Stjórn Flugfreyjufélags Íslands gerir alvarlegar athugasemdir við aðgerðir Icelandair

Formaður Flug­freyju­fé­lags Íslands gagn­rýnir Icelandair fyrir að beina aðgerðum að flug­freyjum og flug­þjónum og segir þær hafa í för með sér ójafn­ræði.

Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands.
Berglind Haf­steins­dóttir, for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands. Mynd: Samsett mynd.

Stjórn og trún­að­ar­ráð Flug­freyju­fé­lags Íslands hefur for­dæmt ákvörðun Icelandair að setja flug­freyjum og flug­þjónum þá afar­kosti að velja á milli þess að fara í fulla vinnu frá og með 1. jan­úar næst­kom­andi ellegar missa vinn­una og skora á Icelandair að end­ur­skoða hana. Félagið und­ir­býr nú stefnu til Félags­dóms vegna máls­ins.

Berglind Haf­steins­dóttir, for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands, segir í sam­tali við Kjarnann þetta vera brot á reglum og kjara­samn­ingum og aðför að ára­tuga­vinnu félags­ins.

[links]Hún segir að starfið kalli á mikla fjar­veru frá fjöl­skyldu og bendir á að það sé engan veg­inn hefð­bundið. „Það er ótækt árið 2018 að fara í slíkar aðferðir, sér­stak­lega þegar verið er að vinna að því að stytta vinnu­vik­una,“ segir hún.

Berglind segir jafn­framt að stjórnin geri alvar­legar athuga­semdir við að aðgerðir bein­ist sér­stak­lega að flug­freyjum og flug­þjónum. „Við teljum að þetta hafi í för með sér ójafn­ræði og að þetta brjóti gegn lögum. Þetta er ákvörðun sem var tekin ein­hliða og ekki af með­al­hófi.“

[adspot]

Berglind telur að þrátt fyrir að fyr­ir­tækið geti sparað ein­hverjar krónur með þessum aðgerðum þá séu þær ekki sparn­að­ar­að­gerðir til lengri tíma litið.

Í tölvu­póst­i sem flug­þjónar og flug­freyjur fengu í gær­kvöldi, og sem Kjarninn hefur undir höndum, segir að Icelandair muni eftir sem áður taka mið af sér­stökum per­sónu­legum aðstæðum sem geta tíma­bundið valdið því að starfs­maður á erfitt með að sinna 100 pró­sent starfi. Boðið verði upp á við­töl fyrir þá ein­stak­linga sem óska eftir því að ræða slíkar aðstæður. Unnið verði sam­kvæmt nýju verk­lagi sem verður opið og aðgengi­legt.

Berglind telur þetta ekki vera nægi­legt því fólk hafi tekið að sér hluta­störf á grund­velli kjara­samn­inga og hafi sumir skipu­lagt líf sitt í kringum þessi störf. Hún segir að fyr­ir­tækið hafi í gegnum tíð­ina jafn­vel beðið starfs­menn að taka að sér hluta­störf en margar ástæður geti legið að baki þess að fólk velja þá leið. Afleið­ing­arnar af þessum aðgerðum verði þær að mikil þekk­ing og reynsla tap­ist frá félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár