Eldum rétt segist dregið í dómsmál fjögurra erlendra starfsmanna að ósekju

Fram­kvæmda­stjóri Eldum rétt seg­ist geta full­yrt að fyr­ir­tækið tæki aldrei þátt í að koma illa fram við fólk. Formaður Eflingar segir Eldum rétt ekki geta firrt sig ábyrgð.

Eldum rétt segir félagið dregið inn í dóms­mál fjög­urra erlendra starfs­manna Manna í vinnu að ósekju. Málið sem vísað er til er stefna á hendur fyr­ir­tæk­is­ins Eldum rétt og Mönnum í vinnu. Þeim er stefnt til greiðslu bóta vegna nauð­ung­ar­vinnu, að því er kemur fram í til­kynn­ingu á vegum Efl­ing­ar.

Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni keypti Eldum rétt vinnu­afl hjá starfs­manna­leig­unni Menn í vinnu í jan­úar og hafi þar með borið ábyrgð á að kjör verka­mann­anna og aðstæður væru sóma­sam­leg­ar. Lög­sókn gegn fyr­ir­tæk­inu og fram­kvæmda­stjóra þess hefur nú verið þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur.

[adspot]Í til­kynn­ingu frá Eldum rétt segir að ákveðið hafi verið að nýta þjón­ustu Menn í vinnu ehf. til að létta álagi á fasta starfs­menn Eldum rétt og jafna út álags­punkta, en ekki til að fara illa með fólk. „For­svars­menn Eldum rétt ehf. taka fulla ábyrgð á því að hafa nýtt sér þjón­ustu Menn í vinnu ehf. en harma ef starfs­menn­irnir fjórir voru beittir órétti af hálfu starfs­manna­leig­unnar,“ segir jafn­framt í til­kynn­ing­unni.

Krist­ó­fer Júlíus Leifsson, fram­kvæmda­stjóri Eldum rétt, segir enn fremur geta full­yrt að fyr­ir­tækið tæki aldrei þátt í að koma illa fram við fólk „og myndum heldur aldrei líta undan í aðstæðum þar sem slíkt væri látið við­gang­ast. Við höfðum hrein­lega ekki vit­neskju um að slíkar aðstæður væru uppi og teljum rétt að þetta mál fari sína leið fyrir dóm­stólum.“

[links]Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, segir Eldum rétt ekki geta firrt sig ábyrgð og gagn­rýndi starfs­manna­leigur harð­lega. Í stöðu­færslu á Facebook segir hún aug­ljósa áhættu að flytja inn vinnu­afl í gegnum starfs­manna­leigu þar sem slík fyr­ir­tæki geti verið „skálka­skjól und­ir­borg­ana, mis­neyt­ingar og jafn­vel mansals. Af þeim sökum var leidd í lög „keðju­á­byrgð“, svo fyr­ir­tæki gætu ekki firrt sig ábyrgð á aðbún­aði starfs­fólks síns með því að hafa það form­lega í vinnu hjá öðr­um.“ Þar af leið­andi telur Sól­veig Eldum rétt bera ábyrgð á að starfs­menn­irnir hefðu það ekki verr en annað starfs­fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár