ASÍ: Rýrt innlegg ríkisstjórnar inn í kjaraviðræður

Samkvæmt ályktun mið­stjórnar ASÍ gefur fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar ekki til­efni til mik­illar bjart­sýni í þeim kjara­við­ræðum sem framundan eru.

Kröfuganga 1. maí 2018.
Kröfu­ganga 1. maí 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­stjórn ASÍ hefur sent frá sér ályktun um fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar sem kynnt var í síð­ustu viku. Segir í henni að fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur gefi ekki til­efni til mik­illar bjart­sýni í þeim kjara­við­ræðum sem í hönd fara, þrátt fyrir yfir­lýs­ingar stjórn­valda í sam­skiptum við verka­lýðs­hreyf­ing­una um aukna áherslu á félags­legan stöð­ug­leika.

„ASÍ hefur und­an­farin ár gagn­rýnt stjórn­völd harð­lega fyrir að þyngja skatt­byrði þeirra tekju­lægstu stöðugt á sama tíma og þeir tekju­hærri hafa notið skatta­lækk­ana. Í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir næsta ár er reyndar skorið á sjálf­virka skatta­lækkun hinna rík­ari, sem er jákvætt, en það er hins vegar dap­ur­legt að rík­is­stjórnin ríg­haldi í það fyr­ir­komu­lag að þyngja skatt­byrði þeirra verst settu með sjálf­virkum hætti. Verka­lýðs­hreyf­ingin mun ekki horfa aðgerð­ar­laus á þessa þróun,“ segir í álykt­un­inni.

Kemur enn fremur fram að hús­næðis- og vaxta­bætur séu áfram skertar þrátt fyrir þá alvar­legu stöðu sem er á hús­næð­is­mark­aði, sem bitni verst á þeim sem hafa minnst handa á milli. „Það er ánægju­legt að barna­bætur hækka sam­kvæmt frum­varp­inu, en á sama tíma er aukið við tekju­teng­ingu á milli­tekju­fólk og jað­ar­skattar þess hækk­aðir með auknum skerð­ingum. Það eru kaldar kveðjur rík­is­stjórn­ar­innar til ungs fólks sem vill stofna fjöl­skyldu, koma sér þaki yfir höf­uðið og eign­ast börn.“

„ASÍ hefur lengi vakið athygli stjórn­valda á því, að þeir sem eru með minnsta menntun eru lík­legir til að missa fyrstir vinn­una í fjórðu iðn­bylt­ing­unni sem nú bankar á dyrnar. Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar sér þess engan stað að til standi styðja og styrkja lág­tekju­fólk svo það fái annað tæki­færi til náms, þrátt fyrir mikla umræðu í sam­ráðs­ferli vinnu­mark­að­ar­ins við stjórn­völd und­an­farna mán­uði. Þannig er Fræðslu­sjóður enn einu sinni sveltur. Kinn­roða­laust stillir rík­is­stjórnin lág­launa­fólki með litla menntun í fremstu víg­línu and­spænis þeim breyt­ingum sem eru yfir­vof­andi á vinnu­mark­aði. Hún skilar auðu.

Það má finna ýmis­legt jákvætt í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar, eins og aukið fé til rétt­inda launa­fólks í vinnu­mark­aðs­sjóð­unum og ýmsa þætti heil­brigð­is­kerf­is­ins o.fl., en þau atriði sem hér er drepið á eru ekki sæm­andi sam­fé­lagi sem vill láta kenna sig við vel­ferð og jöfnuð,“ segir í álykt­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár