Segir þvingunaraðgerðir Icelandair aðför að kvennastétt

Formaður Flug­freyju­fé­lags Íslands segir það sorg­legt að sitja árið 2018 og skrifa um aðför að kvenna­stétt en Icelandair setti flug­freyjum og flug­þjónum þá afar­kosti á dög­unum að velja á milli þess að fara í fulla vinnu ellegar missa vinn­una.

Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands.
Berglind Haf­steins­dóttir, for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands. Mynd: Aðsend mynd

Berg­lind Haf­steins­dótt­ir, for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands, segir stjórn­endur Icelandair hafa ákveðið að virða að vettugi samn­ings­bundið kjara­samn­ings­á­kvæði um hluta­störf sem virt hafi verið af fyr­ir­tæk­inu um ára­tuga­skeið. Þetta kemur fram í Facebook-stöðu­upp­fæslu hennar í dag.

[links]„Þetta ákvæði byggir á því að flug­freyjur og flug­þjónar hafi þann kost að aðlaga einka­líf og fjöl­skyldu­á­byrgð við starfið sitt. Með ein­hliða þving­un­ar­að­gerðum hafa stjórn­endur Icelandair ákveðið að grípa til hóp­upp­sagna á flug­freyjum og flug­þjónum sem starfa í hluta­störfum. Þessum aðgerðum er ein­göngu beint að einum hóp innan fyr­ir­tæk­is­ins sem að mestu leyti eru konur,“ segir hún. 

Stjórn og trún­að­ar­ráð Flug­freyju­fé­lags Íslands for­dæmdi á dög­unum ákvörðun Icelandair að setja flug­freyjum og flug­þjónum þá afar­kosti að velja á milli þess að fara í fulla vinnu frá og með 1. jan­úar næst­kom­andi ellegar missa vinn­una og skor­aði á Icelandair að end­ur­skoða hana. Berg­lind sagði í sam­tali við Kjarn­ann þetta vera brot á reglum og kjara­samn­ingum og aðför að ára­tuga­vinnu félags­ins.

„Það var í kringum árið 1960 sem for­verar mínir í Flug­freyju­fé­lagi Íslands börð­ust fyrir því að flug­freyjur fengu að halda starfi sínu eftir 35 ára aldur. Það var á sama tíma og barns­burður og gift­ing jafn­giltu upp­sögn. Með sam­taka­mætti tókst að fá þessu breytt. 

En nú árið 2018 hafa stjórn­endur Icelandair ákveðið að hverfa aftur til fyrri tíma. Þeir hafa ákveðið að virða að vettugi samn­ings­bundið kjara­samn­ings­á­kvæði um hluta­störf sem virt hefur verið af fyr­ir­tæk­inu um ára­tuga­skeið. Þetta ákvæði byggir á því að flug­freyjur og flug­þjónar hafi þann kost að aðlaga einka­líf og fjöl­skyldu­á­byrgð við starfið sitt. Með ein­hliða þving­un­ar­að­gerðum hafa stjórn­endur Icelandair ákveðið að grípa til hóp­upp­sagna á flug­freyjum og flug­þjónum sem starfa í hluta­störfum. Þessum aðgerðum er ein­göngu beint að einum hóp innan fyr­ir­tæk­is­ins sem að mestu leyti eru konur. Verið er að fara þvert gegn þeim sjón­ar­miðum sem uppi eru í land­inu um fjöl­skyldu­vænt starfs­um­hverfi, stytt­ingu vinnu­viku og sam­fé­lags­lega ábyrgð fyr­ir­tækja. Verið er að fara á skjön við jafn­rétt­islög þar sem lagðar eru skyldur á atvinnu­rek­enda að gera nauð­syn­legar ráð­staf­anir til að gera konum og körlum kleift að sam­ræma starfs­skyldur sínar og ábyrgð gagn­vart fjöl­skyldu, meðal ann­ars með auknum sveigj­an­leika í skipu­lagn­ingu á vinnu og vinnu­tíma,“ segir Berglind í stöðu­upp­færsl­unni.

Hún spyr hvernig standi á því að árið 2018 skuli eitt fyr­ir­tæki lands­ins standa í slíkum þving­un­ar­að­gerðum og hvar fjöl­skyldu­stefna Icelandair sé.

„Hver er sam­fé­lags­leg ábyrgð Icelandair? Hver er starfs­manna­stefna Icelandair? Hvar er jafn­rétt­is­á­ætlun Icelandair?

Því spyr ég, erum við öll í sama liði?“ spyr hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár