Sameyki fer í atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun

Trún­að­ar­manna­ráð Sameykis stétt­ar­fé­lag hefur sam­þykkt að fara strax í atkvæða­greiðslu um verk­falls­boðun.

Trún­að­ar­manna­ráð Sameykis stétt­ar­fé­lag sam­þykkti sam­hljóða á afar fjöl­mennum fundi í gær að fara strax í atkvæða­greiðslu um verk­falls­boðun. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu í dag.

Þá segir að félagið hafi ásamt öðrum aðild­ar­fé­lögum í BSRB verið samn­ings­laust í tæpt ár og átt „fjöl­marga árang­ur­slitla fundi með við­semj­endum.“

[adspot]

Atkvæða­greiðslan um verk­falls­boðun mun fara fram frá og með næst­kom­andi mánu­degi til mið­viku­dags og nær til allra félags­manna Sameykis sem starfa hjá ríki, Reykja­vík­ur­borg, Akra­nes­kaup­stað, Sel­tjarn­ar­nesbæ og Hjúkr­unar- og dval­ar­heim­il­inu Höfða, alls um 8 þús­und manns.

Afgerandi meirihluti styður verkfallsaðgerðir

Í til­kynn­ing­unni kemur jafn­framt fram að síð­ustu daga hafi félagið gert óform­lega skoð­ana­könnun meðal félags­manna um hug þeirra til verk­falls­að­gerða.

„Skemmst er frá því að segja að afger­andi meiri­hluti þeirra styður verk­falls­að­gerðir félags­ins til að þrýsta á um kjara­samn­inga eða tæp­lega 90%. Þetta á við um vinnu­staði allra við­semj­enda sem verk­falls­að­gerðir bein­ast gegn,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár