Andúð þess fólks sem vill skilgreina sig sem almennilegar manneskjur en keppist nú við að níða leiðtoga láglaunafólksins sem þau töpuðu fyrir i borginni er ótrúlega afhjúpandi og sýnir að þótt pínulítill kall geti komið sér út úr moldarkofa er erfiðara að ná moldarkofanum úr honum.
Þessi aldagamla fyrirlitning á fátæku fólki og baráttu þess opinberar betur er flest annað þá frumstæða grimmd sem hin betur settu hafa ævinlega verið tilbúin að sýna fátækum og varnarlausum, fólkinu sem á að strita ósýnlegt og þögult, svara aldrei nema á það sé yrt (og þá bljúgum og lágum rómi) - og endilega ekki láta mæðina heyrast þegar það klárar síðustu kílómetratugina í skúringunum.
[adspot]Einhverjum kann að þykja fróðlegt að líkanið sem notað er til að mæla afkastahraða skúringafólks og var sett inn í samninga 2015 varð til í góðri samvinnu sérfræðimenntaðs stjórnanda hjá Eflingu sem var í einu og öllu samsinna fulltrúum atvinnurekenda. Það byggir á dönsku kerfi en hér var ekkert samráð haft við skúringafólkið sjálft heldur teknir upp grimmustu kaflarnir í danska kerfinu og það sem hefði verið skúringafólki til hagsbóta skilið eftir.
Þessi sérfræðimenntaði stjórnandi gat ekki hugsað sér að starfa við hlið Sólveigar Önnu þegar hún var kjörin til forystu í Eflingu heldur sagði upp og réði sig til að stýra samninganefnd Reykjavíkurborgar þar sem hún beitti sér af alefli gegn öllum kjarabótum láglaunafólksins. Þvermóðska formanns samninganefndar Reykjavíkurborgar, skilnings- og skeytingarleysi hennar um líf og kjör þeirra sem hún vildi m.a.s. sem stjórnandi hjá verkalýðsfélagi aðeins sjá hlaupa og hlaupa og hlaupa og hlaupa, er eina sanna skýringin á því að verkföll drógust á langinn.
Framgangan í samningaviðræðunum var í fullu samræmi við moldarkofaviðhorf borgarstjórnarmeirihlutans; viðhorf sem skýra betur en nokkuð annað hve lengi borgin reyndi að koma sér undan því að byrja að standa við fallegu fyrirheitin: Við ætlum að leiðrétta laun kvennastétta.
Það gerðu þau nefnilega ekki fyrr en tilneydd - og eru ennþá vælandi yfir því.
Höfundur er með meistarapróf í stjórnsýslu menningarminja frá University of York og er systir Sólveigar Önnu Jónsdóttur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir