Opinbert starfsfólk í Bretlandi gæti verið á leið í stærstu verkfallshrinu í áratugi

Stefnt gæti í stærstu verk­falls­hr­inu sem bresk stjórn­völd hafa séð síðan á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar, en opin­bert starfs­fólk krefst launa­hækk­ana í takti við verð­bólgu.

Verkföll starfsfólk breska járnbrautarkerfisins eru fyrirhuguð á þriðjudag, fimmtudag og laugardag.
Verkföll starfs­fólk breska járn­braut­ar­kerf­is­ins eru fyr­ir­huguð á þriðju­dag, fimmtu­dag og laug­ar­dag. Mynd: EPA

Stefnt gæti í verk­falla­hrynu opin­berra starfs­manna í Bret­landi svip­aða þeirri sem varð á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar, bregð­ist stjórn­völd ekki við. Starfs­fólk breska járn­braut­ar­kerf­is­ins er á leið í verk­fall sem mun lama helm­ing leið­ar­kerf­is­ins í strax í næstu viku og útlit er fyrir að verk­föll bæði kenn­ara og heil­brigð­is­starfs­fólks gætu fylgt í kjöl­farið.

Um er að ræða verk­föll vegna kröfu um launa­hækk­anir opin­berra starfs­manna í sam­ræmi við verð­bólgu, sem hefur farið upp úr öllu valdi í Bret­landi líkt og víða ann­ars staðar vegna inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu. Verð­bólgan í Bret­landi mælist nú um 9,2%, en breski seðla­bank­inn hefur varað við því að hún gæti náð allt að 11% í haust.

Verkföll starfs­fólk breska járn­braut­ar­kerf­is­ins eru fyr­ir­huguð á þriðju­dag, fimmtu­dag og laug­ar­dag í vik­unni sem hefst á morgun, en nú hafa stærstu kenn­ara­sam­tök Bret­lands til­kynnt að bjóð­ist kenn­urum ekki launa­hækkun í betra sam­ræmi við verð­bólg­una fyrir mið­viku­dag­inn muni félagið til­kynni mennta­mála­ráð­herra Bret­lands að boðað verði til atkvæða­greiðslu innan félags­ins um hugs­an­legar verk­falls­að­gerðir í haust.

Þá gætu fleiri stór­tíð­indi verið á leið­inni þegar starfs­fólki breska heil­brigð­is­kerf­is­ins NHS verða kynntar árlegar launa­hækk­anir í vik­unni, en útlit er fyrir að þær verði mun lægri en verð­bólgan. Talsmenn stétt­ar­fé­lags heil­brigð­is­starfs­fólks segja tvennt í stöð­unni fyrir bresk stjórn­völd: að bjóða heil­brigð­is­starfs­fólki sann­gjarnar kjara­bætur í sam­ræmi við verð­bólg­una eða horfa upp á fjölda­upp­sagnir og hugs­an­legar verk­falls­að­gerðir innan heil­brigð­is­kerfis sem þegar sé þanið.

Talið er að bresk yfir­völd hygg­ist bjóða heil­brigð­is­starfs­fólki, kenn­urum og millj­ónum ann­arra opin­berra starfs­manna 3 til 4 pró­senta launa­hækk­anir, en betur má ef duga skal þegar verð­bólga í land­inu er yfir 9%, segja sér­fræð­ingar. Þá harðn­aði gagn­rýnin, sem og lík­urnar á fjölda­verk­föllum, tals­vert þegar seðla­bank­inn spáði fyrir um allt að 11% verð­bólgu á árinu.

Þúsundir komu saman í mið­borg London í gær til að krefj­ast aðgerða af hálfu stjórn­valda til að koma til móts við hækk­andi fram­færslu­kostnað. Tveir við­mæl­endur The Guardian sögðu fjölda skóla­barna ekki fá nóg að borða heima hjá sér og að for­eldrar þyrftu að velja á milli þess að gefa börn­unum sínum að borða, ekki sjálfum sér, og að borga leigu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Konur að taka sér pláss

Fyrir rúmu ári síðan, nánar til­tekið 28. októ­ber 2017, fóru fram Alþing­is­kosn­ingar. Það má segja að sig­ur­veg­arar þeirra kosn­inga hafi verið karlar. Sér­stak­lega mið­aldra karlar. Þegar kosið var í lok októ­ber 2016, ein­ungis einu ári áður, náðu 30 konur kjöri til Alþingis og hlut­fall kvenna á meðal þing­manna varð 47,6 pró­sent. Það hafði aldrei verið hærra. [links]Í októ­ber 2017 fækk­aði...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár