Sakar dómaraefni Trump um kynferðisbrot

Konan sem sakar dóm­ar­ann Brett Kavan­augh um kyn­ferð­is­brot fyrir meira en 30 árum síðan, hefur komið fram undir nafni.

Konan sem sakar dóm­ar­ann Brett Kavan­augh um kyn­ferð­is­brot fyrir meira en 30 árum síðan, hefur komið fram undir nafni. Konan, Christine Blasey Ford, 52 ára sál­fræð­ingur, segir í sam­tali við Washington Post að í skóla­partýi hafi drukk­inn Kavan­augh haldið henni fastri í rúmi, káfað á henni og tekið fyrir munn­inn á henni til að koma í veg fyrir að hún öskr­aði.

[links]Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til­nefndi Kavan­augh í Hæsta­rétt í júlí síð­ast­liðnum og standa yfir­heyrslur þings­ins yfir dóm­ar­anum nú yfir áður en til­nefn­ingin verður stað­fest.

Kavan­augh hefur neitað þessum ásök­unum með öllu í gegnum yfir­lýs­ingar frá Hvíta hús­inu. Orðrómur um þessar ásak­anir fór af stað fyrir helgi en nafn kon­unnar hefur hingað til verið óþekkt. Hvíta húsið hefur gefið út bréf frá 65 konum sem segj­ast þekkja dóm­ar­ann frá því á skóla­árum hans og geti vitnað til um karakter hans.

Búist er við því að það að Ford komi fram undir nafni muni að öllum lík­indum auka þrýst­ing­inn á að fresta atkvæða­greiðsl­unni sem stað­festir skipun Kavan­augh.

Kavan­augh er 53 ára gam­all og starfar sem dóm­ari við áfrýj­un­ar­dóm­stól í Was­hington DC. Hann starf­aði náið með George W. Bush á sínum tíma og tók meðal ann­ars þátt í rann­sókn­inni á sam­skiptum Bill Clinton Banda­ríkja­for­seta og Mon­icu Lewin­sky auk þess sem hann var einn þeirra sem kom að end­ur­taln­ingu atkvæða fyrir hönd Bush í for­seta­kosn­ing­unum árið 2000. Kavan­augh var á árum áður aðstoð­ar­maður Ant­hony Kenn­edy, hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ans sem lét nýlega af störfum og Kavan­augh tekur að öllum lík­indum við af.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár