Trump tilnefnir Brett Kavanaugh í Hæstarétt

Íhalds­mað­ur­inn Brett Kavan­augh er val Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta á nýjum Hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Framundan er hörð bar­átta milli Repúblik­ana og Demókrata sem mun snú­ast að mestu um rétt­inn til fóst­ur­eyð­inga og kosn­ingar til öld­unga­deild­ar­innar í nóv­em­ber.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur til­nefnt dóm­ar­ann Brett Kavan­augh til emb­ættis Hæsta­rétt­ar­dóm­ara. For­set­inn til­kynnti um val sitt í beinni útsend­ingu í nótt þar sem hann sagði val á hæsta­rétt­ar­dóm­urum eina af djúp­stæð­ustu skyldum hvers for­seta, ef frá væru taldar ákvarð­anir um stríð og frið.

[links]Valið kom lítið á óvart, Kavan­augh var einn af fjórum sem flestir fjöl­miðlar töldu að kæmu til greina hjá Trump.

Hver er Brett Kavanaugh?

Kavan­augh er 53 ára gam­all og starfar sem dóm­ari við áfrýj­un­ar­dóm­stól í Washington DC. Hann starf­aði náið með George W. Bush á sínum tíma og tók meðal ann­ars þátt í rann­sókn­inni á sam­skiptum Bill Clinton Banda­ríkja­for­seta og Monicu Lewinsky auk þess sem hann var einn þeirra sem kom að end­ur­taln­ingu atkvæða fyrir hönd Bush í for­seta­kosn­ing­unum árið 2000. Kavan­augh var á árum áður aðstoð­ar­maður Anthony Kennedy, hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ans sem nú lætur af störfum og Kavan­augh tekur við af.

Fjöl­miðlar í Banda­ríkj­unum greina frá því að verði Kavan­augh stað­festur af þing­inu og settur í emb­ætti sé það alveg ljóst að rétt­ur­inn muni í kjöl­fari fær­ast lengra til hægri í nið­ur­stöðum sínum.

Þegar Kavan­augh var settur í emb­ætti dóm­ara við áfrýj­un­ar­dóm­stól­inn deildi hann ekki frá skoð­unum sínum á hinum svo­kall­aða Roe v. Wade dómi, sem að heim­il­aði fóst­ur­eyð­ingar í Banda­ríkj­unum þegar hann féll árið 1973. Óstað­festar fregnir herma að hags­muna­sam­tök and­stæð­inga fóst­ur­eyð­inga hafi barist gegn því á bak við tjöldin að Trump tilf­nefndi Kavan­augh og vildu frekar dóm­ara sem hafði opin­berað harð­ari afstöðu gegn fóst­ur­eyð­ingum. Gera má ráð fyrir því að dóm­stóll­inn fái fljót­lega til sín mál þar sem verður látið reyna á það að snúa for­dæm­inu sem Roe v. Wade setti.

Fjöl­miðlar telja þó ein­sýnt að Kavan­augh muni alla jafna dæma með íhaldsam­ari kol­legum sínum við rétt­inn.

Í aðdrag­anda til­kynn­ingar Trump í nótt höfðu ein­hverjir íhalds­menn áhyggjur af því að Kavan­augh væri ekki nægi­lega langt til hægri í skoð­unum sínum, sér­stak­lega þegar kemur að fóst­ur­eyð­ingum og heil­brigð­is­málum. Að auki voru uppi áhyggjur af teng­ing­unni við Bush fjöl­skyld­una.

Repúblikönum liggur á

Til að setja Kavan­augh í emb­ætti þarf stað­fest­ingu þings­ins á til­nefn­ingu Trump. Kosið verður til öld­unga­deildar þings­ins í nóv­em­ber og óljóst hvor flokk­ur­inn verður í meiri­hluta eftir kosn­ing­arnar. Repúblikönum liggur því á að klára málið.

Demókratar hafa sagt það ólýð­ræð­is­legt að setja dóm­ara í emb­ætti svo stuttu fyrir kosn­ingar, auk þess sem Trump sé um þessar mundir til rann­sóknar í máli sem er ekki úti­lokað að muni á end­anum fara fyrir Hæsta­rétt. Því sé eðli­legt að bíða með að skipa nýjan dóm­ara þar til rann­sókn þeirri sé lokið.

Það er þó ekki búist við því að þessi atriði muni vefj­ast mikið fyrir Repúblík­önum. Hins vegar er það spurn­ingin um við­snún­ing á for­dæmi Roe v. Wade sem gæti flækt málið. Frjáls­lynd­ari Repúblikanar í öld­unga­deild­inni eru fylgj­andi því að Roe v. Wade séu gild­andi lög og þar bein­ast allra augu að tveimur öld­unga­deild­ar­þing­mönnum sem eru hlynntir rétt­inum til fóst­ur­eyð­inga: Lisu Murkowski frá Alaska og Susan Collins frá Maine. Ef allir þing­menn Demókrata kjósa gegn til­nefn­ing­unni hafa þó Repúblikanar efni á að missa tvö atkvæði úr sínum ranni.

Búist er við miklum slag næstu vikur og miss­eri og óvíst hversu langan tíma stað­fest­ingin mun taka. Dragist ferlið á lang­inn er hætt við því að næsti Hæsta­rétt­ar­dóm­ari, Kavan­augh eða annar, verði eitt stærsta kosn­inga­málið í nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár