Sólveig Anna segir starfsmannaleigur uppsprettu ofur-arðráns

Formaður Eflingar gagn­rýnir starfs­manna­leigur harð­lega og segir Eldum rétt ekki geta firrt sig ábyrgð.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir í stöðu­færslu á Facebook starfs­manna­leigur vera „eitt af ömur­legum börnum hins ægi­lega „frelsis“ og óheftrar gróða­dýrk­unar sem fengið hafa að unga út afkvæmum um alla ver­öld, gróða­sjúkum til skemmt­unnar og ynd­is­auka og öllum öðrum til erf­ið­leika og ama.“

Málið sem vísað er til er stefna á hendur fyr­ir­tæk­is­ins Eldum rétt og Mönnum í vinnu. Þeim er stefnt til greiðslu bóta vegna nauð­ung­ar­vinnu, að því er kemur fram í til­kynn­ingu á vegum Eflingar. Samkvæmt til­kynn­ing­unni keypti Eldum rétt vinnu­afl hjá starfs­manna­leig­unni Menn í vinnu í jan­úar og hafi þar með borið ábyrgð á að kjör verka­mann­anna og aðstæður væru sóma­sam­legar. Lögsókn gegn fyr­ir­tæk­inu og fram­kvæmda­stjóra þess hefur nú verið þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

[adspot]Í til­kynn­ingu Eflingar segir að eftir gylli­boð um atvinnu á Íslandi hafi menn­irnir frá Rúmeníu komið á vegum Menn í vinnu ehf sem leigði vinnu þeirra út og voru þeir upp á fyr­ir­tækið komnir með aðgang að húsa­skjóli. Menn í vinnu er sakað um að hafa dregið ein­hliða af launum þeirra fyrir hús­næði, flug­miða, aðgang að bíl og lík­ams­rækt sem hafi gert „skugga­stjórn­anda fyr­ir­tæk­is­ins, Höllu Rut Bjarna­dóttur, ofsa­legt vald yfir til­veru verka­mann­anna, vald sem virð­ist hafa verið óspart notað sem ögun­ar­tæki gagn­vart þeim.“

Menn­irnir leit­uðu til ASÍ og lýst er því hvernig þeim hefði verið hótað upp­sögn og brott­rekstri úr hús­næð­inu sem þeir dvöldu í og lík­ams­meið­ingum ef þeir töl­uðu við fjöl­miðla eða stétt­ar­fé­lög. Húsnæðið var enn fremur iðn­að­ar­hús­næði og ekki útbúið sem manna­bú­staður. Síðasta útborg­unin hafi í sumum til­vikum verið nærri núlli vegna frá­dráttar, að því er kemur fram í til­kynn­ing­unni.

Vinnuafl á afsláttarverði

Í stöðu­færslu sinnir segir Sólveig að alþjóða­væð­ing á for­sendum kap­ít­al­isma gera það að verkum að hægt sé að sækja vinnu­afl á „afslátt­ar­verði“ og enn meiri afslætti ef hægt sé að koma klónum í fólk sem tali ekki tungu­mál lands­ins og ekki þekk­ingu á lögum og reglum sem gildi um kjör og aðbúnað vinnu­aflsins.

Í stöðu­færslu sinni spyr Sólveig hver sé ábyrgð Eldum rétt. Hún segir aug­ljósa áhættu að flytja inn vinnu­afl í gegnum starfs­manna­leigu þar sem slík fyr­ir­tæki geti verið „skálka­skjól und­ir­borg­ana, mis­neyt­ingar og jafn­vel mansals. Af þeim sökum var leidd í lög „keðju­á­byrgð“, svo fyr­ir­tæki gætu ekki firrt sig ábyrgð á aðbún­aði starfs­fólks síns með því að hafa það form­lega í vinnu hjá öðrum.“ Þar af leið­andi telur Sólveig Eldum rétt bera ábyrgð á að starfs­menn­irnir hefðu það ekki verr en annað starfs­fólk.

Hún seg­ist dóms­málið til að mynda snú­ast um van­virð­andi með­ferð og þving­unar- eða nauð­ung­ar­vinnu sem verka­menn­irnir sættu. Sólveig gagn­rýnir starfs­manna­leigur harð­lega og segir þær „fela í sér frá­vik frá þeirri meg­in­reglu að starfs­maður sé í beinu ráðn­ing­ar­sam­bandi við atvinnu­rek­anda, og setja á milli þeirra þriðja aðila sem tekur skerf af laun­unum í sinn vasa“ sem hafi opnað á leið að grafa undan kaupi og kjörum á íslenskum vinnu­mark­aði. Þá sé fólk gagn­gert sótt frá fátækum svæðum sem alþjóða­væð­ingin hafi leikið grátt og þar sem ensku­kunn­átta væri mjög tak­mörkuð. Engar kröfur væru gerðar á fyr­ir­tæki að kynna starfs­fólki rétt­indi sín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár