„Megi þá helvítis byltingin lifa“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, lætur Hörð Ægisson, rit­stjóra Mark­að­ar­ins, heyra það í pistli á Facebook.

Sólveig Anna Jónsdóttir
Sólveig Anna Jóns­dóttir Mynd: Hringbraut

„Ég finn mig knúna til að bregð­ast við leið­ara Frétta­blaðs­ins, “Stærsta ógnin”, sem birt­ist á föstu­dag­inn var. Þó langar mig það ekk­ert. Mér langar ekki að virða fólk sem beitir hik­laust hót­unum við­lits. En því miður er svo komið fyrir tals­mönnum óbreytts ástands að þeir hika ekki við reyna að kúga vinn­andi fólk til hlýðni með sjúkri og við­bjóðs­legri orð­ræðu og þá er auð­vitað ekki um annað að ræða en að sýna að í mér rennur blóð...“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar stétt­ar­fé­lags, í Facebook-pistli í gær um leið­ara Harðar Ægis­sonar, rit­stjóra Mark­að­ar­ins, við­skipta­blaðs Frétta­blaðs­ins.

Leiðari Harðar var birtur síð­ast­lið­inn föstu­dag og bar yfir­skrift­ina „Stærsta ógnin“. Í leið­ar­anum gagn­rýnir Hörður kröfur Starfs­greina­sam­bands Ísland og VR í kom­andi kjara­við­ræðum. „For­ystu­menn helstu verka­lýðs­fé­laga lands­ins, sem öllum má nú vera ljóst að eru stærsta ógnin gagn­vart lífs­kjörum meg­in­þorra íslensks launa­fólks á kom­andi árum, eru á öðru máli,“ skrifar Hörður.

Heimsendir frekar en réttlæti

Sólveig Anna gagn­rýnir leið­ar­inn harð­lega í Facebook-færslu sinni og segir Hörð bók­staf­lega ganga af göfl­unum í leið­ar­anum. „Fyr­ir­litn­ingin og andúðin á verka­fólki og þeim sem strita fyrir lægstu launin sem fruss­ast á okkur af síðum Frétta­blaðs­ins er með ólík­indum...“ skrifar Sólveig

Hún segir að til­gang­ur­inn með skrifum Harðar sé að „skelfa fólk til hlýðni og að búa til tæki­færi fyrir hóf­stillt­ari og jarð­bundn­ari tals­menn arð­ráns­ins til að stíga fram sem málsvara skyn­semi og stöð­ug­leika.“

Sólveig Anna túlkar skrif Harðar á þá leið að hann sé að stilla sjálfum sér upp sem rödd skyn­sem­innar „en það er ekki hægt að segja annað en að móð­ur­sýkis­kenndir heimsenda­spá­dómar hans ein­kenn­ist af alveg hreint ein­stakri van­still­ingu“. Hún segir að slag­orð „Heimsenda-Harðar“ hljóta að vera „heimsendir frekar en rétt­læti“.

Vill frekar að reiknað sé hvað kostar að reka samfélag sem er grundvallað á efnahagslegu óréttlæti

Hörður segir í leið­ara sínum að kröfur verka­lýðs­fé­lag­anna verði ekki lýst öðru­vísi en sem „sturluðum“ og „í engum takti við efna­hags­legan veru­leika“. Sólveig svarar því og segir hins vegar að sé löngu tíma­bært að við­ur­kenna að hinn efna­hags­legi veru­leiki sem lág­launa­fólk býr við sé sturl­aðar

„Hörður kallar eftir því að verka­lýðs­hreyf­ingin leggi mat á kostn­að­inn við kröf­urnar en hvernig væri nú að Hörður og aðrar mál­pípur auð­valds­ins legðu mat á kostn­að­inn sem felst í því að reka sam­fé­lag sem er grund­vallað á efna­hags­legu órétt­læti? Væri það ekki hressandi til­breyt­ing?“ spyr Sólveig.

Hún varpar fram spurn­ingum í pistl­inum og biður fólk að svara af heið­ar­leika.

„Er það bylt­ing­ar­kennt að fólk megi lifa af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum? Er það bylt­ing­ar­kennt að fólk geti látið það duga að vera í einni vinnu? Er það bylt­ing­ar­kennt að fólk hafi aðgang að öruggu hús­næði á eðli­legum kjörum? Er það bylt­ing­ar­kennt að fólkið sem hefur minnst á milli hand­anna verði ekki lengur látið bera þyngstu skatt-byrgð­arnar? Er það bylt­ing­ar­kennt að fjár­magns­eig­endur verði látnir axla sam­fé­lags­lega ábyrgð með því að greiða eðli­lega skatt­pró­sentu af auð­æfum sínum?“

„Og ef svarið er já, þetta er bylt­ing­ar­kennt þá kallið mig bylt­ing­ar­konu, í guð­anna bænum! Megi þá hel­vítis bylt­ingin lifa,“ skrifar Sólveig Anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár