ingum sem félagið sendi frá sér í tengslum við birt­ingu upp­gjörs á afkomu ann­ars árs­fjórð­ungs, hefur þegar verið gripið til aðgerða til að bregð­ast við þess­ari þróun. Þær aðgerðir eru farnar að skila árangri en við áætlum að það muni taka nokkra mán­uði að sjá áhrif þeirra í afkomu félags­ins. Við metum þessi nei­kvæðu áhrif á tekjur á þessu ári sem ein­skipt­isliði,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Mark­aðsvirði Icelandair er nú um 35 millj­arðar króna en eigið félags­ins var um mitt þetta ár 55 millj­arðar króna. Hagnaður Icelandair á síð­asta ári nam 3,9 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár