Verðbólgan upp í 9,6 prósent – Einungis tvívegis mælst meiri frá 2009

Verð­bólga jókst milli mán­aða og tólf mán­aða verð­bólga hafi mælist nú 0,3 pró­sentu­stigum meiri en fyrir mán­uði. Matur og flug­far­gjöld hækk­uðu í mán­uð­inum.

Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands er 2,5 prósent. Verðbólgan er nú 7,1 prósentustigi yfir því markmiði. Hún hefur ekki verið undir markmiðinu síðan í apríl 2020. Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri.
Verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands er 2,5 pró­sent. Verð­bólgan er nú 7,1 pró­sentu­stigi yfir því mark­miði. Hún hefur ekki verið undir mark­mið­inu síðan í apríl 2020. Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði um 0,66 pró­sent milli mán­aða. Tólf mán­aða verð­bólga mælist nú 9,6 pró­sent en hún mæld­ist 9,3 pró­sent í síð­asta mán­uði. Hún hefur ein­ungis tví­vegis mælst meiri en nú frá haust­mán­uðum 2009, en það var í júlí og ágúst í sumar þegar hún mæld­ist 9,7 til 9,9 pró­sent.

Tólf mán­aða verð­bólga var 5,7 pró­sent í jan­ú­ar og hefur því auk­ist veru­lega það sem af er ári.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu Hag­stofu Íslands voru helstu ástæður þess að vísi­talan hækk­aði á milli októ­ber og nóv­em­ber þær að verð á mat­vörum hækk­aði um 0,6 pró­sent og flug­far­gjöld til útlanda hækk­uðu um 19,4 pró­sent.

Stýrivextir hækk­aðir tíu sinnum í röð

Seðla­­banki Íslands hækk­­aði stýri­vexti sína í í lok nóv­em­ber upp í sex pró­­sent. Þetta var í tíunda sinn í röð sem Seðla­­bank­inn hækk­­aði vexti, en þeir voru 0,75 pró­­sent í maí í fyrra. Fyrir vikið eru íbúða­lána­vextir hærri en þeir hafa verið í tólf ár, eða frá árinu 2010, skömmu eftir banka­hrunið þegar enn var verið að end­­­ur­reisa föllnu bank­ana og íslenskt atvinn­u­líf.

[adspot]Í yfir­­lýs­ingu pen­inga­­stefn­u­­nefndar sagði að verð­­bólga hafi auk­ist á ný í októ­ber og mælst 9,4 pró­­sent, verð­hækk­­­anir væru á breiðum grunni og und­ir­liggj­andi verð­­bólga hefði áfram auk­ist. Þá var gert ráð fyrir því að verð­­bólgan verði 9,4 pró­­sent að með­­al­tali núna á síð­­asta árs­fjórð­ungi.

Ásgeir Jóns­son seðla­banka­stjóri lét svo hafa eftir sér í kjöl­far ákvörð­un­ar­innar að mikil aukn­ing í einka­neyslu væri að koma niður á gengi krón­unn­ar. Það auki inn­flutta verð­bólgu. „Þegar þjóðin er að fara á Tene, það kost­ar gjald­eyr­i,“ sagði Ásgeir og bætti svo við að Seðla­bank­inn gæti„ ekki fjár­­­magnað Tene-­ferðir úr forð­an­um.“

Mikil áhrif á kjara­við­ræður

Ákvörðun um stýri­vaxta­hækkun hafði mikil og nei­kvæð áhrif á yfir­stand­andi kjara­við­ræð­ur. hún leiddi meðal ann­ars til þess að VR, stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, sleit við­ræðum um tíma og lagt var upp í þá veg­ferð að reyna að ná skamm­tíma­samn­ing­um, sem gilda út jan­úar 2024, í stað þess að semja til lengri tíma.

Til­gangur þess átti að vera að skapa betri aðstæður til samn­ings­gerðar þegar verð­bólgan hefur hjaðn­að, en spár Seðla­bank­ans gera ráð fyrir því að hún verði komin niður í 4,5 pró­sent á síð­­asta árs­fjórð­ungi næsta árs.

Hún verður þó enn langt fram mark­miði Seðla­bank­ans, sem er 2,5 pró­sent verð­bólga.

Skamm­tíma­samn­ingar hafa nú þegar náðst við 80 pró­sent starfs­fólks á almennum vinnu­mark­aði. Þeir voru sam­þykktir með yfir­gnæf­andi meiri­hluta í atkvæða­greiðslum nú í des­em­ber. Enn er ósamið við fjórð­ung þeirra sem starfa á almennum mark­aði, og þar munar mestu um félags­menn efl­ingar, og starfs­menn í opin­bera geir­anum.

Gríðarleg aukning á greiðslubyrði

Stýri­vaxta­hækk­anir og verð­bólga hafa allskyns áhrif á dag­legt líf fólks. Verð á nær öllum nauð­synja­vörum hækkar vegna verð­bólg­unnar og afborg­anir af íbúða­lánum stór­aukast hjá mörgum sam­hliða vaxta­hækk­un­um.

Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber að greiðslu­­byrði óverð­­tryggðs íbúða­láns með breyt­i­­legum vöxtum upp á 50 millj­­ónir króna sé nú um 311.500 krón­­ur, sam­kvæmt grein­ingu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un­ar. Í maí í fyrra, áður en stýri­­vaxta­hækkun Seðla­­banka Íslands hóf­st, var greiðslu­­byrði láns að sömu upp­­hæð 188.500 krón­­ur. Hún hefur því hækkað um 123 þús­und krónur á mán­uði eða tæp­­lega 1,5 millj­­ónir króna á ári. Greiðslu­­byrðin hefur auk­ist um 65 pró­­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár